Sep 28 2002

Michael Owen

uppfærði klukkan 5:30 í flokkinn Liverpool

Já, það skyldi enginn efast um hæfileika Michael Owen. Eftir að ensku blöðin höfðu farið haförum í gagnrýni á Owen og allir haldið að hann væri útbrunninn 22 ára gamall, þá þaggaði hann niður í þeim með því að skora þrennu á móti Manchester City í dag.

Ég fór á Ölver að horfa á leikinn og var hann ekkert voðalega skemmtilegur. City höfðu víst ekki tapað á heimavelli í 12 mánuði en það skipti engu máli, því Owen var í stuði og tvö síðari mörk hans voru klassísk Michael Owen mörk. Það komu stungusendingar inn fyrir vörnina, hann stakk síðustu varnarmenn af og afgreiddi boltann með þrumuskoti fram hjá danska skrímslinu Peter Schmeichel.

Síðasta markið var einstaklega fallegt en þá var hinn eldfjóti Schmeichel á leið aftur í markið eftir að hann hafði freistað þess að skora þegar City átti hornspyrnu.

Það skyggir þó aðeins á gleðina hvað Arsenal liðið er hrikalega sterkt. Þeir virðast alveg óstöðvandi. En á meðan að Liverpool heldur áfram að vinna sína leiki, þá fer að styttast í að Arsenal byrji að klúðra sínum leikjum.

8 ummæli hingað til

8 Ummæli við færsluna “Michael Owen”

  1. Daði
    # - þann 28 Sep 2002 klukkan 6:08

    Ég get nú ekki séð það að þetta sé neitt sérstakt afrek sem slíkt, síðast þegar Owen fór í gegnum svipað ferli og skorðaði lítið sem ekkert svaraði hann með því að skora 4 mörk á móti Newcastle, þegar Keegan var við stjórn þar. Keegan er asni og eini maðurinn sem spilar rangstöðuvörn á miðju á móti Liverpool.

    Maður sem getur ekkert ef hann fær ekki stungusendingar á ekki að vera miðdepill allra sókna, 7 mörk í 15 tilraunum frá vítapunkti tala sínu máli.

  2. Einar Örn
    # - þann 29 Sep 2002 klukkan 2:32

    Það að Michael Owen er ekki góð vítaskytta breytir engu. Hann er samt sem áður einn af fimm bestu framherjum í heimi. Framherjar hafa mismunandi kosti. Owen er ekki mikill skotmaður en hann er fljótur og á auðvelt með að skapa sér færi uppúr engu.

  3. 'Asta
    # - þann 22 Oct 2002 klukkan 1:05

    :biggrin2: :biggrin2: :biggrin2: :biggrin2: :blush: :laugh: :tongue: :smile:

  4. Rakel
    # - þann 15 Jan 2003 klukkan 9:58

    Owen er rosalega godur leikmadur :smile:

    Allir leikmenn eiga sern gott og slaemt timabil! :smile:

    Lika Owen :blush:

  5. Þórður
    # - þann 13 Jun 2003 klukkan 8:58

    Liverpool er gott lið en manchester eru smá betri en þið en samt þið hafið unnið marga leiki.

  6. Erla
    # - þann 30 Oct 2003 klukkan 12:35

    Liverpool er sko bara lang besta liðið sko :biggrin: og svo er Michael Owen bara ótrúlega sætur :blush:

    hann er sko einhver sætasti fótboltamaður í heiminum :smile: :biggrin2: :wink:

    Ég dírka hann gersamlega :blush:

  7. Mæja
    # - þann 20 Dec 2003 klukkan 11:50

    :rolleyes:

    Hey mér finnst Michael Owen góður fótboltamaður en þeir þurfa að fara gera eitthvað í málunum.. :rolleyes:

  8. Ingvi
    # - þann 24 Apr 2004 klukkan 5:41

    Liverpool er mjög gott lid og ég á mína bestu

    leikmenn.Þeir eru Owen,Kiwel og Gjerart.