Nov 11 2004
Ég HATA SNJÓ!
Eruð þið ekki að grínast með þetta veður?
Ég get ekki annað en tárast þegar ég hugsa til þess að þessi mynd var tekin fyrir minna en tveim mánuðum.
Ef ég þarf að skafa bílinn minn í fyrramálið þá tapa ég mér. Ég er búinn að vera ferlega pirraður í vinnunni alla vikuna og þetta er ekki til að bæta ástandið. Mikið er ég samt glaður að það er allavegana að koma föstudagur…
5 Ummæli við færsluna “Ég HATA SNJÓ!”
# - þann 12 Nov 2004 klukkan 14:46
Jamm, snjór sökkar. Og ég er enn á sumardekkjunum. Það tók mig laaangan tíma að komast í vinnuna í morgun, ég beisiklí skautaði bara…
Þessi mynd af þér og flóanum fær mig samt ekkert til að líða betur sko…
# - þann 12 Nov 2004 klukkan 15:11
Húrra fyrir snjó!
# - þann 12 Nov 2004 klukkan 17:14
Oh.. lífið er óréttlátt, ég ELSKA snjó, en það snjóar svo sjaldan þar sem ég á heima….
Ég mæli með því að þú komir þér upp góðu vetrarsporti Einar. Og vittu til, þá ferðu örugglega að bíða eftir snjónum á hverju ári…
# - þann 12 Nov 2004 klukkan 21:16
Hvaða hvað, Kristján. Ég hélt að myndin frá San Fransisco myndi hlýja fólki
Bjarni, þú ert skrítinn!
Og Erna, ég var einu sinni alltaf á skíðum, en svo flutti ég út og þegar ég kom heim voru allir á brettum og skíði voru geðveikt halló og allir á brettum. Og það má Guð vita að ég get ekki verið halló, þannig að ég hætti.
# - þann 14 Nov 2004 klukkan 23:19
Testing 1 2 1 2