Mar 25 2005
Föstudagurinn
Í dag hef ég gert eftirfarandi hluti:
- Vaknað með hausverk og hálsríg klukkan 9
- Unnið í fjóra klukkutíma – og losnað þar með við samviskubitið
- Drukkið kaffi og búið mér til samloku.
- Horft á 101 Most Sensational Crimes of fashion, Queer Eye for the straight guy, Dismissed og Chapelle Show. Ég veit, ég er með magnaðan sjónvarpssmekk.
- Hreinlega farið á kostum í MVP Baseball 2005
- Eldað nautasteik með sveppum og hvítlauksbrauði. Fokk, ég er svo góður kokkur að ég ætti hreinilega að opna minn eigin veitingastað.
- Drukkið fyrsta bjórinn minn í langan tíma.
- Hlustað á nýju Beck plötuna tvisvar sinnum.
- Hlustað á The Band.
- Þvegið þvott.
Jamm, þetta er búinn að vera merkilegur dagur.