Jun 10 2003

Endalok Siðmenningar?

uppfærði klukkan 22:26 í flokkinn Sjónvarp

extrememakeover.jpgVá, ég hélt að það hefði einhverju hámarki verið náð með þessum Who wants to be a Playboy Playmate þætti, sem var sýndur á Skjá Einum fyrir einhverjum vikum.

Ég rakst hins vegar á þennan þátt: Extreme Makeover, sem er sýndur á ABC í Bandaríkjunum. Hann byggist á því að þáttakendur eru sendir í fjölda lýtaaðgerða til að bæta útlit sitt. Hrein snilld!!!

Hér má sjá fullt af “Fyrir og Eftir myndum” Þar var meðal annars þessi John, sem fór í andlitslyftingu, augnlyftingu, lét sprauta fitu í kinnarnar og fékk hvítari tennur. Vá, hvað ég þarf að sjá þennan þátt! :)

2 ummæli hingað til

2 Ummæli við færsluna “Endalok Siðmenningar?”

  1. Lubbi Tíkarson
    # - þann 10 Jun 2003 klukkan 22:43

    iss þú kannt bara ekki gott að meta! :smile:

  2. Ragnar
    # - þann 10 Jun 2003 klukkan 22:49

    Já, siðmenningin er sannarlega hvergi meiri en í landi frelsisins.

    Einar – Slóðin á þetta komment er sem hér segir: http://www.danol.is/mt/mt-comments.pl?entry_id=4407

    Sá allt í einu faviconana breytast úr e í d …