Jun 24 2003

Fríííí!!!

uppfærði klukkan 16:45 í flokkinn Dagbók

Jei! Ég er kominn í frí. Heila viku! Ég hef ekki verið svona lengi í fríi á Íslandi síðan ég var 12 ára að ég held. Dan vinur minn (mynd 1 2) frá Bandaríkjunum er að koma til landsins í fyrramálið.

Planið er að túristast smá um næsta nágrenni borgarinnar og djamma fullt. Ó, það verður gaman.


Annars held ég að ég sé búinn að ákveða að breyta um starfsvettvang. Ég ætla að verða körfuboltaþjálfari. Það hlýtur að vera léttasta starf í heimi. Allavegana er bjáninn hann Kevin O’Neill, sem þjálfaði skólaliðið mitt í Northwestern (og gerði lítið annað en að tapa og rífa kjaft og fá leikmenn til að skipta yfir í aðra skóla) orðinn aðalþjálfari hjá Toronto Raptors. Og Tim Floyd, sem þjálfaði Chicago Bulls eftir að Jordan hætti og á lélegasta vinningshlutfall allra tíma, er orðinn þjálfari hjá New Orleans. Magnað!


Og þetta er nokkuð magnað: Kveðjuskilaboðin hjá netfyrirtækjum, sem fóru á hausinn. (via Metafilter)

8 ummæli hingað til

8 Ummæli við færsluna “Fríííí!!!”

  1. Ágúst
    # - þann 24 Jun 2003 klukkan 21:18

    Vó! Hvenær flutti Charlotte til New Orleans?? :shock:

    Já, það er langt síðan ég fylgdist með NBA síðast. Eiginlega allir hættir eða orðnir gamlir sem voru hetjurnar í þá daga. Enda rak ég upp stór augu þegar San Antonio og New Jersey voru að spila til úrslita.

  2. Einar Örn
    # - þann 24 Jun 2003 klukkan 22:25

    Hornets fluttu í fyrra.

    Ég held að ég hafi tapað rosalega miklu af áhuga mínum á NBA núna í ár þegar þessi prumplið voru að keppa til úrslita. Það vantar Lakers, Celtics eða Bulls í úrslitin. Annars er ekkert fjör að horfa á þetta! :confused:

  3. katrín
    # - þann 25 Jun 2003 klukkan 9:30

    og knicks!!!!!!!!!

  4. La
    # - þann 25 Jun 2003 klukkan 14:31

    Hey, ætluðuð þið ekki að byrja saman?

  5. katrín
    # - þann 25 Jun 2003 klukkan 21:42

    júmm við erum saman, hvað viltu veislu eða? :biggrin2:

  6. Scweppes
    # - þann 27 Jun 2003 klukkan 12:27

    Hei – þú færð enga pakka nema þú haldir veislu…

  7. Oli
    # - þann 30 Jun 2003 klukkan 11:32

    Hmmm, eg heyrdi auglysingu fra ykkur a X-inu. Segir madur ekki Mexikoskur matur frekar en Mexikanskur?

  8. Einar Örn
    # - þann 01 Jul 2003 klukkan 18:59

    Jamm, handritið sagði mexíkóskur, en þulurinn sagði mexíkanskur og ég nennti ekki að gera mál úr því :smile: