Aug 17 2003
Afmæli og þynnka
Gærkvöldið var mun betra en helvítis föstudagskvöldið. Var með grillpartí fyrir vini og svo fórum við niður í bæ, þar sem voru víst einverjir tónleikar. Hins vegar var svo geðveikt mikið að gera á Serrano að ég þurfti að hjálpa til þangað til að flugeldasýningin byrjaði, þannig að ég sá ekkert af tónleikunum. By the way, í hvernig heimi lifum við þegar að Qurashi hitar upp fyrir Sálina og Stuðmenn! Af hverju spiluðu Quarashi ekki síðast?
Ég týndi svo öllum vinum mínum og auðvitað hrundi þetta GSM net hjá “Og Man United”. Ég fór á Hverfisbarinn að leita að fólki en enginn var þar. Svo loksins náði ég í vin minn, sem er með síma hjá Landssímanum (Guð blessi þessi ríkisfyrirtæki) og fór ég því á Sólon. Þar sá ég mína fyrrverandi, sem er alls ekki gott fyrir geðheilsu mína og vilja til að djamma. Á Sólon var samt fínt. Samt gerðist eiginlega ekkert þar inni.
Í dag á ég sem sagt afmæli.
Hvað vil ég í afmælisgjöf?
Að Liverpool vinni fucking Chelsea peningavélina. Þá verð ég glaður og hress og þá mun þessi þynnka hverfa einsog skot.
11 Ummæli við færsluna “Afmæli og þynnka”
# - þann 17 Aug 2003 klukkan 13:48
Til hamingju með afmælið!
# - þann 17 Aug 2003 klukkan 14:27
Til hamingju með afmælið
# - þann 17 Aug 2003 klukkan 15:07
Til lukku með daginn!
# - þann 17 Aug 2003 klukkan 17:14
úff ekki rættist óskin þín… því er nú helvítis ver
en verð samt að óska þér til hamingju
# - þann 17 Aug 2003 klukkan 17:17
Já til lukku með afmælið, hva orðinn 19??
# - þann 17 Aug 2003 klukkan 21:35
Takk kærlega
Jamm, þetta var hræðilegt með óskina mína. Maður biður um einn hlut í afmælisgjöf en fær það svo ekki. Til vara bað ég um 1 – Sæta og skemmtilega kærustu, 2 – Að Cubs ynnu deildina sína 3 – Að Liverpool yrðu enskir meistarar 4 – Endalok hungurs í heiminum og 5 – Frið á jörð.
Víst að Liverpool óskin mín rættist ekki, þá vona ég að þetta komi í staðinn. :biggrin2:
# - þann 18 Aug 2003 klukkan 1:20
Við leggjumst öll á bæn fyrir þig, 2 af 5 er allavega möst :blush:
# - þann 18 Aug 2003 klukkan 1:52
Skondið, ég heiti líka Einar Örn og átti afmæli í gær! :biggrin2:
# - þann 18 Aug 2003 klukkan 14:46
til hammó með ammó sæti, ekkert verið að bjóða manni í grillið!
# - þann 18 Aug 2003 klukkan 19:25
Takk takk
Náttúrulega skandall að maður skuli ekki bjóða netkærustunni! :blush:
# - þann 29 Jan 2004 klukkan 15:03
:rolleyes: hæ ég vil sögu og bæ æææææææææææææææ