Sep 22 2004
Is it true that Iceland is green and Greenland ice?

Kominn heim.
Tekinn í tollinum. Kræst!
Framsóknarmaður orðinn forsætisráðherra. Krææst!
Jón Steinar í fréttunum. Krææææææst!
Damien Rice á morgun. Jeeeeesssss!!
Þegar ég kom heim var íbúðin mín tandurhrein! Ég veit ekki hver gerði þetta, en mig grunar mömmu um verknaðinn. Hún ætlaði víst að kíkja í íbúðina mína til að sjá hvort “allt væri í lagi”. Á ég bestu mömmu í heimi? Jammmm, pottþétt.
Myndin er af mér við Grand Canyon. Ég tók víst 410 myndir í ferðinni og því mun það taka einhvern tíma að setja þær bestu inná þessa síðu.
Meira síðar…
4 Ummæli við færsluna “Is it true that Iceland is green and Greenland ice?”
# - þann 22 Sep 2004 klukkan 23:34
hey, velkominn heim
# - þann 23 Sep 2004 klukkan 8:02
Takk
# - þann 24 Sep 2004 klukkan 11:07
Mér finnst þú eiga rosa góða mömmu, vá gott að koma heim í tandurhreint hús þegar mar kemur að utan.
# - þann 26 Sep 2004 klukkan 21:00
Sæll Einar
Skemmtileg skrif hjá þér, lít stundum á vefinn. Mikið er ég nú sammála þér með framsóknarmann sem forsætisráðherra, það er ekki gleðileg tilhugsun. Erum svo sannarlega sammála í því máli.
kv. SFS