Jan 06 2003
Bloggleiði
Úff hvað mér leiðist þegar fólk talar um það hversu latt það hefur verið við að blogga. Ég ætla samt að gera það sjálfur.
Ég hef einhvern veginn ekki haft mikið að segja undanfarið. Að hluta til byggist þetta á því að ég veit ekki hversu mikið ég á að segja um mitt prívatlíf núna þegar ég er hérna á Íslandi. Blogg um mitt prívatlíf yrði nefnilega aldrei bara um mig, heldur þyrfti það að innihalda vini, fyrrverandi kærustur, fjölskyldu og svo framvegis. Mér er alveg sama þótt að ég komi illa útúr þeirri umfjöllun, en ég vil helst ekki segja eitthvað vitlaust um allt hitt fólkið.
Einhvern veginn var þetta auðveldara þegar ég bjó útí Bandaríkjunum. Þá gat ég tjáð mig um partí og skólann og alla félagana þar. Ég gat treyst því að vinir mínir þar lásu aldrei síðuna og því hafði ég meira frelsi til að skrifa (ekki það að ég hafi nokkurn tímann skrifað eitthvað slæmt um þá).
Ég tjáði mig smá í umræðum á Metafilter um það hvernig persónuleika bloggarar skapa. Ég veit ekki hvernig fólk, sem þekkir mig ekki en les þessa síðu, lítur á mig. Ég veit bara að þessi síða gefur mjög ónákvæma mynd af mínu lífi. Ég skrifaði m.a. á Metafilter (ó jess, ég kvóta sjálfan mig
Einn gaur svaraði mér
og ég svaraði
Sem sagt, þá hef ég síðustu daga byrjað að halda mína eigin dagbók. Mér fannst þessi blogg síða alltaf þjóna einhverjum tilgangi sem dagbók en ég geri mér grein fyrir því að hún er gríðarlega takmörkuð. Ég hef þörf fyrir að tjá mig um hlutina í mínu lífi og oft finnst mér mikilvægt að skrásetja atburði í lífi mínu, hvort sem það er með myndum eða texta. Það hefur gefið mér furðu mikið að halda nákvæma dagbók síðustu daga.
Þannig að ég veit ekki alveg hvert ég stefni með þessa síðu. Ég veit að það er ekki séns að ég hætti enda finnst mér oft lífsnauðsynlegt að tjá mig “opinberlega” um vissa hluti. Ég hef þó bara ekki fundið nein mál, sem hafa tekið nógu mikið á mig, til að ég fari að tjá mig.
Ætli mér vanti ekki bara góða grein á Múrnum um hræðilegar skuggahliðar alþjóðaviðskipta til að ég komist aftur í stuð.