Mar 20 2003

Stríð – blogg frá Bagdad

uppfærði klukkan 9:09 í flokkinn Stjórnmál

Jæja, þá er þetta víst byrjað. Ég hef nú ekki mikið að segja, enda svosem lítið búið að gerast.

Hins vegar þá rakst ég á mjög athyglisverða bloggsíðu, sem er skrifuð frá Bagdad. Já, internetið er magnað.

3 ummæli hingað til

3 Ummæli við færsluna “Stríð – blogg frá Bagdad”

  1. Ingibjörg
    # - þann 20 Mar 2003 klukkan 13:40

    Blessaður….

    Frábært með þessa bloggsíðu..var einmitt að spá í því á leiðinni í skólann í morgun að það vantaði algjörlega fréttaflutning frá öðrum cnn og bbc…maður er alltaf hálfmataður…

    Þetta er allavega byrjun og skemmtilegt að lesa….

  2. Sveinn
    # - þann 20 Mar 2003 klukkan 16:12

    Mjög gott – félagi minn var staddur í Palestínu í 5 mánuði síðasta vor. Fréttaflutningurinn frá honum var töluvert á annan veg en sá sem við fengum, hvað þá fréttir frá CNN. Vart verður hægt að taka mark á bandarískum og breskum fréttamiðlum í þessu stríði. Vonum því að netið haldi sem lengst hjá þessum kappa.

  3. Einar Örn
    # - þann 21 Mar 2003 klukkan 13:28

    Smá viðbót við þetta, sem verðskuldar varla nýja færslu.

    Allavegana, þá eru hér athygilsverðar pælingar (og smá rannsókn) á því hvort Salem sé í raun og veru að blogga frá Bagdad. Sá, sem athugaði þetta telur að svo sé.