May 30 2003
Nýr Serrano
Jæja, þá er það skref 2 í plani okkar Emils um að yfirtaka heiminn með mexíkóskum veitingastöðum:
Áðan opnuðum við nýjan Serrano stað! Staðurinn er staðsettur að Hafnarstræti 18, við hliðiná Nonnabitum (staðurinn liggur við Lækjartorg).
Þarna verður boðið uppá sama góða matinn í þægilegu umhverfi. Um helgar verður opið langt fram á nótt.
Annars eru síðustu dagar búnir að vera léttgeðveikir. Emil ákvað að þessi vika myndi henta vel til að skella sér til Spánar, svo ég hef staðið einn í stappi við iðnaðarmenn, sem eru alveg sér þjóðflokkur. En þetta er búið að vera ofboðslega gaman.
Ég var að koma heim eftir öll lætin en við opnuðum klukkan 6. Ætla að skella mér í sturtu og svo fer ég aftur niður eftir.
Ég hvet auðvitað alla til að skella sér á Serrano. Allir fá ókeypis gos með burritos (tilboðið gildir bara til miðnættis föstudag, laugardag og sunnudag). Við verðum með opið langt fram á morgun, eða til klukkan 5
Uppfært: Þetta er mynd, sem ég tók af staðnum í dag. Á bara eftir að tengja ljósaskiltin
9 Ummæli við færsluna “Nýr Serrano”
# - þann 30 May 2003 klukkan 19:51
Er Akureyri þá ekki næsta mál a dagskrá:)
# - þann 30 May 2003 klukkan 20:05
Til hamingju Einar bissnisskall.
Ég át einu sinni á Serranos í Kringlunni og var almennt mjög kátur með þá lífsreynslu. Ég var bara að átta mig á því núna þegar ég sá lógóið með færslunni að þetta er sami skyndibitastaðurinn og þú rekur.
Ég fer næstum aldrei í Kringluna, en er oft að rottast í miðborginni, þannig að ég er glaður með þessa viðbót við skyndibitaflóru miðborgarinnar.
# - þann 30 May 2003 klukkan 20:28
snilld! var að koma úr Kringlunni saddur og sæll eftir að hafa gætt mér á burito no 4. Þannig að þetta er frábærar fréttir að þið voruð að opna í næsta nágrenni við Tíkarból…
# - þann 30 May 2003 klukkan 20:46
vá til hamingju gæ :biggrin2:
# - þann 31 May 2003 klukkan 1:08
Til hamingju með nýja staðinn. Serranos er nokkuð góður.
Strumpakveðjur
# - þann 31 May 2003 klukkan 11:56
Til hamingju strákar.
Gangi ykkur vel (og megi ég leggja mitt af mörkum í að svo verði með miklu áti).
kv bió
# - þann 31 May 2003 klukkan 15:56
Mmmm… loksins matur eftir miðnætti sem manni verður ekki illt af (fyrir utan Bæjarins beztu, sem er eiginlega ekki matur, meira svona ritúal)
# - þann 02 Jun 2003 klukkan 12:08
Er ekki bodid upp a heimsendingu til Danmerkur? Eg er til!
# - þann 06 Jun 2003 klukkan 11:22
MAssa múv. gott að fá svona sjitt rétt hjá vinnunni minni :biggrin2: