Nov 05 2004
Útgáfutónleikar
Fór áðan með vini mínum á útgáfutónleika Maus. Einhvern veginn hafði ég ekki séð neitt um tónleikana fyrr en Björgvin Ingi benti mér á þetta á MSN í dag.
Jæja, tónleikarnir voru haldnir í Austurbæ og voru snilld. Bestu tónleikar, sem ég hef verið á með Maus. Þeir renndu í gegnum öll sín bestu lög, alveg frá Músíktilraunum til “Life in a Fishbowl”. Tóku m.a. 3 lög “acoustic”, þar á meðal frábæra rólega útgáfu af Kerfisbundinni Þrá.
Fyrir utan þann rólega kafla var þetta bara eðalrokk. Eftir svona tónleika finnst manni í raun grátlegt að þeir skuli ekki vera heimsfrægir. Þetta er ekki tónlist, sem að allir fíla, en það ætti að vera nægur markaður fyrir svona frábært popp-rokk. Allavegana, þið sem eruð enn með fordóma gagnvart Maus, gefið þeim sjens. Íslenskt rokk gerist ekki betra.
Svo eru líður manni líka alltaf svo vel á tónleikum með Maus. Í raun einsog allir þarna inni séu nánir vinir hljómsveitarinnar. Veit ekki hvað það er, en ég fæ alltaf þá tilfinningu. Já, og svo tóku þeir líka 3 ný lög, sem hljómuðu öll nokkuð vel. Ég bíð allavegana spenntur eftir næstu alvöru plötu.
2 Ummæli við færsluna “Útgáfutónleikar”
# - þann 06 Nov 2004 klukkan 13:02
Ooohhh… leiðinleg færsla… ég er GEÐVEIKT öfundsjúk. Mig langaði rosalega mikið á þessa tónleika því ég er eldheitur aðdáandi Maus. Komst því miður ekki á tónleikana af því að ég var að vinna
# - þann 10 Nov 2004 klukkan 21:17
setlistinn, tekinn beint af setlista þeirra Mausliða:
ósnortinn
skjár
fingurgómakviða
ljósrof
djúpnæturg
flæði
90 kr. perla
poppaldin
ungfrú
e-mail
—-
unplugged
kristal
kerfis
báturinn
drama
—-
unplugged lokið
allt sem þú lest er lygi
musick
my fav
life in a fishbowl
—-
uppklappið
over me, under me
helter shelter
cover my eyes