Jan 06 2004

Jólin búin

uppfærði klukkan 19:30 í flokkinn Netið

Ok, jólin búin og því er ég búinn að taka niður jólaútlitið á síðunni. Smelltu á Refresh ef útlitið er eitthvað skrítið. Allavegana, þá ættu Vestmannaeyingar að geta glaðst á ný. Er ekki frá því að ég fíli gamla útlitið bara nokkuð vel eftir þessa hvíld yfir jólin.

Annars var ég að horfa á McWorld í beinni á netinu, sem er alltaf hátíð fyrir okkur Apple aðdáendur. Það var margt skemmtilegt kynnt. Aðallega nýjar útgáfur af forritum, sem ég nota mikið einsog iPhoto og svo voru kynntir litlir iPod: iPod mini, sem virka flottir.

5 ummæli hingað til

5 Ummæli við færsluna “Jólin búin”

  1. Hjördís
    # - þann 08 Jan 2004 klukkan 19:26

    já við Vestm.eyingar erum sko glaðir :)

  2. Einar Örn
    # - þann 08 Jan 2004 klukkan 22:02

    Gott mál. Hvað gerir maður ekki til að gleðja Vestmannaeyinga? :-)

  3. Hjördís
    # - þann 09 Jan 2004 klukkan 2:55

    hehe á ég að láta reyna á það ? :)

  4. Einar Örn
    # - þann 09 Jan 2004 klukkan 17:42

    Ef þú vilt. Ég held að ég eigi meira að segja ættir að rekja til Vestmannaeyja, þó maður sé ekki að monta sig af því :-)

  5. Hjördís
    # - þann 11 Jan 2004 klukkan 15:41

    það er nú samt alveg eitthvað til að monta sig af ;) allavega ekkert sem þarf að fela…. :)