Skráarsafn fyrir January, 2004

Jan 30 2004

Vinna=Spennó, Einkalíf=leiðinlegt

skrifaði í flokkinn Dagbók

Jedúddamía hvað það er lítið að gerast í mínu lífi utan vinnu. Síðustu vikur hafa verið mjög spennandi, skemmtilegar og erfiðar í vinnunni en utan vinnu hefur nánast ekki neitt gerst.

Jú, hélt starfsmannapartý Serrano hérna á föstudaginn, sem var alger snilld. Fyrir utan það hefur nánast ekkert gerst. Það er hálf skrítið að hafa ekkert að gera á kvöldin núna þegar mesta íbúðarvesenið er búið í bili.

Þegar vinnan spilar svona stóran hluta í lífi manns, þá er nú ekkert ýkja spennandi að halda úti þessari vefsíðu. Flestallt af því, sem ég geri í vinnunni vil ég ekki tala um, og auk þess efa ég að það yrði mjög spennandi.

Á morgun er ég að fara á ISM, sem er stærsta sælgætissýning í heimi, haldin í Köln. Það er tiltölulega stutt síðan ég var í Köln síðast og þetta er svosem ágætisborg. Höfum smá tíma lausan og ætli maður versli ekki eitthvað en það er fullt af skemmtilegum búðum í miðbænum.

Ok, þessi færsla er leiðinlegri en ég þorði að trúa. Vonandi hef ég eitthvað meira spennandi að skrifa um þegar ég kem heim.

4 ummæli hingað til

Jan 29 2004

MT uppfærsla

skrifaði í flokkinn Netið

Uppfærði MT uppí útgáfu 2.661 eftir að hafa lesið þessa færslu hjá Má. Hef fengið smá kommenta spam, en aðallega referrer spam yfir á einhverjar þýskar síður. En allavegana, þá væri gott að fá að vita ef eitthvað er í ólagi við síðuna.

Ég var áður með útgáfu 2.6, en fann enga sérstaka ástæðu til að uppfæra (mig minnti einhvern veginn að það hafi alltaf verið mun meira vesen en það var) fyrr en að ég sá þessar pælingar um kommentaspam.

Comments Off

Jan 25 2004

Skírlífi er lausn vandans!

skrifaði í flokkinn Netið

Í framhaldi af skrifum um stefnuræðu Bush, þá er hérna snilldar listi, sem einhverjir Kristnir spekingar hafa sett saman:

100 atriði, sem pör geta gert í stað þess að stunda kynlíf. Þetta á víst að hjálpa fólki að forðast kynlíf einsog heitan eldinn þangað til það giftir sig. (via BB)

Meðal annars:

  1. Put together a puzzle with 1,000 pieces.
  2. Play hide-and-seek in a cornfield.
  3. Pray together.
  4. Do a crossword puzzle.
  5. Make paper airplanes.
  6. Color eggs–even if it isn’t Easter.
  7. Go to a G-rated movie.
  8. Read 1 Corinthians 13.
  9. Run errands for your parents.

Jammmmm.

Ein ummæli hingað til

Jan 25 2004

Kort

skrifaði í flokkinn Ferðalög

Ég hef nokkuð lengi leitað að svona síðu og fann hana loksins á Metafilter. Á síðunni getur maður sett inn þau lönd, sem maður hefur farið til og þá býr síðan til kort af heiminum með þeim löndum merktum inná.

Síðan er reyndar ekki fullkomin, þar sem kortið er heldur lítið. En allavegana, ég merkti inn mín 31 lönd (13% af heiminum) og útkoman var svona (smellið á kortið til að fá stærri útgáfu):

Ef þið prófið þetta sjálf, endilega skellið kortinu ykkar í ummælin.

Uppfært: Núna er búið að bæta inn korti, þar sem maður getur valið hvaða fylki í USA maður hefur heimsótt.

Hérna er mitt kort:

14 ummæli hingað til

Jan 23 2004

Vikan búin

skrifaði í flokkinn Dagbók

Vá, hvað þetta er búin að vera vangefin vinnuvika. Ég hef aldrei farið að sofa fyrir klukkan 1 og aldrei komið heim úr vinnunni fyrir klukkan 7. Þannig að ég er frekar þreyttur í lok vikunnar. Verð að hrista það úr mér enda er starfsmannapartí á Serrano í kvöld.

Annars, þá er nýja myndbandið með Britney æææææææði!!! Mæli sérstaklega með því fyrir alla Britney aðdáendur (Emil, Friðrik, o.s.frv.). Ó, ég er ástfanginn af Britney!!!

Fyrir alla, sem vilja komast í stuð fyrir kvöldið, þá er ekkert betra en að skella Strokes á fóninn. Reptilia er lag dagsins. Ef þú kemst ekki í stuð við að hlusta á það lag, þá er eitthvað mikið að heima hjá þér.

2 ummæli hingað til

Jan 21 2004

Stefnuræða Bush

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Ég var að enda við að horfa á State of the Union ávarp George W. Bush og ef eitthvað er, þá hefur álit mitt á Bandaríkjaforseta aukist enn frekar við það áhorf.

Neeeei, djók! Alveg magnað bull á köflum í þessari ræðu. Bush endurspeglar allt, sem ég þoli ekki við íhaldsmenn. Einlæg sannfæring hans um að hann einn hafi rétt fyrir sér og viti hvað löndum sínum fyrir bestu er með öllu óþolandi.

Bush mótmælti hjónaböndum samkynheigðra, en eyddi varla einni mínútu í að tala um umhverfismál. Hvaða máli skiptir það fyrir Bandaríkjamenn og okkur öll að hommar og lesbíur fái að giftast í friði?

Einnig finnst mér mögnuð sú ótrúlega kjánalega trú íhaldsmanna í Bandaríkjunum að hægt sé að predika skírlífi fyrir unglingum og að það sé einhvern veginn góð lausn á vandamálum kynsjúkdóma. Ekki minnst einu orði á smokka, en peningum skal þess í stað eytt í að predika skírlífi.

Ég spyr, hvernig í andskotanum á að vera hægt að predika skírlífi til handa 16 ára gömlum strákum? Eina skírlífið, sem sá hópur stundar, er ekki af sjálfsdáðum.

Annars fjallar Ágúst Fl. líka um ávarpið í ágætum reiðipistli

3 ummæli hingað til

Jan 21 2004

Gjaldtaka á leit.is

skrifaði í flokkinn Netið

Magnað: Leit.is ætlar að taka upp gjald til fyrirtækja til að þau haldist inní leitargrunninum (via Katrínu)

Nokkuð athyglisverð orðaskipti inná “Hjalinu” milli höfundar þeirrar síðu og vefstjóra leitar.is. Ég sendi inn eftirfarandi ummæli:

Rakst á þessa umræðu í gegnum Katrínu. Ég verð að segja að mér finnst þessi gjaldtaka á leit.is með ólíkindum. Fólk notar leit.is af því að fær upplýsingar um það, sem það óskar sér. Ef þessar upplýsingar verða aðeins takmarkaðar við fyrirtæki, sem borga, þá er hætt við því að áreiðanleiki þessarar leitarvélar minnki enn frekar. Ég hef nokkrum sinnum talað um hversu gríðarlega óáreiðnaleg leitarvél leit.is er. Hvernig stendur til dæmis á því að þegar fólk leitar að Stalín, þá kemur mín síða fyrst upp? Á síðunni minni er ein mynd af styttu af Stalín! Eina trixið hjá mér er að setja orðið í titil pistils og þá er ég (nánast) án undantekningar kominn með efstu mönnum á leit.is? Ég held úti tveim fyrirtækjavefjum og er alls ekki sáttur við þessa gjaldtöku. Fyrir mér er þetta nánast fjárkúgun: Borgaðu gjaldið, eða við tökum þig útúr gagnagrunninum. Þú segir:
Þau fyrirtæki sem ekki borga (og vilja þar af leiðandi ekki vera inn í leitargrunninum, detta úr leitargrunninum).
Hvernig geturðu fullyrt það að skortur á vilja til að borga jafngildi ósk um að vera ekki í leitargrunninum?? Ég vil gjarnan vera inní þessum leitargrunni, en ég er ekki tilbúinn að borga fyrir það. Ég borga ekkert til Google og sé því ekki ástæðu til að borga leit.is. Mun gáfulegra væri að taka upp textaauglýsingar til hliðar við leitarniðurstöður, líkt og Google gerir. Það er mun sanngjarnari leið til tekjuöflunar.

3 ummæli hingað til

Jan 21 2004

Top Módel leiðrétting

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Hólí sjitt, var að sjá einhverja endurtekningu á þættinum af þessum America’s Next Top Model. Í gær missti ég af 5 mínútum, þar sem kærasta þessar Ebony kom í heimsókn.

Við það tilefni sagði þessi Shannon, sem mér fannst svo sæt, eitthvað á þessa leið: “I don’t approve of homosexuality, because it says so in the Bible”. JÆJA, ég er hættur að halda með henni. Hún má alveg vera sæt í friði, og hoppa uppí sitt kristna rassgat.

Díses, hvað ég þoli ekki svona þröngsýnt fólk!

Held að ég verði að horfa á annan þátt til að finna einhvern keppanda til að halda með. Adrianne fær allavegana stig fyrir að vera frá Chicago og bera “Chicago” fram með alveg indislega Sjíkagóískum hreim: “Cheek AH Ga”.

6 ummæli hingað til

Jan 19 2004

What the hell is wrong with me?

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Ég skammast mín eiginlega fyrir að segja það, en ég hafði ekki horft á einn þátt af “America’s next top model” þangað til í kvöld. Þetta er náttúrulega hneyksli, enda ég ekki þekktur fyrir að missa af “raunveruleika” sjónvarpsþáttum. Ég, sem horfi á Paradise Hotel og alla þessa snilldarþætti hafði einhvern veginn misst af þessum módelþætti.

Þetta er þáttur um mis-sætar stelpur, sem langar að verða módel. Tyra Banks stjórnar einhverri dómnefnd, sem samanstendur af henni, einhverri gamalli silíkongellu, steríótípu hommanum og steríótípu bitchy asískri gellu. Tyra, sem er æði, var eitthvað hálf skringileg í þættinum. Ef ég væri hún, þá myndi ég reka hárgreiðslumeistarann minn.

Anyhooo, stelpurnar fóru í gegnum það að leika í sjónvarpsauglýsingu án þess að tala og svo áttu þær að lesa nokkrar línur. Þetta var mörgum ofviða, enda vitum við öll hversu erfitt er að bera fram orðið “water”.

Mig minnir að það hafi verið einhverjar 7 gellur eftir í hópnum og ég verð að segja að mér fannst bara ein vera sæt (og það skýrir titilinn á þessari færslu). Mér fannst bara þessi Shannon vera sæt. Hinar voru hálf sjúskaðar þegar þær voru ekki meikaðar flott. Sú, sem datt út, leit út einosg Skin úr Skunk Anansie (sem stóð á öxlinni á mér á tónleikum í Höllinni, en það er önnur saga) og þær sem eftir eru voru ekkert til að hrópa húrra fyrir.

Ég er í raun að velta því fyrir mér hvort ég hafi bara svona skrítinn smekk á kvenfólki, eða hvort það séu bara engar gellur í þessum þætti. Var virkilega ekki hægt að finna flottari gellur í öllum Bandaríkjunum til að verða næsta súpermódelið?

En allavegana, ég held með Shannon. Jei!

8 ummæli hingað til

Jan 18 2004

Ertu metrosexual?

skrifaði í flokkinn Netið

Ok, ég veit að grundvallarregla þessarar síðu er að hafa ekki kannanir á henni. Eeen, mér fannst þessi könnun bara svo sniðug: Are You a Metrosexual? (via MeFi). Fannst þetta skemmtilegt útaf því ég var kallaður metrosexual (í gríni að ég held) í kommenti þegar ég var að tala um hárið á mér.

Allavegana, ég tók þetta próf og fékk 25 stig af 50, sem þýðir að ég er metrósexúal. Þarna voru nokkrir skemmtilegir punktar, sem að eiga að segja manni að maður sé metrosexual. Allavegana, meðal annars fékk ég stig fyrir að:

  • Það hefur verið reynt við mig af homma
  • Ég hef í alvöru verið kallaður hommi.
  • Ég hef verið með naglalakk (það var reyndar til að ég hætti að naga neglurnar, svo það er eiginlega svindl)
  • Ég hef rakað á mér fæturnar (en það var reyndar til að setja íþróttateip á lappirnar, þannig að það telur eiginlega ekki heldur)
  • Ég fer oft í viku í líkamsrækt
  • Mér finnst gaman að dansa
  • Ég les Esquire reglulega (er reyndar áskrifandi)
  • Ég horfi á Sex & The City

… og ýmislegt fleira, sem ég ætla ekki að tala um :-)

Jæja, ætla að halda áfram að horfa á amerískan fótbolta. Megi New England Patriots vinna, svo þessi íþróttahelgi fari ekki til andskotans. þessi pistill segir allt, sem segja þarf um Liverpool leikinn í gær!

8 ummæli hingað til

Jan 18 2004

Myndir – Vonandi komið í lag

skrifaði í flokkinn Netið

Ég er búinn að laga myndirnar á síðunni, samkvæmt tillögum, sem ég fékk hér.

Getur einhver, sem hefur átt við “hverfandi mynda vandamálið” að stríða, látið mig vita hvort þetta sé núna komið í lag?

Takk takk

Ein ummæli hingað til

Jan 15 2004

Negrar í 60 mínutum

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Ég var að horfa á 60 mínútur, þar sem var meiriháttar skemmtileg fréttaskýring um John Stilgoe, prófessor í Harvard. Fréttaskýringin um hann var frábær en samt þá sjokkeraðist ég talsvert þegar ég rak augun í íslenska textann við þáttinn.

Stilgoe talar nefnilega um svertingja, sem hann kallar einsog flestir hvítir í Barndaríkjunum, African-American. Og hvað orð notar þýðandinn yfir þann kynþátt? Jú, Negrar!

Kannski hef ég búið of lengi í Bandaríkjunum, en mér finnst þetta með ólíkindum ljótt orð, sem gerir lítið úr þessum kynþætti. Ég hef aldrei heyrt umræðu um orðanotkun fyrir svertingja á Íslandi. Eflaust af því að það eru svo fáir svartir á Íslandi. Ég leyfi mér þó að fullyrða að flestum sé illa við orðið negri, enda gerir það lítið úr svertingjum með að vísa til þrælkunar fyrr á tímum.

Eða er svertingi kannski líka ljótt orð? Ég hef oftast notað það, þar sem það er mótvægi við “hvítur”, sem fáum finnst vera móðgandi (allavegana ekki mér). Ég þoli hins vegar ekki þegar fólk notar orðið negri. Ég heyri það alltof oft og þá nánast undantekningalaust á niðrandi hátt um svertingja. Fyrir mér er þessi orðanotkun augljóst merki um kynþáttafordóma, sem ég hef mikla óbeit á.

29 ummæli hingað til

Jan 14 2004

Myndavesen – Smá hjálp

skrifaði í flokkinn Netið

Ok, ég held að ég viti nokkurn veginn hvað vandamálið er varðandi myndirnar. Ég þarf að fá smá hjálp. Þarf að biðja einhvern, sem á við þetta vandamál að stríða um að prófa að slökkva á browsernum (eða gera hvað sem viðkomandi gerir vanalega til að fá myndir upp aftur), og kveikja aftur á honum og fara beint á www.eoe.is/test

Endilega látið mig vita hvort síðan lagast þá (myndirnar hérna til hliðar eiga þá að hverfa en Vestmannaeyjamyndin á að sjást áfram). Takk takk :-)

3 ummæli hingað til

Jan 13 2004

Vandamál með myndir á síðunni

skrifaði í flokkinn Netið

Ok, ég ætla að biðja um smá nörda-aðstoð. Málið er að nokkrir hafa kvartað við mig varðandi hvernig þessi síðar sýnir myndir. Það virðist svo vera sem að menn lendi oft í því að bara nokkrar myndir sjáist á síðunni.

Oft hefur þetta líka þau áhrif að ef að fólk fer yfir á aðrar síður af síðunni minni, þá sér það engar myndir. Þetta virðist einskorðast við PC vélar, en ekki endilega einhverja eina útgáfu af vafra eða stýrikerfi.

Hefur einhver hugmynd um af hverju þetta getur stafað?

Uppfært: Ég setti inn fyrirspurn á Ask Metafilter og þar er ég strax búinn að fá nokkur svör og tillögur, sem ég ætla að prófa í kvöld. Það auðveldasta virðist vera að þeir, sem sjá þetta vandamál með Explorer eiga að uppfæra Explorer hjá sér. Þá lagast þetta allt :-)

9 ummæli hingað til

Jan 13 2004

Hárið mitt, þriðji hluti

skrifaði í flokkinn Dagbók

Á laugardaginn lét ég verða af því að snoða mig. Ég var kominn með algert ógeð á hárinu á mér. Nennti ekki lengur að hafa áhyggjur af síddinni eða greiðslunni eða öllu þessu kjaftæði.

Ég meina hei. Þannig að í mótmælaskyni er ég búinn að snoða mig. Er ekki ágætt að byrja þetta ár á upphafsreit?

Einar Örn með hár (á Jóladag)

Einar Örn snoðaður (12. janúar)

Uppfært: Hérna er þriðja myndin: Ég að snoða mig. Reyndar byrjaði ég bara sjálfur, en svo fékk ég aðstoð frá Þórdísi hárgreiðsluséní. :-)

9 ummæli hingað til

Jan 09 2004

Einar setur saman húsgögn á föstudagskvöldi

skrifaði í flokkinn Dagbók

Jedúddafokkingmía hvað þetta föstudagskvöld er búið að vera viðbjóðslega leiðinlegt.

Ég ákvað nefnilega fyrir nokkru að kaupa mér hillur í stofuna til þess að ég gæti losað mig við fermingarhúsgögnin mín. Ég keypti hillur í Innx og indæl afgreiðslukona þar sagði mér að samstæðan væri auðveld og skemmtileg í uppsetningu.

Jæja, hún laug! Þetta er djöfullega erfitt og veeeðbjóðslega leiðinlegt í uppsetningu. Þvílík ósköp! Ég er búinn að bogra yfir þessu kófsveittur í þrjá tíma og ég er ekki einu sinni hálfnaður. Já, ég segi það og skrifa: Sjálfur Anti-Kristur vinnur við það að hanna húsgögn hjá dönsku húsgagnafyrirtæki.

Það eina, sem stendur uppúr kvöldinu var frábær Simpsons þáttur og fyndin svínasúpa. “Stjórnarfundabrandarinn” var hrikalega fyndinn. Eða kannski er ég bara karlremba.

Já, og djöfull er “Wonder of You” með Elvis gott lag. Ójeeee.

Takk fyrir og góða nótt

6 ummæli hingað til

Jan 08 2004

Hvaða lag er ég með á heilanum?

skrifaði í flokkinn Tónlist

Ok, ég fór semsagt á Felix fyrir einhverjum vikum síðan. Þar heyrði ég lag, sem allir á staðnum virtust kunna. Ég hef hins vegar ekki hugmynd um hvaða lag þetta er.

Þetta er rólegt R&B lag, það er strákur, sem syngur/rappar og í viðlaginu er orðið “fuck” notað svona 300 sinnum. fuck all the ? and fuck all the ? Geri ráð fyrir því að þetta sé mjög nýlegt lag. Ég er búinn að vera með þetta á heilanum síðan og það er að gera mig geðveikan að vita ekki hvaða lag þetta er. Auk þess er mjög pirrandi að vera með lög á heilanum, sem maður kann ekki nema 5 orð í textanum af :-)

Ok, veit einhver hvaða lag þetta er? Katrín? Kristján? Einhver?

2 ummæli hingað til

Jan 07 2004

Siiiigur

skrifaði í flokkinn Liverpool

Aaaaaaaaah, Liverpool vann.

Ég var næstum því búinn að gleyma þessari tilfinningu. Þessari sælutilfinningu, sem maður fær eftir að hafa öskrað allt kvöldið og liðið manns vinnur. Svo stendur maður upp og einhverjir Man United aðdáendur fara að setja útá leik Liverpool eða stöðu liðsins í deildinni. Og manni er nákvæmlega sama! Þetta hljómar bara einsog suð í eyrunum á manni, því Liverpool vann og þá skiptir ekkert annað í þessum heimi máli.

Einhvern veginn var þetta allt nógu yndislega súrealískt til að virka. Liverpool höfðu ekki unnið á Stamford Bridge síðan ég var 12 ára og þegar maður sá liðsuppstillinguna fékk maður sjokk. Heskey einn frammi, BRUNO CHEYROU inná (hann hefur aldrei leikið vel fyrir Liverpool), Henchoz í hægri bakverðinum og Traore í þeim vinstri.

Svo hefst leikurinn og Bruno Cheyrou og Emile Heskey eiga stórkostlegan samleik og skora frábært mark. Svona hlutir bara gerast ekki! Svo meiðist Dudek og einhver Patrice Luzi þarf að koma inná. Ég hef lesið um þennan gaur en hafði aldrei séð hann. Við Friðrik sögðum að annaðhvort myndi hann verja frábærlega eða klúðra hrikalega. Og hvað gerist, jú hann ver frábærlega. Svo er Diouf rekinn útaf vegna þess að skóreimin hans festist í reiminni hjá Mutu (þetta gerðist í alvöru!). En þrátt fyrir það þá ná Liverpool menn að halda áfram baráttunni og Chelsea ná varla að skapa sér eitt færi.

Þetta tímabil hefur verið svo hræðilegt og það hefur gerst svooo sjaldana að mér hefur liðið vel útaf Liverpool.

Þess vegna ætla ég að leyfa mér að njóta þessa sigurs einsog við hefðum verið að vinna titil. Það er magnað hvað maður er fljótur að gleyma öllu þessu slæma.

4 ummæli hingað til

Jan 07 2004

Bjartsýnismaðurinn Einar

skrifaði í flokkinn Liverpool

Sjaldan hef ég bundið jafnlitlar sigurvonir við Liverpool leik og ég geri fyrir leikinn við Chelsea á Stamford Bridge í kvöld. Ekki nóg með að Liverpool hafi leikið hræðilega undanfarið og að 6 leikmenn úr besta byrjunarliðinu (Kirkland, Finnan, Carragher, Gerrard, Baros og Owen) séu meiddir, heldur hefur liðið ekki unnið á Brúnni í 14 ár.

Ég býst alltaf við því að Liverpool vinni. Ég man aldrei eftir að hafa horft á Liverpool leik (jafnvel í verstu svartsýnisköstum), þar sem ég á ekki von á því fyrirfram að liðið vinni leikinn. Í kvöld held ég að ég komist ansi nálægt því að búast við tapi.

En samt er ég alltaf þessi óhóflegi bjartsýnismaður. Kannski lærir Danny Murphy að spila fótbolta, kannski kemst Hamann uppað vítateig andstæðinganna, kannski verður Owen með, kannski skorar Emile Heskey, kannski á Riise sendingu á samherja. Alltaf held ég í einhverja von.

Spá mín: Jú, 2-1 fyrir Liverpool. Heskey og Pongolle skora. Og hananú!

Ætla að hitta vini mína og horfa á leikinn, sem hefst eftir klukkutíma. Get ekki beðið!

2 ummæli hingað til

Jan 07 2004

Siiiigur

skrifaði í flokkinn Liverpool

Aaaaaaaaah, Liverpool vann.

Ég var næstum því búinn að gleyma þessari tilfinningu. Þessari sælutilfinningu, sem maður fær eftir að hafa öskrað allt kvöldið og liðið manns vinnur. Svo stendur maður upp og einhverjir Man United aðdáendur fara að setja útá leik Liverpool eða stöðu liðsins í deildinni. Og manni er nákvæmlega sama! Þetta hljómar bara einsog suð í eyrunum á manni, því Liverpool vann og þá skiptir ekkert annað í þessum heimi máli.

Einhvern veginn var þetta allt nógu yndislega súrealískt til að virka. Liverpool höfðu ekki unnið á Stamford Bridge síðan ég var 12 ára og þegar maður sá liðsuppstillinguna fékk maður sjokk. Heskey einn frammi, BRUNO CHEYROU inná (hann hefur aldrei leikið vel fyrir Liverpool), Henchoz í hægri bakverðinum og Traore í þeim vinstri.

Svo hefst leikurinn og Bruno Cheyrou og Emile Heskey eiga stórkostlegan samleik og skora frábært mark. Svona hlutir bara gerast ekki! Svo meiðist Dudek og einhver Patrice Luzi þarf að koma inná. Ég hef lesið um þennan gaur en hafði aldrei séð hann. Við Friðrik sögðum að annaðhvort myndi hann verja frábærlega eða klúðra hrikalega. Og hvað gerist, jú hann ver frábærlega. Svo er Diouf rekinn útaf vegna þess að skóreimin hans festist í reiminni hjá Mutu (þetta gerðist í alvöru!). En þrátt fyrir það þá ná Liverpool menn að halda áfram baráttunni og Chelsea ná varla að skapa sér eitt færi.

Þetta tímabil hefur verið svo hræðilegt og það hefur gerst svooo sjaldana að mér hefur liðið vel útaf Liverpool.

Þess vegna ætla ég að leyfa mér að njóta þessa sigurs einsog við hefðum verið að vinna titil. Það er magnað hvað maður er fljótur að gleyma öllu þessu slæma.

8 ummæli hingað til

Eldri færslur »