Oct 31 2004

Kjúklingagötu- samlokudraumur

uppfærði klukkan 22:44 í flokkinn Dagbók

Ja hérna, ég er farinn að birtast í draumum annarra.


Athyglisverð grein á Múrnum. Er mjög sammála punktinum um að það sé ósmekklegt hjá þessum Íslendingum að gera grín að árásinnu, þar sem þar dóu nokkrir aðilar.


Það er fyndið hversu fólk getur sagt mikið á bloggi án þess að segja í raun neitt. Til dæmis er ég alltaf að skoða blogg hjá stelpu, sem ég er enn ekki búinn að fatta hvort sé á lausu. 90% færslna virðast gefa það til kynna, en svo koma alltaf geðveikt ruglinslegar færslur, sem rugla mann í ríminu. Það er magnað að geta skrifað jafnmargar færslur án þess að maður fái á tilfinninguna hvort fólk sé á lausu eður ei.

Jamm, þetta er erfitt líf.


Til að bæta aðeins við veitingahúsarýnina, þá mæli ég með cajun bbq samlokunni á Vegamótum.


Já, og svo mæli ég með þessu ljómandi skemmtilega myndbandi

4 ummæli hingað til

4 Ummæli við færsluna “Kjúklingagötu- samlokudraumur”

  1. Inga Lilja
    # - þann 01 Nov 2004 klukkan 16:22

    Datt í hug að þú myndir vita af einhverri kosningavöku annað kvöld?? :smile:

  2. Gardi
    # - þann 01 Nov 2004 klukkan 16:29

    Já, ég fylltist ógleði af því að horfa á meinta friðargæsluliða koma til landsins og skilgreina bolina sem íslenskan húmor. Þeir eru til skammar þessir menn.

  3. Soffía
    # - þann 03 Nov 2004 klukkan 20:20

    Er ég á lausu? Ekki að ég haldi að þú sért að tala um mig í færslunni, bara forvitni hvað fólk sem þekkir mig ekki les úr blogginu mínu :smile:

  4. Einar Örn
    # - þann 03 Nov 2004 klukkan 22:59

    Já, ég hefði haldið að þú værir á lausu, Soffía. Finnst það hafa skinið í gegn á síðunni. En hver veit.

    Það er samt rosalega misjafnt hversu augljóst það er af því að lesa síður hvort fólk sé á lausu eður ei. Það fer t.d. ekki mikið á milli mála hjá stelpum einsog maju en hjá öðrum er þetta tormeltara :-)