Skráarsafn fyrir February, 2003

Feb 27 2003

Hagfræði og Írak

skrifaði í flokkinn Hagfræði,Stjórnmál

Á Múrnum í dag er grein um Írak. Þar segir meðal annars:

Stríðið í Írak snýst nefnilega ekki um að Saddam Hussein sé vondur maður sem George Bush og Halldór Ásgrímsson segja að hafa drepið barnabörn sín (ætli Bush sé heimild Halldórs fyrir því?). Það snýst um að Bandaríkjastjórn vill fara í stríð við einhvern. Hún vill vígvæðingu til að mala gull fyrir hergagnaframleiðendur og önnur stórfyrirtæki sem komu henni til valda. Hún vill líka auka vinsældirnar heima fyrir og taka eins lítið tillit og unnt er til málfrelsis og mannréttinda.

Trúir greinarhöfundur því virkilega að Bandaríkin séu að fara útí stríð bara til að geta gefið hergagnaframleiðendum meira að gera?

Allavegana, samkvæmt þessum tilgátum Ármanns þá er það eina, sem Bandaríkjastjórn þarf, góður hagfræðingur.

Þessi hagfræðingur gæti í fyrsta lagi sagt Bush að það væri mun sniðugara að styrkja hergagnaframleiðendur beint. Það væri miklu hagkvæmara en að fara í stríð, því þá myndu sparast ótal vinnustundir, mannslíf, eldsneytiskostnaður og slíkt. Hergagnaframleiðendur væru alveg jafn vel settir en Bandaríkjastjórn myndi spara á öðrum sviðum.

Þessi sami hagfræðingur gæti svo frætt Bush að vinsældir hans væru alveg feykinógar til að halda honum í sessi eftir næstu kosningar. Hann gæti minnt hann á það að pabbi hans tapaði sínum kosningum ekki útaf stríði heldur útaf efnahagsmálum.

Þessi sami hagfræðingur gæti sagt Bush að það að fara útí stríð væri að öllum líkindum mjög þjóðhagslega óhagkvæmt (hann gæti svo líka fengið hann til að hætta við skattalækkanir handa þeim ríkustu). Ef að Bush myndi hlusta á hagfræðinginn myndi efnahagurinn vænkast og Bandaríkjamenn yrðu mun ánægðari með forsetann, því að langflestir kjósa eftir því hvernig efnahagsástandið er.

Já, heimurinn yrði betri ef að allir hlustuðu á hagfræðinga.

8 ummæli hingað til

Feb 25 2003

Morgunmatur

skrifaði í flokkinn Netið

Alls ekki missa af mikilvægustu máltíð dagsins!! (via Mefi)

64 grömm af fitu og 690 mg af kólestróli. Allt í einum handhægum pakka.

2 ummæli hingað til

Feb 24 2003

Where did it all go wrong?

skrifaði í flokkinn Íþróttir

Það er vissulega alveg hrikaleg hlutskipti að vera Liverpool aðdáandi þessa dagana. Þetta eru alveg ólýsanleg vandræði hjá þessu liði. Ég bara skil ekki hvernig þetta hefur allt gerst. Fyrir tæpum tveimur árum skrifaði ég þessa færslu.

Hvað hefur gerst? Hvað veldur því að ég hef ekki lengur trú á manninum, sem ég hélt að væri fremsti knattspyrnuþjálfari í heimi? Hvernig gerðist það að mér verður nánast óglatt þegar ég sé suma Liverpool leikmenn mæta til leiks? Lesa áfram »

3 ummæli hingað til

Feb 23 2003

Úfff, sunnudagur

skrifaði í flokkinn Dagbók

Mikið óskaplega geta sunnudagar verið erfiðir dagar. Á dögum sem þessum sakna ég alveg ofboðslega þess tíma þegar ég varð aldrei þunnur.

Fyrst þegar ég byrjaði að drekka áfengi drakk ég ávallt vodka. Ég mætti alltaf í partí með flösku af Stolla og Brazza. Drakk minn skammt, varð voða hress og vaknaði svo daginn eftir alveg eldhress. Varð aldrei þunnur, enginn hausverkur, engin magapína, ekki neitt.

Núna drekk ég hins vegar bjór. Helst bandarískan bjór, meira að segja helst Light bjór (btw, ekki með minna áfengi, heldur færri kalóríur). Núna verð ég hins vegar alltaf þunnur. Ég fæ alltaf hrikalegan hausverk, sem mér tekst aldrei að losa mig við. Í dag hef ég til að mynda tekið 6 Excedrin töflur, en ekkert virkar.

Reyndar minnkaði hausverkurinn eitthvað við það að ég fór í fótbolta. Þar var ég laminn (reyndar óvart) af fyrrverandi sjónvarpsstjóra Skjás Eins og því er ég nú með þetta flotta glóðarauga. Ég þó losnaði við hausverkinn í dágóða stund en núna er hann eiginlega kominn aftur. Vá, ég held að ég hafi ekki verið með glóðarauga síðan ég var 10 ára.

4 ummæli hingað til

Feb 21 2003

Play some Skynyrd!

skrifaði í flokkinn Tónlist

Ó já, ég er kominn í helgarstuð og nenni ekki að skrifa um pólitík. Gæti skrifað um fótbolta en þeir pistlar breytast alltaf útí eitthvað skítkast útí Emile Heskey (sem er by the way, lélegasti framherji, sem hefur spilað fyrir Liverpool).

Þannig að ég ætla bara að gefa lesendum kost á að ná sér í frábært lag fyrir helgina. Þetta lag er með eðalrokksveitinni Lynyrd Skynyrd. Reyndar er þetta ekki mitt uppáhaldslag með hljómsveitinni, en þetta lag er svakalega gott: Tuesday’s Gone (MP3 – 8.63MB). Frábært lag. Samt á maður auðvitað ekki að hlusta á Skynyrd nema að maður sé inná bar einhvers staðar í Suðurríkjum Bandaríkjanna.

Comments Off

Feb 19 2003

“Franskar” kartöflur

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Þetta er náttúrulega alger snilld.

Hamborgarastaður í Norður-Karólínu er hættur að selja “franskar kartöflur” vegna þess að Frakkar eru mótfallnir stríði við Írak. Í staðinn selur hann “Freedom Fries”.

3 ummæli hingað til

Feb 17 2003

Slys á næturklúbbi

skrifaði í flokkinn Dagbók

Mér brá mjög þegar ég heyrði þessa frétt í útvarpinu áðan. Þegar ég kom heim var náttúrulega það fyrsta sem ég gerði að skoða hvort þetta væri klúbbur, sem að vinir mínir sækja.

Svo reyndist ekki vera. Það dóu 21 í troðningi á næturklúbbi í Suðurhluta Chicago. Einhver dyravörður notaði mace til að brjóta upp slagsmál en þá greip um sig ótti á staðnum og fólk reyndi að komast út um dyr, sem voru læstar. Í troðningum létust svo 21. Þetta er náttúrulega alveg ótrúlegt að svona skuli geta gerst. Um 1500 til 2000 manns voru í klúbbnum.

2 ummæli hingað til

Feb 16 2003

Hvar varst þú meðan Saddan drap þúsundir

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Mjög athyglisverð grein í uppáhaldsblaði margra vinstrimanna.

Þar skrifar Íraki, sem býr núna í London í tilefni mótmælanna í gær. Hann segir meðal annars:

I am so frustrated by the appalling views of most of the British people, media and politicians. I want to say to all these people who are against the possible war, that if you think by doing so you are serving the interests of Iraqi people or saving them, you are not. You are effectively saving Saddam. You are depriving the Iraqi people of probably their last real chance get rid of him and to get out of this dark era in their history. My family and almost all Iraqi families will feel hurt and anger when Saddam’s media shows on the TV, with great happiness, parts of Saturday’s demonstration in London. But where were you when thousands of Iraqi people were killed by Saddam’s forces at the end of the Gulf war to crush the uprising? Only now when the war is to reach Saddam has everybody become so concerned about the human life in Iraq. Where were you while Saddam has been killing thousands of Iraqis since the early 70s? And where are you are now, given that every week he executes people through the “court of revolution”, a summary secret court run by the secret security office. Most of its sentences are executions which Saddam himself signs.

15 ummæli hingað til

Feb 14 2003

Kokkur á Serrano

skrifaði í flokkinn Vinna

Úff hvað þetta er búinn að vera langur dagur. Kokkurinn á Serrano var veikur í dag og því þurfti ég að fylla í skarðið. Þar sem ég er svona 10 sinnum lengur að gera alla hluti en kokkurinn, þá varð þetta langur dagur. Svo var brjálað að gera á tímabili, þannig að ég er alveg uppgefinn í lok dags. Ég held að ég hafi eytt einhverjum tveimur tímum bara í að búa til Guacamole (en mikið djöfulli varð það gott hjá mér ;-) . Einnig tókst mér að rústa matvinnsluvélinni okkar. Ég var að búa til sterku sósuna þegar allt í einu byrjaði að rjúka úr vélinni og svo drap hún á sér. Emil þurfti því að keyra niðríbæ til að kaupa nýja (og betri) vél.

Annars hef ég lítið skrifað um Serrano undanfarið. Þetta er farin að vera miklu meiri rútína. Staðurinn gengur mjög vel og erum við ótrúlega sátt við móttökurnar. Ég er nánast hættur í afgreiðslunni, enda var það alltaf ætlun okkar Emils að draga okkur útúr þeim störfum. Núna er ég að ég held búinn að kynnast öllum hliðum afgreiðslunnar og því læt ég starfsfólkinu eftir að sinna því í framtíðinni.

Ég held líka að bæði maturinn og afgreiðslan sé mun betri núna en hún var þegar við byrjuðum. Við erum búnir að gera ótrúlega margar smávægilegar breytingar á matnum og afgreiðslunni. Þegar við byrjuðum vissum við Emil náttúrulega ekkert um það hvernig á að reka veitingastað. Í dag erum við engir sérfræðingar en við erum allavegana mun klárari en við vorum í byrjun. Maturinn hefur breyst dálítið og er það aðallega að þakka vinum (og fyrrverandi kærustu :-) ), sem hafa verið dugleg við að koma með uppbyggilega gagnrýni á matinn. Ég held að í dag getum við verið stoltir af því, sem við bjóðum uppá.

By the way, þá setti ég upp á Serrano.is form til að fólk geti komið með kvartanir/uppástungur fyrir staðinn. Þannig að ef fólki finnst eitthvað að matnum, þjónustunni eða það vill stinga uppá nýjum réttum eða einhverju slíku, þá er það hægt að gera það á síðunni.

Ein ummæli hingað til

Feb 13 2003

Blindskák

skrifaði í flokkinn Íþróttir

Helgi Áss, fyrrum bekkjarfélagi minn úr Verzló, sló í gær Íslandsmetið í blindskák þegar hann tefldi við 11 manns.

Þetta er alveg hreint ótrúlega magnað. Ég man að í Verzló þá tefldi ég, ásamt tveimur öðrum strákum úr bekknum, blindskák við Helga inná Marmara. Ég er nú enginn skák sérfræðingur en tel mig vera skítsæmilegan. Ég hélt nú að ég myndi allavegana eiga séns, þar sem þetta var nú einu sinni blindskák og hann var að tefla við tvo í viðbót. En andskotinn sjálfur, Helgi mátaði okkur alla á einhverjum 10-15 mínútum.

Ég bara hreinlega get ekki skilið hvernig þetta er hægt.

5 ummæli hingað til

Feb 12 2003

Að hata tónlist

skrifaði í flokkinn Tónlist

Þessi stelpa er ekki mjög hrifin af Sigurrós.

Reyndar er hún ekkert voðalega hrifin af tónlist, því síðan hennar heitir: I hate music. Nokkuð skemmtileg síða. (via Metafilter)

Ein ummæli hingað til

Feb 11 2003

Flash spákúla

skrifaði í flokkinn Netið

Þetta er nokkuð magnað.

Ég var ekki alveg að fatta þetta, en trikkið er auðvitað auðvelt.

Comments Off

Feb 09 2003

Norður Kórea

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

kimjongil.jpg60 Minutes þátturinn í kvöld var mjög áhugaverður. Í þættinum var umfjöllun um kommúnistaríkið Norður-Kóreu. Þar var meðal annars talað við þýskan lækni, Norbert Vollertsen, sem vann við mannúðarstörf í Norður-Kóreu í tvö ár.

Vollertsen vann við að hlúa að börnum, sem þjást vegna hungursneyðarinnar, sem hefur ríkt í landinu á meðan að Kim Jong Il er önnum kafinn við að búa til kjarnorkuvopn og ógna nágrönnum sínum og Bandaríkjamönnum.

Vollertsen líkir ástandinu í Norður-Kóreu við það, sem var í Þýskalandi í seinni heimsstyrjöldinni. Hvort sem það er rétt, þá er ljóst að KimJong Il er gríðarlegt illmenni.

Ég fann grein á vefnum um þennan Vollertsen. Þar segir meðal annars:

Bouncing across the countryside in a Jeep, Dr. Vollertsen encountered starving children who were nevertheless forced to engage in daily, two-hour songfests idolizing the “Dear Leader.” He saw gangs of undernourished children working on a 10-lane highway project. He watched doctors perform an emergency appendectomy on a girl without anesthesia. He met adults who were desperately afraid, always under surveillance, dousing their depression with cheap alcohol. He found a staggering infant mortality rate and, among children who did survive, significant declines in height, weight, and IQ.

Einnig

“There is no medicine, no running water, no heating system, no food, no bandages-and this is the situation all over North Korea.” Everywhere, that is, except in the glittering capital city of Pyongyang, where Dr. Vollertsen found casinos, nightclubs, luxury hotels, gourmet foods, and diplomatic shops. “Very fashionable, and all for the ruling class-the military and party members,” he recalls. Hospitals there are-no surprise-state of the art.

Í 60 Minutes þættinum voru einmitt sýndar myndir frá Pyongyang. Sú borg lítur bara ágætlega út, fyrir utan að þar virtist vanta alla alla umferð fólks og bíla. Þar er meðal annars Ryugyong hótelið, sem er víst hæsta hótel í heimi. Hótelið kostaði 750 milljónir dollara, en var samt aldrei klárað. Ég leyfi mér líka að efast um að “occupancy ratio” væri mjög hátt á þessu blessaða hóteli, þar sem nær engum útlendingum er hleypt inní landið. Ástæðan fyrir því að hótelið var aldrei klárað var fyrst og fremst peningaskortur en svo var vitlaus gerð af sementi notuð, þannig að undirstöður hótelsins eru óstyrkar.

Hótelið er kannski gott dæmi um forgangsröðun hjá illmenninu Kim Jong Il. Hann dýrkar bandarískar bíómyndir, Daffy Duck, flotta bíla og notar netið mikið. Landar hans hafa þó einungis aðgang að ríkissjónvarpsstöðum og um allt landið eru hátalarar, sem útvarpa reglulega áróðri um það hversu góður leiðtogi Kim Jong Il sé.

Til þess að sjá svo til þess að múgurinn mótmæli ekki þá hefur Kim Jong Il, í anda nasista og Stalín, komið upp fangabúðum um land allt, þar sem talið er að allt að 5% Norður-Kóreubúa búi. Í viðtalinu við Vollertsen segir meðal annars:

After leaving North Korea, he spent time along its borders learning from defectors-torture victims who live like hunted animals on the border between North Korea and China. They described a nightmare world where guards electrocute prisoners for fun and throw women into sewage pools for stealing food. He heard stories of children who vomit when they accidentally dig up fresh mass graves and babies who are strangled moments after birth on concrete floors. He was told repeatedly of an island in the northeastern part of North Korea, in an area near Chongjin so highly restricted it does not appear on official maps, where prisoners are used as laboratory test material for anthrax and other bacteria, food poisoning, or medical experiments-how long they can stand freezing, or how long they can live underwater-”the cruelest experiments you can imagine,” Dr. Vollertsen says.

Einnig:

The former bodyguard, Lee Young Kuk, said he watched the punishment of a political prison camp inmate accused of stealing salt. He was tied to a vehicle and dragged for 2 miles at high speeds and “became de-skinned.” His body was tied to a stake “as an example,” said Mr. Lee. He told reporters, “I have watched so many deaths in North Korea I almost lost the concept of human dignity.” “When I see the combination of brainwashing, starvation, concentration camps, of rape, of medical experiments and mass executions, all those horrible stories and the testimony of all those defectors, then I must say that Kim is an upgraded version of Hitler’s Nazi Germany,” Dr. Vollertsen declares. “He’s committing genocide.”

Það er nokkuð ljóst að það er erfitt að finna verri illmenni en Kim Jong Il.

10 ummæli hingað til

Feb 09 2003

Sunnudagskvöld

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Vá hvað 24 er góður þáttur. Ég held að það hafi aldrei verið sjónvarpsþáttur, sem heldur mér svona ótrúlega spenntum nær allan tímann. Í endan á þættinum, sem var sýndur í kvöld var ég staðinn upp, því ég gat ekki setið af spenningi. Ég var alveg heillaður af fyrstu seríunni af 24 en hélt að seinni serían hlyti að valda mér vonbrigðum. Það hefur hins vegar ekki gerst.

Sunnudagskvöld eru einu kvöldin, þar sem ég sit límdur við skjáinn í langan tíma. Boomtown er mjög góður þáttur og svo líka 60 Minutes. Síðan hef ég haft mjög gaman af “20. öldinni”. Mjög gaman að sjá öll þessi myndskeið. Svo fyllist ég alltaf gríðarlegu þjóðernistolti þegar afrek Íslendinga eru þulin upp, hvort sem það var verið að tala um sigrana í landhelgismálinu eða sýna þegar Ríkharður Daðason skoraði gegn Frökkum.

4 ummæli hingað til

Feb 07 2003

Svar við spurningu dagsins

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Sverrir Jakobsson skrifar:

Stefna Norður-Kóreustjórnar í kjarnorkumálum þessa daga einkennist af taugveiklun og öfgafullum viðbrögðum. Það er ljóst að hún mun ekki leiða til neins góðs. En af hverju stafar taugatrekkingurinn?

Og svar mitt… Af því að Norður-Kóreu er stjórnað af snarbiluðum kommúnískum einræðisherra, sem kýs að svelta þjóð sína meðan hann byggir sér hallir og eyðir peningunum í að vígbúast.

Takk fyrir og góða helgi.

Comments Off

Feb 05 2003

Houllier burt!

skrifaði í flokkinn Liverpool

Varúð, þessi grein er skrifuð af reiðum Liverpool aðdáenda og hún verður ábyggilega löng!

Aldrei hefði mig grunað að ég myndi skrifa þetta á þessa heimasíðu. En það er komið að því: Gerard Houllier þarf að hætta hjá Liverpool.

Þetta leiktímabil verður alltaf hræðilegra og hræðilegra. Eina, sem gæti mögulega toppað þetta væri ef Liverpool myndi tapa 5-0 fyrir Manchester United í Cardiff. Það að tapa 2-0 fyrir liði, sem er í 10. sæti í fyrstu deild eru úrslit, sem Liverpool aðdáendur mun aldrei sætta sig við. Aldrei nokkurn tímann.

Mér hefur í raun aldrei liðið svona gagnvart Liverpool. Í kvöld þegar ég byrjaði að horfa á leikinn þá var ég ekkert spenntur. Ég var vart búinn að hugsa um leikinn í allan dag. Svo byrjaði leikurinn og þá tók við þessi sama ömurlega spilamennska og hefur einkennt liðið í nær allan vetur. Einsog svo oft áður hafði maður ekki nokkra ástæðu til að gleðjast. Ekki yfir fallegu spili, ekki fallegum mörkum eða sendingum. Bara hreinræktuð leiðindi. Jafnvel þó Liverpool væru manni fleiri á heimavelli gegn fyrstu deildar liði tókst liðinu ekki að spila skemmtilega og spennandi knattspyrnu. Lesa áfram »

4 ummæli hingað til

Feb 05 2003

Houllier burt!

skrifaði í flokkinn Liverpool

Varúð, þessi grein er skrifuð af reiðum Liverpool aðdáenda og hún verður ábyggilega löng!

Aldrei hefði mig grunað að ég myndi skrifa þetta á þessa heimasíðu. En það er komið að því: Gerard Houllier þarf að hætta hjá Liverpool.

Þetta leiktímabil verður alltaf hræðilegra og hræðilegra. Eina, sem gæti mögulega toppað þetta væri ef Liverpool myndi tapa 5-0 fyrir Manchester United í Cardiff. Það að tapa 2-0 fyrir liði, sem er í 10. sæti í fyrstu deild eru úrslit, sem Liverpool aðdáendur mun aldrei sætta sig við. Aldrei nokkurn tímann.

Mér hefur í raun aldrei liðið svona gagnvart Liverpool. Í kvöld þegar ég byrjaði að horfa á leikinn þá var ég ekkert spenntur. Ég var vart búinn að hugsa um leikinn í allan dag. Svo byrjaði leikurinn og þá tók við þessi sama ömurlega spilamennska og hefur einkennt liðið í nær allan vetur. Einsog svo oft áður hafði maður ekki nokkra ástæðu til að gleðjast. Ekki yfir fallegu spili, ekki fallegum mörkum eða sendingum. Bara hreinræktuð leiðindi. Jafnvel þó Liverpool væru manni fleiri á heimavelli gegn fyrstu deildar liði tókst liðinu ekki að spila skemmtilega og spennandi knattspyrnu. Lesa áfram »

6 ummæli hingað til

Feb 03 2003

Hannes Hólmsteinn og 20. öldin

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Ágúst Flygenring skrifar um 20. öldina hans Hanneser Hólmsteins (og hann vísar líka í aðra pistla um sama þátt). Þetta eru nokkuð skemmtilegir þættir, sérstaklega þar sem Hannes er lunkinn við að finna atriði, þar sem vinstri menn tjá skoðanir sínar, sem virðast nú mörgum árum síðar, vera hálf bjánalegar. Ekki hef ég enn séð neyðarlega upptöku af sjálfstæðismönnum í þessum þáttum. Ég efast stórlega um að það sé tilviljun.

Annars er það skemmtilegasta í þessum þáttum smáatriði, sem Hannes Hólmsteinn hefur greinilega pælt í. Til dæmis þegar fjallað var um það þegar Jón Ólafsson eignaðist hlut í Stöð 2, þá var þemalagið úr Guðföðurnum spilað undir.

Þegar fjallað var um sigur Davíðs Oddsonar á landsfundi Sjálfstæðisflokksins var hins vegar spilað sigurþemað úr Charoits of Fire. Engu líkara en að Davíð hefði verið að sigra á Ólympíuleikunum.

2 ummæli hingað til

Feb 03 2003

Small Earthquake in Chile. Not Many Dead

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Jamm, ég vissi að það myndi koma grein á Múrnum, þar sem þeir myndu fara að kvarta yfir athyglinni, sem sjö látnir geimfarar frá Bandaríkjunum og Ísrael fengu í fréttum nú um helgina. Steinþór Heiðarsson tók að sér að skrifa grein, þar sem hann gagnrýnir athyglina og samúðina, sem geimfararnir og aðstandendur þeirra fengu.

Steinþór kemur svo með einhverja hallærislega upptalningu á því að fólk hafi dáið í öðrum löndum um helgina, án þess þó að það hafi talist fréttmætt. Þannig eigum við hin, sem vorum sjokkeruð þegar við sáum geimferjuna springa, að fá samviskubit yfir því að það sé fólk að deyja annars staðar í heiminum. Auðvitað eru slys misjafnlega fréttnæm. Það tekur líka meira á okkur að 10 Danir hafi dáið heldur en ef 10 Indverjar hefðu dáið. Það er bara fullkomlega eðlilegt. Það fengi líka meiri fréttaumfjöllun í Bangladesh ef 10 Indverjar hefðu dáið heldur en 10 Danir.

Ég leyfi mér líka að fullyrða að Steinþóri er nokkurn veginn sama um þá sem dóu í rútuslysinu í Zimbabwe. Hann hefði sennilega ekki hugsað meira um slysið nema vegna þess að honum vantaði eitthvað til að fylla þessa slysaupptalningu sína. Hann á því ekki að vera að setja sig á háan hest og skamma okkur hin fyrir að samhryggjast aðstandendum geimfaranna.

Uppfært: Sjá umræður hjá Bjarna um sama mál

4 ummæli hingað til

Feb 02 2003

Blogg, Verzló og stjórnmál

skrifaði í flokkinn Netið,Stjórnmál

Vúhú, ég held að ég sé búinn að finna mér nýjan uppáhaldsbloggara, víst að Leti á neti virðist vera hættur. Nýja uppáhaldið er Svansson.net.

Guðmundur, sem heldur úti þeirri síðu er hagfræðinemi (fimm plúsar fyrir það) og svo er hann alveg lygilega góður í að finna hin ýmsustu deilumál milli bloggara, sem hann hefur svo lúmskt gaman af að blanda sér í. Hann skrifar reyndar ekkert um hagfræði, sem er mínus en það er þó fullt af gaurum, sem sjá fyrir því: 1 2.

Allavegana, þá er Svansson að benda á einhverjar deilur í mínum gamla skóla, Verzló. Þar sagði víst féhirðirinn af sér fyrir jól og hann virðist vera snillingur að dragast inní önnur deilumál innan skólans. Reyndar minnir þetta mjög mikið á svipuð mál, sem komu upp fyrir einhverjum 7-8 árum og Jens PR og Geir Gests skrifuðu um í 10 blaðsíðna grein, “Brestir og blóðug barátta”, sem birtist í 64. árgangi Verzlunarskólablaðsins, en ég sat í ritstjórn þess blaðs. Þá sögðu bæði féhirðirinn og forsetinn af sér vegna ásakana um spillingu (að mig minnir).

Allavegana þá á Stefán Einar í stöðugum deilumálum við aðra í skólanum og þá sérstaklega þá, sem vinna í nemendafélaginu. Sjá til dæmis umfjöllun hjá Svansson hér. Það er alveg lygilegt hvað Verzlingar taka þessa nemendafélagspólitík alvarlega. Ég var talsvert mikið í félagslífinu og hafði alveg ótrúlega gaman af. Ég hefði hins vegar aldrei nennt þessu ef að það hefðu verið stanslaus deilumál einsog virðast vera núna innan félagsins. Ég held að menn séu að taka sig full hátíðlega í þessum embættum. (n.b. Ég þekki ekki neinn aðila í þessum málum persónulega, ég hef bara lesið um þetta á netinu.)

Þessi færsla hjá Stefáni er til dæmis nokkuð mögnuð. Þar vitnar Stefán í einkasamtöl, sem ég held að menn ættu ekki að gera á bloggsíðum.

Blogg og stjórnmál

Það er annars eitt, sem ég var að pæla í. Það er nefnilega þannig að margir, sem hafa mjög vissar skoðanir á hlutunum og eru kannski sterkir í ungliðahreyfingum stjórnmálaflokkanna, eru með bloggsíður. Þar eru menn oft mjög óvægir í gagnrýni á stjórnmálamenn og aðra. Hvernig verður það ef þessir menn fara seinna á ævinni í framboð. Ætli þeir muni vilja eyða blogginu, þar sem þar leynast ábyggilega óþægileg ummæli

Stefán Einar virðist líta út einsog framtíðar stjórnmálamaður. Hann fer hins vegar mikinn í gagnrýni á alla vinstri menn, kallar þingflokksformann Samfylkingarinnar “ein allra óhentugasta konan sem komið hefur inn í pólitík á síðustu árum” og segir svo að Ingibjörg Sólrún sé “sjálfhverfasta manneskja stjórnmálanna”. Gæti ekki verið svo að þetta yrði notað gegn honum seinna meir?

Nú eru líka menn einsog Ármannn Jakobsson, sem eru nokkuð áberandi í stjórnmálaumræðunni. Hann var nokkuð hispurslaus á síðunni sinni og kallaði Samfylkinguna “búllsjitt” flokkinn, sem er sennilega ekki jákvætt ef að hann vill í alvöru koma á vinstri stjórn. Ármann áttaði sig hins vegar á því að vegna þess að hann er svona áberandi, þá byrjuðu alltíeinu blaðamenn að lesa síðuna og vitna í hana. Þeir, sem skrifa blogg í dag gætu hins vegar áttað sig á því seinna meir (þegar þeir eru kannski orðnir þekktari í þjóðlífinu) að bloggsíðan eigi eftir að innihalda pistla, sem gætu komið þeim illa.

Ég er viss um að þessi síða mín inniheldur fullt af ummælum, sem gætu komið sér illa seinna meir. Ég er hins vegar ekki á leiðinni í framboð.

Tengt þessu, þá er Bjarni með skemmtilegar pælingar um vægi stjórnmálaumræðu á bloggsíðum.

Ein ummæli hingað til