Sep 13 2003

Justin Timberlake

uppfærði klukkan 13:39 í flokkinn Tónlist

Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að þessi færsla mun valda því að fjölmargir vinir mínir munu stórlega efast um geðheilsu mína. Eflaust eiga einhverjir fleiri eftir að hafa áhyggjur af því að tónlistarsmekkur minn sé í rúst. En allavegana…

Justified, nýja platan með Justin Timberlake er frábær!

Holy Shit, ég sagði það!

Bara að taka það fram að þá fyrirleit ég NSync og allt, sem viðkom þvílíkri tónlist. Ég hef ávallt pælt mikið um tónlist og hef ekki nennt því að hlusta á tónlist, sem 14 ára stelpur dýrka.

Hins vegar þá kviknaði smá áhugi hjá mér á Justin Timberlake þegar ég las þessa færslu hjá Matt Haughley. Í framhaldinu kíkti ég á Rollinstone og sá að platan fékk Fjórar stjörnur af fimm!! Það er lygilega góð einkunn, því Rollingstone gefa nánast aldrei 5 stjörnur og því er 4 stjörnur vanalega merki um frábæra plötu (til samanburðar þá fékk Ok Computer 4 stjörnur og Nevermind með Nirvana bara 3). Þá rifjaðist líka upp fyrir mér blaðaviðtal við Pál, gítarleikara í Maus, þar sem hann talaði um að þessi plata innihéldi eðalpopp.

Ég held að það sé besta lýsingin á plötunni. Þetta er popp af bestu gerð. Sem betur fer eru ballöðurnar í algjöru lágmarki, enda vilja popparar oft falla í þá gryfju að fylla plötur með einhverjum alltof væmnum ballöðum. Meira að segja þá er ein ballaðan, Cry Me A River, frábært lag.

Í meirihluta á plötunni eru alveg fáránlega grípandi danslög einsog Senorita, Like I Love You og Rock your body.

Ég hvet alla sem hafa afskrifað Justin frá byrjun að gefa honum sjéns. Vinsældapopp verður ekki mikið betra.

18 ummæli hingað til

18 Ummæli við færsluna “Justin Timberlake”

  1. Soffía
    # - þann 13 Sep 2003 klukkan 14:32

    Humm… ertu nokkuð ennþá fullur síðan í gær?? Ég las líka viðtalið við Palla og ég viðurkenni að það flaug gegnum huga mér að kannski væri JT ekki alslæmur. En þrátt fyrir að hafa hlustað á JT með jákvæðni í huga þá nær hann ekki að heilla mig. Og svo halda stelpur ekki vatni yfir honum??!!! Skil það ekki!!!! :smile:

  2. Einar Örn
    # - þann 13 Sep 2003 klukkan 15:18

    Neibbs, er orðinn bláedrú :-)

  3. geimVEIRA
    # - þann 13 Sep 2003 klukkan 18:05

    ;-) Velkominn í hóp hinna undrandi aðdáenda Timburvatnsins. Ég fór að fíla hann þegar hann var með klikkað atriði í Leno – hann er svakalegur dansari, en það kom ekkert niður á tónlistinni. Ég keypti Justified fljótlega eftir það. Platan batnar bara og batnar við hverja hlustun, hann er ferlega hæfileikaríkur drengurinn.

    There I said it.

  4. Anna
    # - þann 13 Sep 2003 klukkan 20:35

    mér finnst hann töff :smile:

  5. Elva
    # - þann 14 Sep 2003 klukkan 18:13

    :biggrin: mer finnst hann gegt SEXY :tongue:

  6. JT
    # - þann 16 Sep 2003 klukkan 8:30

    JT er bæði ófríður og óhemju leiðinlegur, ég á bágt með að trúa því að hann sé að gera eitthvað sem er nýtt undir sólinni og ætla því að láta mig bara hlakka áfram til næstu MUSE plötu, því það er tónlist!

  7. Krissa
    # - þann 17 Sep 2003 klukkan 20:09

    Mér finst Justin sætur og diskurinn hans er geðveikur :wink:

  8. Jensi
    # - þann 17 Sep 2003 klukkan 23:19

    Ég er ógeðslega sammála Krissu, mér finnst Justin ekki bara sætur heldur ógeðslega sætur og mér finnst diskurinn hans ekki bara geðveikur heldur alveg ógeðslega geðveikur.

  9. Einar Örn
    # - þann 17 Sep 2003 klukkan 23:35

    :biggrin2:

    Ég var alltaf öruggur um að það yrði djúp og málefnaleg umræða um þessa færslu. Sérstaklega þegar ég myndi byrja að fá “hit” af leit.is. Gaman að sjá hvernig þetta þróast.

  10. Dabba
    # - þann 22 Sep 2003 klukkan 19:40

    Mér fynnstjustin ógeðslega ljótur entónlistin hans er góð!!! :wink: :biggrin:

  11. skrunka
    # - þann 09 Oct 2003 klukkan 10:13

    justin er bara KROPPUR!!!! :wink:

  12. Silvía
    # - þann 11 Oct 2003 klukkan 12:16

    mæli með myndum af frægu fólki http://www.christinaaguilera.com

    http://www.jenniferlopez.com

  13. Bára
    # - þann 16 Oct 2003 klukkan 16:35

    Mér finnst hann gett sexy hann er gett góður en ekki jafn góður og Michael Jackson

  14. íja píja
    # - þann 19 Oct 2003 klukkan 10:05

    mér fynnst justinn geggjað sætur og diskurinn hanns geggjaður :blush: :wink:

  15. Guðrún ;)
    # - þann 19 Oct 2003 klukkan 13:19

    justin timberlake er algjört babe!!!! :biggrin: hann syngur líka mergjaðslega vel mar…. :smile: of diskurinn hans rockar :biggrin2:

  16. Elisa
    # - þann 08 Nov 2003 klukkan 18:25

    hæ ég ættlaði að fara á þessa síðu til að leyta að einhverju um Justin Timberlake en því miður það er allt suck-að á þessari síðu!!!!!! TO BAD FOR YOU

  17. Kristveig
    # - þann 17 Nov 2003 klukkan 19:35

    Justin er ógislega sætur :blush:

  18. Mæja
    # - þann 14 Dec 2003 klukkan 21:49

    Mér finnst hann allveg ágætur poppari en ekki allveg..En mér fannst hann ekki á að hæta með brintey Spears.. :confused: