Jul 09 2004
Box og Kópavogur
Ég fór í Kópavoginn áðan. Þar var ekki gaman.
Í hádeginu fór ég í fyrsta skipti í box tíma. Það var æði, en ég er gjörsamlega uppgefinn. Gat varla vélritað í vinnunni, þar sem puttarnir og hnúar eru ónýtir. Mér leið einsog ég væri að vinna á skrifstofunni hans Woody Allen í Bananas. Mér leið einsog allir takkarnir á lyklaborðinu væru pikkfastir.
Og mér líður ennþá þannig og því ætla ég að hætta og fara í sólbað.
2 Ummæli við færsluna “Box og Kópavogur”
# - þann 09 Jul 2004 klukkan 18:10
ooohh hvar getur maður æft box ?? e-r heimasíða með upplýsingum ?
# - þann 09 Jul 2004 klukkan 18:27
Þetta var nú ekkert formlegt. Var bara með þjálfara inní World Class.