Nov 01 2002

Serrano

uppfærði klukkan 1:42 í flokkinn Dagbók

Núna er klukkan að verða 2 um nótt og ég var að koma úr Kringlunni. Emil og Borgþór eru ennþá að vinna uppí Kringlu við að setja upp rafmagn, tengja ljós, vaska og fleira. Ég þurfti að fara heim að sofa til þess að geta meikað allan morgundaginn.

Allavegana, við stefnum ennþá á að opna staðinn klukkan 11.30 á morgun (í dag). Það verður fjör!

6 ummæli hingað til

6 Ummæli við færsluna “Serrano”

  1. Ágúst
    # - þann 01 Nov 2002 klukkan 2:23

    Ég mæti!! :smile:

  2. Óli G. Håk
    # - þann 01 Nov 2002 klukkan 3:06

    Ég tek mér síðbúinn hádegismat hjá þér.(til að losna við aðal hádegistrafíkina)

  3. Gummi Jóh
    # - þann 01 Nov 2002 klukkan 10:01

    svei mér þá ég mæti!

  4. Ágúst
    # - þann 01 Nov 2002 klukkan 15:47

    Ég fór nú bara fýluferð í hádeginu í dag :sad:

    Klukkan rúml. 12 var allavega ekki búið að opna.

  5. Bjarni
    # - þann 02 Nov 2002 klukkan 18:05

    Takk fyrir mig :biggrin: kom fljótlega eftir það opnaði um 4 leitið í gær og fékk hinn besta mat þó sterka sósan hafi nú ekki verið mjög sterk :wink:

  6. Ágúst
    # - þann 04 Nov 2002 klukkan 14:26

    Jæja, ég kom aftur í hádeginu í dag (mánudag) og varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. :biggrin2:

    Sjá nánar hér.