Skráarsafn fyrir July, 2004

Jul 30 2004

Haldið norður

skrifaði í flokkinn Dagbók

Verslunarmannahelgi og ég er á leiðinni norður á land með vinum. Vonandi verður það jafn skemmtilegt og margar fyrri ferðir mínar til höfuðstaðar Norðurlands og nágrennis.

Því verður þessi síða ekki uppfærð næstu daga en Kristján mun halda Liverpool blogginu líflegu næstu daga.

2 ummæli hingað til

Jul 28 2004

Íslenskir karlmenn og strípur

skrifaði í flokkinn Dagbók

Í morgun setti ég fram kenningu á síðunni hennar katrínar, sem ég hef lengi verið að velta fyrir mér. Það er sú kenning mín að allir íslenskir karlmenn séu með strípur.

Ég henti þessu fram, en ákvað svo eftir smá umhugsun að slípa kenninguna aðeins til. Úr varð eftirfarandi kenning: “3/4 ljóshærðra karlmanna á Íslandi eru með strípur”.

Þetta virðist kannski ekki vera byltingarkennd kenning, en samt er þetta mögnuð kenning. Ég hangi eyði mínum tíma kannski bara á svona fáránlegum stöðum, en það er ekki lengur fyndið hversu margir ljóshærðir karlmenn á Íslandi eru með ljósar strípur. Eru allir að reyna að líkjast Eið Smára, eða er þetta eitthvað annað?

Nú hef ég ekki verið með strípur síðan ég var í Verzló (í þeim skóla var hárið mitt, nánast án undantekninga, hræðilegt. Annaðhvort sökum síddar eða hræðilegs háralits) en hætti því þegar ég fór til Bandaríkjanna, enda var maður nánast litinn hornauga ef maður setti gel í hárið í háskólanum mínum. Allir voru svo ofboðslega líbó á því að maður skar sig úr ef maður greiddi sér á morgnana. Hefði ég verið með strípur þar, hefði ég sennilega verið rekinn úr skólanum.


Æi, voðalega er þetta eitthvað losaraleg færsla. Ætli þetta sé ekki bara prelude að nýrri færslu um hárið á mér, þar sem ég hef ekki skrifað um það í langan tíma (fyrir nýja lesendur, þá má fræðast um hárið mitt með að lesa þessar færslur: 1, 2 og 3).

Það hefur nefnilega margt breyst síðan ég skrifaði síðast. Ég hef nefnilega ekki verið með síðara hár í mörg ár (með sítt að aftan og allt). Ég veit að lesendur iða í skinninu eftir því að lesa um hvernig það hefur breyst síðustu vikurnar. Það verður hins vegar að bíða. Í stað ætla ég bara að benda á hvað Biblían segir um þetta allt:

No man should dye his hair

Þar segir líka:

Fleece is for exercising and snow-shoveling and-let us not forget-is manufatured from recycled soda bottles.

Já, og þetta:

Hats will make a comeback someday.
It is not that day

Mikil speki.

Og þetta er að öllum líkindum sundurleitasta færslan á þessari síðu í marga mánuði. Er þetta þreyta, Popplagið með Sigur Rós eða eitthvað verra? Ég veit nefnilega varla hvað ég á að skrifa á þessa síðu lengur. Mig er farið að hlakka Ég hlakka til helgarinnar.

8 ummæli hingað til

Jul 27 2004

Leiðinlegasti fréttamaður í heimi

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Gallinn við það að vera á viðskiptaferðalögum er að maður þarf oft að gista á hótelum, sem eru með einstaklega lélegt úrval af sjónvarspefni. Þetta á sérstaklega við um lönd einsog Þýskaland, þar sem valið stendur vanalega á milli CNN, BBC World og þýsks skemmtiefnis

Bæði CNN og BBC eru álíka leiðinlegar til lengdar, þar sem þar er endurtekinn sami klukkutíminn af efni allan sólahringinn.

CNN sker sig þó úr af einni ástæðu. Jú, á þeirri stöð er leiðinlegasti sjónvarpsfréttarmaður í heimi (og þó víðar væri leitað): Richard Quest

Ég þooooli ekki Richard Quest!

Ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa hversu mikið ég hata Richard Quest. Hann er gjörsamlega óþolandi. Á þessari síðu er nokkuð góð lýsing á því að hlusta á Quest:

The experinece of listening to Richard Quest, a CNN Europe anchor, is something akin to what it might be like to scrub my face with a cheese grater. I’m sure he’s a very intelligent guy, but he seems to have only one volume–yell. It seems he has been yelling for so long that he has blown his voice completely out, so he sounds like Harvey Fierstein doing an impression of a British soccer hooligan.

Nákvæmlega!

Ég er núna sífellt minntur á andúð mína á Quest, því ég er að fylgjast með þingi demókrata á CNN. Quest á greinilega að finna einhverjar fyndnar fréttir, en það eina fyndna við þessi skot er hversu hræðilegur hann er. Og í raun er það ekki fyndið, nema manni finnist fyndið að þjást hræðilega.

6 ummæli hingað til

Jul 25 2004

Steggjapartí

skrifaði í flokkinn Dagbók

Var í steggjapartíi í gær. Það var æði.

Við vinirnir vorum búnir að skipuleggja þetta steggjapartí fyrir Borgþór vin okkar nokkuð lengi. Ég asnaðist til að trúa veðurspánni, en það var búið að spá skýjuðu veðri fyrir laugardaginn alla vikuna. Veðrið í gær var hins vegar með ólíkindum gott.

Við fórum með stegginn í listflug, sjóstangveiði, fótbolta og sund. Veðrið var æði allan daginn og við vorum allir brunnir í andlitunum, enda úti allan daginn. Við kíktum svo í bæinn og enduðum á Hverfis. Eftir að hafa andað að mér reykmettuðu loftinu á barnum fattaði ég að ég var talsvert drukknari en ég hafði haldið og ákvað því að rölta heim í Vesturbæinn. Það er eitthvað mikið að þegar ég nenni ekki að vera lengur í bænum.


Ég hef oft verið hressari en ég var í morgun. Ef það er eitthvað verra en að vakna þunnur, þá er það að vakna þunnur í íbúð fullri af drasli og tómum bjórdósum. Fékk hjálp við að þrífa og nú lítur þetta allt betur út.

Nú stefnir allt í það að innan mánaðar verði fjórir af mínum bestu vinum giftir. Það er helvíti magnað.

2 ummæli hingað til

Jul 25 2004

Fótbolti á Ægissíðunni

skrifaði í flokkinn Myndablogg

aegis.jpg

Comments Off

Jul 22 2004

Enski boltinn á ensku

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Liverpool blogg: Metnaðarleysi Skjás Eins.

Mér fannst þetta eiga við á þessari síðu, en ég nenni ekki að kópera greinina hingað.

3 ummæli hingað til

Jul 21 2004

Frestun kosninga í Daily Show

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Fyrir alla, sem hafa gaman af bandarískum stjórnmálum, þá eru þessi myndbrot úr Daily Show algjör snilld!!

Bæði fjalla um hugsanlega frestun kosninganna í USA vegna árása hryðjuverkamanna (via On Lisa Rein’s Radar) Þetta eru um 20mb í erlendu niðurhali, en vel þess virði. :-)

8 ummæli hingað til

Jul 20 2004

Fjölmiðlafrumvarps- kjaftæðisendalok

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Við unnum!

Davíð tapaði.

Ég veit að ég ætti að vera glaðari nú þegar Davíð hefur þurft að viðurkenna fullkominn ósigur. Algjörlega fullkominn ósigur!

En þessa þrjá mánuði í lífi mínu fæ ég ekki tilbaka. Davíð er búinn að valda stríðsástandi í þjóðfélaginu bara af því að hann þolir ekki Baug. Og núna er Davíð búinn að viðurkenna ósigur, en samt viðurkennir hann auðvitað ekki neitt. Einhvern veginn er það ekki ósigur í hans augum að við stöndum núna í nákvæmlega sömu sporum og fyrir þrem mánuðum.


Davíð kvartar um að völd færist á færri hendur, en gleymir að minnast á það að hann og Halldór eru búnir að taka öll völd í sínar hendur. Mikið er það nú samt illa komið fyrir Sjálfstæðisflokknum þegar að Framsóknarmenn eru orðnir rödd skynseminnar.

Finnst ykkur, sem eruð sæmilega frjálslynd og enn í Sjálfstæðisflokknum, það ekki vera sorglegt?

Ég bara skil ekki þetta unga fólk í flokknum. Hvernig getur það stutt Davíð og þessa vitleysu alla? Finnst því þetta allt vera í fínasta lagi?

Ég var að spá í þessu þegar ég var að lesa þennan pistil Járnskvísunnar og áttaði mig á að þetta er allt saman kjaftæði. Ég er ábyggilega miklu nær ungum Sjálfstæðismönnum í skoðunum en þeir eru Davíð. Samt verja þau hann og alla hans menn. En þegar Össur kemur í sjónvarpið og bendir á hina augljósu vitleysu í ríkisstjórninni, þá fer hann alveg hræðilega í taugarnar á Sjálfstæðisfólki.

Er það kannski eini munurinn á okkur? Hverjir fara í taugarnar á okkur. Ég er nánast með ofnæmi fyrir Einari Guðfinns, en líkar ágætlega við Össur. Ungu Sjálfstæðismennirnir fyrirlíta hins vegar Össur og eru með mynd af Einari Guðfinns uppá vegg. Er munurinn á okkur bara einhverjar tilfinningar gagnvart einstaklingum?

Ég hef heyrt fulltaf fólki segjast ekki geta stutt Samfylkinguna útaf því að Össur sé þetta eða hitt. Það skil ég ekki, því stjórnmálaflokkar eiga umfram allt að snúast um málefni en ekki skemmtilega leiðtoga. Er það kannski bara rugl hjá mér?

Ég hef nánast aldrei heyrt hægri-sinnað-ungt-fólk segjast ekki geta stutt Samfylkinguna útaf stefnu flokksins, heldur kvartar það bara yfir Össuri og Ingibjörgu.

Látum við virkilega skoðanir okkar stjórnast af því hvort okkur líkar vel eða illa við einhverja fimmtuga kalla?

Er það ekki dálítið skrítið?


En það er svosem ágætt að þetta er búið, þrátt fyrir að mér finnist rosalega gaman að fylgjast með pólitík og það verður dauft núna þegar ekki er hægt að rífast um þetta.

7 ummæli hingað til

Jul 19 2004

Múrinn og Heimdallarskólinn

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Þau á Múrnum skrifa í dag gott andsvar við grein Hafsteins Þórs, formanns SUS, sem birtist fyrir nokkru á frelsi.is.

Hafsteinn Þór er hugsjónarmaður, en umfram allt foryngjahollur og því hefur hann nánast ekkert gagnrýnt flokkinn sinn fyrir atferli hans í fjölmiðlamálinu og öllu því tengdu. Í stað þess að svara gagnrýni stjórnarandstæðinga og Múrsins tekur Hafsteinn 46 ára gömul ummæli sósíalista og gerir þau að aðal-umfjöllunarefni sínu. Með því var hann víst að skjóta á umfjöllun Múrsins um þjóðaratkvæðagreiðslur, þrátt fyrir að þau á Múrnum hafi ekki verið fædd þegar þessi ummæli voru höfð.

Vandamálið er bara að einsog andsvar Múrsins sýnir, þá er þetta kvót hans Hafsteins einungis útúrsnúningur.

Það er yndislegt að Hafsteinn skuli enn vera jafn dásamlega upptekinn af því að berjast við kommúnisma og hann hefur ávallt verið. Þar sem hann hefur lítil rök inní deilur nútímans, þá kýs hann frekar að beita hárbeittum rökum gegn stefnu, sem dó fyrir mörgum árum. Það er nefnilega auðveldara að grafa upp áragömul, misgáfuleg ummæli andstæðinga sinna, heldur en að eiga rökræður við þá í nútímanum (þó er verra þegar ummælin standast ekki einsog Múrinn sýnir fram á).

Hafsteinn hefur skrifað nákvæmlega tvær greinar á frelsi.is eftir að Davíð tók af okkur þjóðaratkvæðið. Sú fyrri fjallaði um það hversu kjaftfor Steingrímur J. er og sú seinni var um meint 46 ára gömul ummæli fyrrum þingmanns Vinstri-Grænna.

Það er greinilegt að formaður SUS er með puttana á púlsi þjóðlífsins. Ef ungliðar flokksins eru svona úr takti við restina af þjóðinni, er það þá furða að þingmenn sama flokks séu heillum horfnir?

4 ummæli hingað til

Jul 18 2004

Nýr æPod

skrifaði í flokkinn Tækni

Það er búið að opinbera nýja iPod-inn. Steve Jobs er í viðtali við Newsweek og þeir láku forsíðunni í gær.

Sjá hér á engadget
Einnig hér er Newseek greinin: The new iPod

Svo sem engar byltingar, en hann er með 12 tíma batteríi (í stað 8), takkarnir 4 eru farnir og þess í stað er bara hjólið. Svo virðist stýrikerfið í spilaranum sjálfum aðeins vera breytt. Já, og svo eru þeir allir 100 dollurum ódýrari, sem þýðir væntanlega að þeir eru um 10.000 krónum ódýrari í Apple búðinni. Verða bara til í 20gb og 40gb.

Uppfært: Hérna er öll Newsweek greinin um iPod og gríðarleg áhrif og vinsældir þessa litla tækis.

Comments Off

Jul 17 2004

Nýja Quarashi lagið

skrifaði í flokkinn Tónlist

Fyrir þá, sem vissu ekki af því þá er hægt að nálgast nýja Quarashi lagið (að ég held á löglegan hátt) á netinu. Það var sett uppá simblogg.is:

Stun Gun (MP3 – 3,9mb)

Grúví lag, ekkert rokkvesen. Þannig eru Quarashi bestir. Tiny rappar aðallega og svo á Ómar “chorus-inn”. Þetta eru snillingar.

Comments Off

Jul 16 2004

Mblog pælingar

skrifaði í flokkinn Netið

Ég er búinn að setja upp svona móðins mblog á heimasíðu Símans. Þetta er reyndar vita gagslaust því þetta er hýst á einhverri síðu útí bæ. Mun skemmtilegra væri að hafa þetta á minni eigin síðu í hliðarstikunni.

Þannig að ég spyr hvort einhver hafi reynslu af þessu mblog-i og viti hvernig er hægt að gera þetta gagnlegra. Það sem mér dettur í hug:

  1. Er hægt að fá RSS skrá útúr mblog.is?
  2. Gæti ég einhvern veginn sent myndir bara beint inná mína heimasíðu í gegnum Movable Type?
  3. Er hægt að blogga í gegnum SMS með Símanum (hef séð það gert hjá OgManUnited) inná mína heimasíðu?
  4. Get ég eytt myndum útaf mblog.is?

Þetta gæti verið sniðugt dæmi ef að ég gæti einhvern veginn tvinnað þetta inní þessa heimasíðu. Hefur einhver reynslu af þessu? Veit einhver um einhverja skemmtilega fídusa, sem ég er ekki að gera mér grein fyrir?


Já, og svo legg ég til að Síminn í Kringlunni ráði fleira starfsfólk. Takk fyrir.

Ok, farinn útað hlaupa. Það er sko eins gott að það verði fáklæddar stelpur á línuskautum meðfram Ægissíðunni. Annars verð ég verulega vonsvikinn.

7 ummæli hingað til

Jul 15 2004

Ég og iPod-inn minn

skrifaði í flokkinn Tækni

ipod45.jpgNúna er talið að Apple, yndislegasta tölvufyrirtæki muni kynna nýja gerð af iPod í næsta mánuði. Núverandi iPod-ar rúma 40GB af tónlist, en talið er að þeir nýju muni rúma allt að 60GB. Einnig er talið að þeir verði minni og fáanlegir í mörgum litum.

Núna er spennandi að sjá hvort að nýji iPod-inn verði nógu spennandi til þess að ég verði fársjúkur, reyni að selja iPod-inn minn og verði svo ekki í rónni fyrr en ég hef keypt mér einn af þessum nýju. Ég er nefnilega tækjasúkur.

Ég elska líka iPod-inn minn.

Ég elska hann, sennilega jafn heitt og hægt er að elska rafmagnstæki. Hann er ómissandi hluti af mínu lífi. Hann heldur mér á lífi í ræktinni og ég get varla hugsað mér ferðalög án þess að hann sé með í för. Ég hef átt hann í ár og það er hreint með ólíkindum að hugsa sér hversu miklu hann hefur breytt. Þetta litla tæki er æði.

6 ummæli hingað til

Jul 14 2004

Ungir framsóknarmenn

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Í Íslandi í dag var viðtal við engan annan en: Formann Ungra Framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi Suður! HA ha hahaha!

Það þarf enginn að segja mér að í því félagi séu meira en 5 félagar :-)

Uppfært: HA HA ha ha! Formaðurinn er tengdasonur Halldórs Ásgrímssonar. Það er sennilega eina leiðin til að fá ungt fólk í flokkinn. Dóttir Guðna Ágústss er líka ýkt sæt, þannig að þar mun ábyggilega bætast við annar nýr framsóknarmaður. Snilld! Framsóknarmenn eru æði.

6 ummæli hingað til

Jul 14 2004

Teljarablogg

skrifaði í flokkinn Netið

Sko, ég veit að allir hata bloggfærslur um tölfræði eða “vinsældir” viðkomandi bloggs. Þess vegna hef ég aldrei skrifað um slíka hluti á þessari síðu.

En samt, þá ákvað ég fyrir 3 vikum (23. júní) að setja upp teljara á síðuna. Ég hef aldrei haft teljara á síðunni áður, þannig að ég vissi ekkert hverju á átti von á. Ég veit ekki almennilega af hverju ég hef ekki haft teljara hingað til. Eflaust vegna þess að til að byrja með var ég handviss um að enginn læsi síðuna og vissi að ef ég fengi staðfestingu á því, þá myndi ég fara í fýlu og gefast upp.

Svo komu kommentin á síðuna og mat ég þá oft færslurnar á því hversu margir kommentuðu á færslur. Kommentunum hefur fjölgað með mánuðunum og núna er svo komið að á þessum tveimur árum, sem hægt hefur verið að kommenta á færslur, hafa komið um 2.050 komment á þessari síðu.

En ég varð forvitinn að vita hversu margir skoðuðu síðuna, því ég geri mér grein fyrir að það eru ansi margir sem heimsækja þessa síðu án þess að kommenta. Ég kommenta t.d. mjög sjaldan á flestum af uppáhaldssíðunum mínum. Ég hef verið að lenda í því að ólíklegasta fólk segist lesa síðuna mína.

Þess vegna setti ég upp teljara og eru niðurstöðurnar athyglisverðar. Á hverjum degi heimsækja um 320 manns þessa síðu. Flettingar hjá þessum 320 aðilum eru um 420 á dag.

Af þessum 320 koma um 25% af Nagportal og um 5% koma af leitarvélunum, Google og Leit.is. Þetta þýðir að um 220 manns að meðaltali stimpla á degi hverjum eoe.is inní vafrann sinn. Það þykir mér magnað. Eflaust eru einhverjir, sem koma oftar en einu sinni á dag, en á móti eru sennilega margir sem koma hingað 2-3svar í viku.

Þessar tölur eru umtalsvert hærri en ég átti von á, sérstaklega þar sem þessar tölur eru fyrir júlí mánuð. Ég hafði ímyndað mér að um 60-70 manns læsu þessa síðu. Þar tók ég mið af þeim, sem kommenta hérna reglulega, en sá hópur er kannski um 30 manns. Það virðist hins vegar mjög mikið af fólki, sem kommentar aldrei og er það sennilega bara fullkomlega eðlilegt.

Ok, núna er ég semsagt búinn með teljarablogg og lofa því að það verði langt í aðra slíka færslu.

3 ummæli hingað til

Jul 14 2004

Staðhæfingar í Fahrenheit 911

skrifaði í flokkinn Kvikmyndir

Michael Moore listar heimildir fyrir staðhæfingar sínar í mynd sinni Fahrenheit 9/11.

Genni, þér er velkomið að kommenta ;-)

2 ummæli hingað til

Jul 13 2004

Mest spiluðu lögin

skrifaði í flokkinn Tónlist

Frá því að iTunes byrjaði að telja hversu oft maður hefur hlustað á hvert lag, þá hef ég mikið spáð í þeirri tölfræði. iTunes telur í hvert skipti sem ég hlusta á lag bæði í Makkanum mínum, sem og iPodinum mínum.

Það væri vissulega gaman að getað haft þessa statistík fyrir allt mitt líf, en því miður byrjar þessi tölfræði ekki fyrr en fyrir rúmu ári, í byrjun árs 2003. Það er hins vegar athyglisvert að skoða hvaða lög eru vinsælust hjá mér á þessu ári. Ég ætla að setja hérna inn mest spiluðu lögin frá upphafi í iTunes og fyljgast svo með því hvernig þessi listi mun breytast eftir því, sem tíminn líður. Svona lítur þetta út í júlí 2004:

  1. True Love Waits – Radiohead – 60 skipti
  2. Last Goodbye – Jeff Buckley – 50 skipti
  3. Senorita – Justin Timberlake – 50 skipti
  4. Take Me Out – Franz Ferdinand – 46 skipti
  5. Hurt – Johnny Cash – 46 skipti
  6. Cry Me A River – Justin Timberlake – 43 skipti
  7. Galapogos – The Smashing Pumpkins – 38 skipti
  8. Everything’s not lost – Coldplay – 37 skipti
  9. Reptilia – The Strokes – 36 skipti
  10. Lose Yourself – Eminem – 32 skipti

Ég veit ekki hvort ég hef áður talað um True Love Waits, en ég uppgötvaði það lag fyrir sirka ári og það er æði. Eitt af uppáhaldslögunum mínum. Sem og Last Goodbye. Bæði frábær. Það kom mér ekkert á óvart að þau skyldu vera efst. Einnig er það ekki skrítið að Reptilia og Take me Out skuli vera ofarlega. Já og náttúrulega Justin.

Uppfært: Hólí krapp, Gummijóh með snilldar skúbbb. Hann segir að Franz Ferdinand muni spila á Íslandi í desember. Það væri svoooooooo mikil schniiiiiilld. Það gæti alveg verið að ég myndi hoppa þegar þeir tækju Take Me Out! Ó hvað ég vona að þetta sé satt og rétt.

10 ummæli hingað til

Jul 12 2004

Skrifaðu ræðu fyrir Bush

skrifaði í flokkinn Netið

Skrifaðu ræðu fyrir George Bush. Snilld!

(via MeFi)

Comments Off

Jul 11 2004

Put your hands on the wheel…

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ef ég væri i ástarsorg (sem ég er sem betur fer ekki), þá myndi ég bara hlusta á Sea Change með Beck á rípít allan daginn, alla daga, allt árið. Ég elska þessa plötu.

Ég er þunnur, þreyttur og nenni ekki að gera neitt, nema að láta mig dreyma um ferðalög og hlusta á Beck og nýju plötuna með Wilco (sem er æði).

Fór útað skemmta mér í gær og komst að því að stelpan, sem var Ungfrú Ísland í fyrra, er miklu sætari í raunveruleikanum en á myndum. Finnst ykkur það ekki magnað? Ha?

Já, og fór á Pravda bar. Það hafði mér verið tjáð að væri flottasti barinn í Reykjavík og að þar inni væru “eintómar drottningar”. Ég veit að ég ætti ekki að þiggja ráð frá manni, sem kallar sætar stelpur “drottningar”, en allavegana þá voru þarna aðallega feitir kallar, sem heilla mig ekkert sérstaklega.

Æji!

Mig langar til útlanda í frí, núna. Nenni ekki að hanga hér. Er voðalega melódramatískur í dag. Vesen tengt öllum mínum málum. Fékk bréf, sem ruglaði mig í ríminu, komst að því að ég heillast af stelpum sem eru annaðhvort á föstu eða þá nýkomnar úr erfiðum samböndum, lenti í að þræta vini mína, og áttaði mig á því að ég er búinn að draga það núna í þrjá mánuði að kaupa helvítis innréttingu í eldhúsið mitt.

En mig langar semsagt til útlanda. Er að hallast að því að heimsækja vini um öll Bandaríkin, en samt er einhver partur af mér, sem langar bara að segja fokk it, pakka oní bakpoka og fara eitthvert austur á bóginn. Kannski til Úkraínu, Hvíta Rússlands eða eitthvað álíka. En mig langar bara rosalega að hitta alla háskólavinina og kónginn í Washington. Það er verst að þessir Lou Reed tónleikar eru ekki fyrr en 20. ágúst, þannig að ég get ekki farið út fyrr en í fyrsta lagi 21. ágúst. Það er alltof langt þangað til.

Put your hands on the wheel/Let the golden age begin

6 ummæli hingað til

Jul 11 2004

Dvortsovaya torg

skrifaði í flokkinn Myndablogg

dvo.jpg Lesa áfram »

2 ummæli hingað til

Eldri færslur »