Sep 30 2003
Niðurrifsstarfsemi
Núna er niðurrifsstarfsemin að hefjast. Ég er kominn á hlýrabolinn, með kúbeinið í hönd.
Er hægt að hlusta á eitthvað annað lag en Break Stuff með Limp Bizkit akkúrat núna. Ég veit samt ekki alveg hvort nágrannarnir verða sáttir við samhljóm brotnandi parkets og öskrandi Fred Durst.
Nú má þetta helvítis parket fara að vara sig!!
2 Ummæli við færsluna “Niðurrifsstarfsemi”
# - þann 02 Oct 2003 klukkan 19:30
vó þarftu aðstoð??.. ekki heyrst í þér í næstum tvo daga
# - þann 02 Oct 2003 klukkan 20:31
Nei, þetta er allt að koma. Parketið er næstum því allt farið og ég er við að klára langa færslu.