Feb 28 2002
Quarashi í Bandaríkjunum
Snillingarnir í Quarashi, sem er að mínu mati besta íslenska hljómsveitin virðast eitthvað vera að meika það hérna í Bandaríkjunum. Þeir eru að gefa út disk 15.apríl og svo eru þeir að fara á tónleikaferð með einhverjum fleiri hljómsveitum.
Ég sá svo að þeir eru inná vinsældalistanum hjá einni af mínum uppáhaldsútvarpsstöðvum, Q101 (sjá hér, endilega kjósið þá). Q101 er stærsta útvarpsstöðin í Chicago að ég held.
Þeir eru líka með myndband við Stick ‘Em Up, sem er víst í spilun á MTV2 (ég er því miður bara með MTV). Myndbandið er flott.
Ég rakst líka á snilldar myndband, sem fjallar um þá fjóra. Þeir gera snilldarlegt grín af þeim ranghugmyndum, sem flestir hafa um Íslendinga. Alger snilld!
Eitt ummæli við færsluna “Quarashi í Bandaríkjunum”
# - þann 22 Jul 2003 klukkan 21:37
Uhm…er þetta gömul síða? Það er talað um Quarashi en ekkert minnst á nýja lagið: mess it up! Eða að Hössi sé hættur.
:rolleyes: Jahá…þetta er síðan 28 feb.2002…oki, geddit.
Love, peace and mickeymouse.