Feb 13 2003
Blindskák
Helgi Áss, fyrrum bekkjarfélagi minn úr Verzló, sló í gær Íslandsmetið í blindskák þegar hann tefldi við 11 manns.
Þetta er alveg hreint ótrúlega magnað. Ég man að í Verzló þá tefldi ég, ásamt tveimur öðrum strákum úr bekknum, blindskák við Helga inná Marmara. Ég er nú enginn skák sérfræðingur en tel mig vera skítsæmilegan. Ég hélt nú að ég myndi allavegana eiga séns, þar sem þetta var nú einu sinni blindskák og hann var að tefla við tvo í viðbót. En andskotinn sjálfur, Helgi mátaði okkur alla á einhverjum 10-15 mínútum.
Ég bara hreinlega get ekki skilið hvernig þetta er hægt.
5 Ummæli við færsluna “Blindskák”
# - þann 14 Feb 2003 klukkan 9:14
Af hverju flokkar þú þessa færslu undir “íþróttir”? :tongue:
# - þann 14 Feb 2003 klukkan 9:34
Er ekki Skáksambandið aðili að ÍSÍ -hvað einkaskoðun sem menn hafa svo á því?
# - þann 14 Feb 2003 klukkan 9:37
Nóbb
Skákíþróttin er ekki í ÍSÍ – ÍSÍ sambandsaðilar.
# - þann 14 Feb 2003 klukkan 10:19
Mér finnst að Gettu betur ætti að heyra undir ÍSÍ!
# - þann 14 Feb 2003 klukkan 15:00
Mig minnti endilega að Skákin hefði slæðst þarna inn -var þessu breytt?
Skákin er íþrótt skv. ÓL vefnum!
Ég fann ekki ,,Guess Better” á þeim vef :biggrin2: