Jan 21 2004
Top Módel leiðrétting
Hólí sjitt, var að sjá einhverja endurtekningu á þættinum af þessum America’s Next Top Model. Í gær missti ég af 5 mínútum, þar sem kærasta þessar Ebony kom í heimsókn.
Við það tilefni sagði þessi Shannon, sem mér fannst svo sæt, eitthvað á þessa leið: “I don’t approve of homosexuality, because it says so in the Bible”. JÆJA, ég er hættur að halda með henni. Hún má alveg vera sæt í friði, og hoppa uppí sitt kristna rassgat.
Díses, hvað ég þoli ekki svona þröngsýnt fólk!
Held að ég verði að horfa á annan þátt til að finna einhvern keppanda til að halda með. Adrianne fær allavegana stig fyrir að vera frá Chicago og bera “Chicago” fram með alveg indislega Sjíkagóískum hreim: “Cheek AH Ga”.
6 Ummæli við færsluna “Top Módel leiðrétting”
# - þann 21 Jan 2004 klukkan 1:27
hún er líka virgin!!!
# - þann 21 Jan 2004 klukkan 9:15
Er hún kannski að spara sig þangað til hún giftir sig á einhverju fylleríi í Las Vegas?
# - þann 21 Jan 2004 klukkan 9:17
Hvar finna þeir þessar gellur eiginlega?
# - þann 21 Jan 2004 klukkan 16:34
Ég skal segja þér hver vann. :biggrin:
# - þann 02 Mar 2004 klukkan 19:27
shannon er líka með hundleiðinlega rödd… :confused:
# - þann 24 Jun 2004 klukkan 14:57
Ég vil að Shanon fari í nektarmyndartöku