Dec 15 2003
Houllier heim!
Ég hef staðið mig að því í dag að kíkja nokkrum sinnum á íþróttavef BBC og hafa átt fastlega von á því að efsta fréttin væri sú að Gerard Houllier hefði loksins verið rekinn.
Ég hef ekki miklu að bæta við vonbrigðapistilinn minn frá því á laugardag og því ætla ég bara að benda á tvo frábæra og einlæga pistla, skrifaða af sönnum Liverpool aðdáendum:
An end of year message to Gerard Houllier Time for change
Báði hafa þessir pistlahöfundar varið Houllier í gegnum ansi mikla erfiðleika. Alveg einsog ég hafa þeir fengið nóg.
Lokaorð Alex Malone segja allt, sem þarf að segja um Gerard Houllier:
Ég er búinn að missa alla trú á Houllier. Núna ætla ég ekki að láta tvo, þrjá sigurleiki plata mig til að halda að Houllier geti beint liðinu í rétta átt. Þetta lið hefur valdið mér vonbrigðum einum of oft.
2 Ummæli við færsluna “Houllier heim!”
# - þann 16 Dec 2003 klukkan 17:05
OK. Heim með kallinn. En hvern viljum við í staðinn??????
# - þann 16 Dec 2003 klukkan 17:32
Kevin Keegan eða Dalglish. Bara ekki Martin O’Neill (af því að hann dýrkar Heskey og Heskey er Anti-Kristur!!)
Helst Keegan!