Nov 14 2003
Ó, þetta er of fyndið
Af einhverjum ástæðum slökkti ég ekki á sjónvarpinu eftir að ég hafði þolað lygar Skjás Eins, sem sviku loforð sitt um að sýna lokaþáttinn af Bachelor.
Allavegana, ég horfði á Jay Leno af því að Triumph, the insult comic dog var gestur hans. Og þvílík snilld! Ég hef ekki hlegið svona mikið lengi. Ég fór á netið eftir þáttinn og fann nokkur vídeó með Triumph. Vá, hvað þau eru fyndin.
Bestu eru án efa Judging Simon, MTV, Star Wars og Westminster 99 og 2000. Æ, þetta er allt snilld. Þið verðið að skoða þetta.
5 Ummæli við færsluna “Ó, þetta er of fyndið”
# - þann 14 Nov 2003 klukkan 12:53
mér finnst svo sætt að strákar horfi á batsjölör, færð plús í kladdan sko.
# - þann 14 Nov 2003 klukkan 15:49
Hvað er málið með að horfa á piparsveininn!? Ég gúddera JT en ekki piparsveininn! Iss…
# - þann 14 Nov 2003 klukkan 20:33
Hmmm… ég veit ekki alveg hvað það er, sem heillar við The Bachelor. Ætli maður fái ekki eitthvað skrítið kick að sjá fullt af sætum stelpum algjörlega tapa sér yfir einhverjum lúða. Það gefur manni ferska sýn á lífið
# - þann 17 Nov 2003 klukkan 22:29
Fór á leit.is og skrifaði “fyndið” fann þar linkinn um Triumph. OMFG, shitt hvað ég er búin að drepast úr hlátri yfir þessu. Þetta er viðbjóðslega fyndið. Þakka þér fyrir þessa snilld dauðans.
# - þann 21 Mar 2004 klukkan 15:56
hæ hæ við erum með þátt heima hjá okkur og farðu á heimaaíðu okkar. :biggrin: