Feb 23 2004

Mánudagstónlist

uppfærði klukkan 22:34 í flokkinn Tónlist

Lag mánudagskvöldsins? Jú: When Will They Shoot? með Ice Cube. Víííí, hvað þetta er mikil snilld. Þurfti að fara að hlusta á eitthvað annað en Strokes, Damien Rice og Electric Six og því varð Ice Cube fyrir valinu. Tveir vinir mínir hafa lobbíað fyrir Ice Cube lengi. Gaf The Predator sjens og varð ekki fyrir vonbriðgum.

Annars eru “Fire” með Electric Six, “Room on Fire” með Strokes og “O” með Damien Rice allt ótrúlega góðar plötur, sem hafa einangrað iPod playlistann minn undanfarið.

Já, og “Award Tour” með Tribe Called Quest er líka búið að vera á repeat. Og ef ég fer ekki að fá ógeð á “Reptilia” með Strokes bráðlega, þá fer ég að efast um geðheilsu mína.

Og svo er “I believe in a thing called Love” alveg yndislega hallærislega skemmtilegt. Var að fá mér The Darkness plötuna og er að byrja að hlusta á hana. Lofar góðu.

… og mér finnst þeyttur rjómi vondur. Hvaða vitleysingi datt í hug að troða öllum þessum rjóma á Bolludagsbolur?

7 ummæli hingað til

7 Ummæli við færsluna “Mánudagstónlist”

  1. Svanhvít
    # - þann 23 Feb 2004 klukkan 23:19

    Rjómi er góður…í takmörkuðu magni allavega. Þú ert bara skrítinn :biggrin:

  2. Einar Örn
    # - þann 24 Feb 2004 klukkan 12:04

    Neibbs, rjómi er viðbjóður. Þú ert bara sjálf skrítin!

  3. Ann G
    # - þann 24 Feb 2004 klukkan 18:53

    velkomin í leikskólann.. :wink:

  4. Berglind
    # - þann 25 Feb 2004 klukkan 23:30

    Rjómi er vondur!!! (og flestar bollur líka ) Hinsvegar fann ég bollur með litlum rjóma og fullt af berjum :) Bláberjabollur í bakarínu í Árbænum :) víví einu bollurnar sem ég borða :D

  5. Einar Örn
    # - þann 25 Feb 2004 klukkan 23:38

    Nákvæmlega Berglind! Rjómi er viðbjóður. Viltu giftast mér? :smile:

  6. Berglind
    # - þann 26 Feb 2004 klukkan 17:52

    jiiii audda vil ég giftast þér :) Sólríkan sumar dag í Júní, utandyra, fuglarnir kvaka í kring, svanir synda á stöðvatninu sem er rétt hjá, einstaka hvítur fluffy skýarhnoðri er á bláum himninum……….. Segðu bara til sko ;)

  7. Einar Örn
    # - þann 26 Feb 2004 klukkan 23:49

    Vá, aldrei hefði mig grunað að hatur mitt á rjóma myndi verða þess að ég fyndi eiginkonu :-) Æði!