Aug 01 2003

Hæ hó jibbí jei

uppfærði klukkan 14:57 í flokkinn Dagbók

Vúhú, ég er á leiðinni í útilegu!! Og það á stuttbuxum!! Ég er að spá í að pakka bara stuttbuxum og stuttermabol og sólarvörn. Ég er hins vegar ekki fífl og tek því regngalla með mér.

En allavegana veðrið er yndislegt. Vona bara að þetta verði einsog á Uxa fyrir einhverjum árum. Það er eina verslunarmannahelgin, sem ég man eftir í góðu veðri.

Ein ummæli hingað til

Eitt ummæli við færsluna “Hæ hó jibbí jei”

  1. JBJ
    # - þann 01 Aug 2003 klukkan 16:19

    Uxi var snilld. Reyndar vont að vakna við dalalæðu sem bleytti allt sem hægt var að bleyta.