Mar 21 2003
Ungfrú Vesturland
Ja hérna, ég rakst á þessar myndir af keppendum í Ungfrú Vesturland í gegnum batman.is.
Það er nokkuð ljóst að þessi ljósmyndari á ekki mikla framtíð fyrir sér í fyrirsætuljósmyndun. Myndirnar eru teknar á einhverju safni og það er einn líkast því að stelpurnar eigi að vera algert aukaatriði. Til dæmis er þessi stelpa að þvælast inná mynd af þessu fallega stýri.
Og þessi stelpa sést hreinlega ekkert á myndinni. Ég á allavegana erfitt að gera upp við mig hvort hún sé sæt eða ekki. Mér sýnist hún þó vera sæt.
Og hvað er þetta?
2 Ummæli við færsluna “Ungfrú Vesturland”
# - þann 25 Mar 2003 klukkan 23:51
var ánægð
# - þann 05 Apr 2003 klukkan 12:00
Skemmtileg komment. Það var greinilegt að mótorhjólið var aðalatriðið á myndinni.