Feb 20 2005

Gengið á svelli

uppfærði klukkan 21:39 í flokkinn Dagbók

Var á djammi í gær. Það er ekki gott þegar að vekjaraklukkan hringir áður en maður sofnar. Ein af Serrano stelpunum var með partí og svo fórum við saman í bæinn.

  • Fórum á Road House, sem er þar sem Thomsen var einu sinni. Staðurinn var nær tómur á laugardagskvöldi.
  • Mæli með Pizza King, sem er þar sem Serrano var áður í Hafnarstræti. Pizzurnar þar eru bestu fyllerísmaturinn í bænum. Svo er Tony, gaurinn sem á staðinn, þrælfínn gaur, sem gefur mér alltaf ókeypis pizzu :-)
  • Ég efast um að það sé neitt fallegra í Reykjavíkurborg en að labba á ísilagðri tjörninni í fallegu veðri um miðja nótt, einsog ég gerði eftir djammið um 5 leytið í gær. Án efa fallegasti staðurinn í borginni.

En mikið skemmti ég mér nú vel. Vodka er málið, er hættur þessu bjórsulli.

2 ummæli hingað til

2 Ummæli við færsluna “Gengið á svelli”

  1. beta
    # - þann 21 Feb 2005 klukkan 0:24

    einar. þú ert gull. GULL!!!

  2. katrín
    # - þann 21 Feb 2005 klukkan 15:30

    úúúú hverri varstu að rölta með yfir reykjavíkurtjörnina í nótt :wink: