Skráarsafn fyrir April, 2005

Apr 30 2005

Útsýni frá Marriott

skrifaði í flokkinn Myndablogg

Útsýnið frá hótel herberginu mínu á 21. hæð í Varsjá fyrir tveimur vikum (myndin er tekin í gegnum glugga). Þarna sést Palace of Culture hægra megin og einhver nýbygging vinstra megin. Smellið á myndina til að sjá stærri mynd.

2 ummæli hingað til

Apr 29 2005

Er ég kominn heim?

skrifaði í flokkinn Dagbók

Kominn aftur í Vesturbæinn.

Ég var ólýsanlega þunnur í fluginu í dag. Langaði að æla á sænsku tuskuna við hliðiná mér. Þetta var með erfiðari flugum, sem ég hef upplifað.

Þessi þynnka á sér sínar skýringar.

Ég er búinn að vera í Stokkhólmi undanfarna 3 daga. Var þarna á söluráðstefnu hjá Van Melle (Mentos) fyrir öll Norðurlöndin. Þarna voru fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum og ræddum við takmörk og nýjungar fyrir næsta ár.

Í gær héldum við svo öll kynningar fyrir nýja markaðsherferð á Mentos og voru veitt verðlaun fyrir bestu kynninguna. Ég vann þá keppni þrátt fyrir að ég hafi gert kynninguna mína einn inná hótelherbergi í Gautaborg en hin löndin hafi haft fjölda fólks til að hjálpa sér.

Í verðlaun voru 15.000 evrur (um 1,2 milljón króna), sem á að nota í markaðssetningu hér á landi. Vonast til að þessi herferð fari af stað seinnipart sumars eða þá í byrjun næsta árs. Það var tilkynnt um úrslitin í kvöldverði á veitingastað í Djurgarden. Ég fékk því að fara á djammið og í flugið í dag með risavaxna ávísun, sem vakti gríðarlega athygli.

Allavegana, eftir kvöldverðinn fórum við svo flestöll á djammið. Kíktum á Cafe Opera og Spy Bar. Ég drakk vodka, hvítvín og bjór, sem mig grunar að sé ástæðan fyrir þessari hrikalegu þynnku. Var að til klukkan 4 í morgun en var svo mættur á fund klukkan 8. Tók síðan flugvél til Íslands um tvö leytið, sem var einsog áður sagði martröð líkust.


Ég veit að ég hef áður minnst á það en Sea Change með Beck er einfaldlega æðisleg plata. Ég er ekki alveg að fíla Guero nógu vel. Ég fíla rólega Beck og hann er aldrei betri nema á Sea Change. Elska að hlusta á þessa plötu þegar ég er þunnur. Líður einsog það sé sunnudagur. Mikið er það fínt að það sé föstudagskvöld.

9 ummæli hingað til

Apr 24 2005

Norðurlöndin geta líka verð ágæt

skrifaði í flokkinn Ferðalög

Ég er kominn til Gautaborgar eftir tvo fína daga í Stokkhólmi. Stokkhólmur er æði – ekki láta fólk segja ykkur annað.

Ég veit ekki hver er ástæðan, en ég hef alltaf haft netta fordóma gagnvart Stokkhólmi og Svíum. Var sannfærður um að Stokkhólmur væri bara önnur útgáfa af Osló og að Svíar væru leiðinlegir. Jæja, ég get staðfest að Stokkhólmur er sko ekki Osló, svo mikið er víst.

Stokkhólmur er með fallegri borgum, sem ég hef heimsótt. Veðrið var æðislegt báða dagana og ég eyddi mestum tímanum í að rölta í sólinni um borgina. Í gær labbaði ég um gamla bæinn í rólegheitunum, horfði á vaktaskipti í konungshöllinni og slappaði svo af í Kungstragarden.

Í dag gerði ég meira af því sama. Kíkti reyndar á Vasa safnið, sem er byggt utan um gamalt herskip, sem fannst á hafsbotni fyrir um 50 árum. En fyrir utan þá safnaferð, þá eyddi ég tímanum í rólegheitunum á labbi um borgina og dáðist að fegurð hennar. Gamli bærinn og reyndar allir miðbærinn er ótrúlega fallegur.


Núna er ég kominn til Gautaborgar og sit hérna uppá hótelherbergi og reyni að berja saman kynningu, sem ég á að halda á fimmtudaginn. Á fundi hérna bæði á morgun og á þriðjudaginn, en á miðvikudag fer ég aftur til Stokkhólms á ráðstefnu. Er nokkuð viss um að þar verði kvöld prógramm, svo sennilega mun ég sjá eitthvað meira af Stokkhólmi. Allavegana, þá er borgin vel virði heimsóknarinnar.

Skrifað í Gautaborg, Svíðjþóð klukkan 21:42

6 ummæli hingað til

Apr 22 2005

Túristast um Varsjá

skrifaði í flokkinn Ferðalög

Leigubílstjórinn, sem keyrði mig að Kastalatorginu í morgun var ekki beinlínis yfirsig ástfanginn af Varsjá. Óspurður sagði hann að Varsjá væri “depressing city” og að þar væri ekkert að sjá. Ég veit ekki hvort ég er sammála honum, en þó hefur borgin yfir sér einkennilegan brag. Ég myndi sennilega ekki eyða mörgum dögum hérna sem túristi, en hún hefur vissulega uppá fullt af áhugaverðum hlutum að bjóða fyrir stutt ferðalag líkt og mitt.

Ég vann í morgun en var kominn út um hádegið. Fékk leigubíl til að keyra mig uppað gamla miðbænum. Sá miðbær var algjörlega eyðilagður eftir Varsjár uppreisnina við lok Seinni Heimsstyrjaldarinnar, en borgarbúar tóku sig til og endurbyggðu bæinn í sinni gömlu mynd eftir stríð. Sú endurbygging tókst svo vel að bærinn er á lista Unesco.

Miðbærinn er mjög heillandi. Ekki ósvipaður gamla miðbænum í Prag, þrátt fyrir að vissulega sé hann ekki jafn tilkomumikill. En byggingarnar bera þess engin merki að vera eftirlíkingar af þeim byggingum, sem þarna stóðu fyrir 200 árum.

Ég labbaði þarna um í góðan tíma, tók myndir og fylgdist með mannlífinu.


Labbaði því næst nokkur hundruð metra að minnismerki um Varsjár uppreisnina (Síðan, sem ég bendi á inniheldur mikið af góðum upplýsingum um uppreisnina, þar með talið myndefni. Mæli með henni (The Pianist, sem er frábær bíómynd fjallar einnig um þessa atburði)). Uppreisnin fór fram 1944 þegar illa búnir Varsjárbúar réðust á þýska herliðið í borginni. Upphaflega gekk uppreisnin vel og bjuggust Varsjárbúar við að Sovétmenn, sem voru staðsettir í rétt fyrir utan borgina myndu hjálpa þeim. En Sovétmennirnir komu aldrei til hjálpar, heldur biðu þeir á meðan að Þjóðvernarnir drápu yfir 250.000 borgarbúa.

Pólverjarnir gáfust að lokum upp og voru sendir í fangabúðir. Eftir að allir Varsjárbúar voru farnir hófu Þjóðverjarnir kerfisbundna eyðileggingu borgarinnar. Engin bygging fékk að standa.

Því er dálítið merkilegt að labba þarna um miðbæinn. Varsjárbúar notuðust við allt, sem þeir gátu, til að endurbyggja borgina. Þannig að í húsunum sem standa þar í dag eru notaðir múrsteinar, sem voru grafnir uppúr rústunum eftir alla eyðilegginguna. Magnað til þess að hugsa. Það verður ekki hjá því komist að dást að dást að Pólverjum þegar maður hugsar til þess hvað þeir hafa gengið í gegnum.


Eftir að hafa labbað um miðbæinn rölti ég tilbaka í átt að hótelinu. Skoðaði minnismerki, sem hafði verið reist um Páfann og rölti meðfram aðalverslunargötunni.

Eldsnemma fyrramálið á ég flug til Stokkhólms, þar sem ég verð fram á sunnudagskvöld. Ætla að fá mér einn bjór á barnum á 40. hæð fyrir svefninn.

Skrifað í Varsjá, Póllandi klukkan 21.11

4 ummæli hingað til

Apr 21 2005

Hótelherbergi í Varsjá

skrifaði í flokkinn Ferðalög

Ég veit ekki hvað það nákvæmlega er, en ég elska að gista á góðum hótelum! Sumir kvarta endalaust yfir því að þurfa að dvelja á hótelum, en mér finnst það alveg yndislegt. Sumir geta ekki sofið í hótelrúmum, en ég sef aldrei eins yndislega vært og í góðum hótelrúmum.

Kannski er það vegna þess að frá fyrri ferðalögum mínum er ég vanur að dvelja á alveg einstaklega viðbjóðslegum hótelherbergjum. Allt frá því að gista í fyrrum fangelsi í Perú til kakkalakkabæla í Venezuela og því að lenda í mýfluguárás í St. Pétursborg. Kannski að allt þetta fái mig til að meta góð hótel svo mikils og njóta verunnar á þeim.

Ég elska sápur í litlum pökkum. Ég elska að það sé tekið til eftir mig og ég elska að geta sett skyrturnar mínar í poka og fengið þær svo nokkrum tímum hreinar og straujaðar. Það er einhver sérstök tilfinning við að vera á hótelum.

Ég er semsagt núna á Marriott hótelinu í Varsjá. Nánar tiltekið á 21. hæð með stórkostlegt útsýni yfir Varsjá og “Palace of Culture“. Þrátt fyrir að Pólverjum þyki sú bygging hræðileg (sennilega vegna tengingarinnar við Sovétríkin) þá þykir mér hún æðisleg. Kannski hef ég svona skrítinn smekk, en mér þykja þó líka systurnar hans Stalíns í Moskvu vera ótrúlega sjarmerandi byggingar.


Stundum getur lífið verið ótrúlega skrítið og fullt af einkennilegum tilviljunum, sem beina manni á ákveðna staði á ákveðnum tímum. Aldrei hefði mér til dæmis dottið í hug að ég myndi eyða miðvikudagskvöldi á pólskum sportbar, styðjandi Manchester United. En þetta gerðist í gær.

Ég kom hingað til Varsjár með flugi frá Svíþjóð (eftir að hafa látið mér leiðast á flugvellinum í Stokkhólmi í 7 klukkutíma). Þegar ég kom uppá hótelherbergi sá ég að það var sportbar á neðstu hæðinni, sem var að sýna frá enska boltanum. Þannig að ég hljóp auðvitað niður og fékk mér bjór yfir boltanum. Ég treysti á sigur Manchester United, þar sem það hefði komið vonum Liverpool um Evrópufótbolta vel. En auðvitað, loksins þegar ég hélt með viðbjóðinum í Man U, þá töpuðu þeir. Alveg gjörsamlega típískt og óhætt að segja að óbeit mín á því liði hafi ekki farið minnkandi við þetta.


Er búinn að sinna vinnunni í mest allan dag. Fyrst útí bæ og svo hérna heima á hótelherbergi, þar sem ég er með net aðgang. Held að ég sé kominn nógu langt svo ég megi eiga von á því að geta aðeins túristast á morgun.

Skrifað í Varsjá, Póllandi klukkan 22:15

Ein ummæli hingað til

Apr 19 2005

Til útlanda

skrifaði í flokkinn Dagbók

Er að fara út í fyrramálið vegna vinnu. Byrja á því að fara til Varsjár í gegnum Stokkhólm. Verð þar í tvo daga. Annan daginn þarf ég að vinna, en hinn ætla ég að nýta í labb um borgina, sem ég gat ekki skoðað mjög vel síðast.

Þaðan fer ég svo á laugardaginn til Stokkhólms, þar sem ég ætla að eyða helginni. Fer svo á sunnudagskvöld til Gautaborgar, þar sem ég fer á fund. Þaðan aftur til Stokkhólms á tveggja daga ráðstefnu og svo heim þarnæsta föstudag.

Á morgun þarf ég sennilega að bíða á flugvellinum í Stokkhólmi í 6 tíma. Það er eins gott að þar sé eitthvað almennilegt hægt að gera.

Veit því ekki hversu algengar uppfærslur verða hérna næstu daga.

4 ummæli hingað til

Apr 17 2005

Mögnuð skrif á Pólitík.is

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Svo ég spyrji svona útí loftið: Er engin ritstjórn á Pólitík.is? Ég veit að ég gæti hringt í einn mann og fengið svar við spurningunni, en ég verð bara að fá að hneykslast opinberlega.

Á sú síða ekki að vera málefnalegt pólitískt vefrit á vegum Ungra Jafnaðarmanna? Ef svo er, af hverju fá þá svona greinar: Dvergur hittir dverg að komast í gegn?

Greinin fjallar um átökin í Ísrael og Palestínu og það þarf engan speking til að sjá hverrar skoðunnar greinarhöfundur er. Hann er fullkomlega sannfærður um að Ísrael og Bandaríkin hafi ekki neitt nema slæmt fram að færa og því skrifar hann af þvílíkri fyrirlitningu fyrir leiðtogum og skoðunum þessara landa.

Greinin byrjar svona (feitletranir mínar):

Í gær hitti líkamlegi dvergurinn Ariel Sharon andlega dverginn George W. Bush í arfaskógi þess síðarnefnda í Texas.

Í fyrsta lagi, hvað græðir greinarhöfundur á að gera lítið úr stærð Ariel Sharon eða gáfnafari George Bush? Varla er það ætlun hans að reyna að sannfæra þá óákveðnu í þessu máli, þar sem slík ummæli gefa varla í skyn að það sem á eftir fylgi sé skrifað af hlutleysi. Enda eru ummælin, sem fylgja í kjölfarið, ekki mikið málefnalegri eða til þess fallinn að efla málstað greinarhöfundar:

Bush virtist gefa Sharon autt landakort og segja ,,gjörðu svo vel, taktu það sem þú vilt”.

Geta menn, sem hafa sannfært heimsbyggðina að þeir séu geðveikir stríðsæsingamenn (nú veit ég að Gísli Marteinn og klíkan er ekki sammála mér, en það er ekki hægt að gera öllum til geðs)

Af hverju er Bush allt í einu að banna dvergunum frá Ísreal að byggja meira og íta þar með undir ófriðarbálið?

Bandaríkin hafa það að mörgu leyti í hendi sér að koma á skikkanlegu ástandi milli Ísrael og Palestínu. Ég vona að þegar dvergarnir taka upp símann og hringja upp (annar í gegnum Jesú, hinn er með beina línu) þá verði þeim tilkynnt að ef þeir ekki hlusti í þetta skipti þá verði afleiðingarnar skelfilegar. Guð kunni nefnilega líka dvergakast!

Pólítísk vefrit eiga ekki að þurfa að sökkva oní slíkar lægðir að uppnefna andstæðinga sína. Það eru nóg málefnaleg rök til gegn stefnu Ísraelsríkis án þess að það þurfi að grípa til svona barnalegra ummæla. Ef þetta á að líðast á þessu vefriti, þá er ekki nokkur ástæða til þess að búast við öðru en að það muni hér eftir teljast gjaldgengt að gera grín að stærð eða ummáli íslenskra stjórnmálamanna í stað þess að nýta skrifin til þess að gagnrýna skoðanir þeirra á málefnalegan hátt.

Þetta er ekki fyndið, þetta er ekki málefnalegt og þetta hæfir ekki opinberu vefriti Ungra Jafnaðarmanna!

14 ummæli hingað til

Apr 16 2005

Petals around the rose

skrifaði í flokkinn Dagbók

Yeesss!!! Ég rakst á þessa þraut á síðunni hans Halla. Í gær glímdi ég við þetta í hálftíma en áttaði mig ekki á lausninni. Svo áðan datt mér eitt í hug og prófaði það og það virkaði! Þannig að ég er semsagt búinn að fatta lausnina (sönnunargagn). Mikið er ég stoltur! Mæli með að fólk prófi


Annars var ég með starfsmannapartí á Serrano heima hjá mér í gærkvöldi. Það stóð yfir til klukkan 3 með tilheyrandi fjöri. Íbúðin mín er öll í drasli, en ég er kominn hálfa leið með þrifin.

Er gríðarlega stoltur af því að ég vaknaði klukkan 8 til að fara á fund hjá framtíðarhópnum. Óhófleg kaffidrykkja varð þess valdandi að ég komst vel frá þeim fundi og er núna gríðarlega hress eftir að hafa fengið mér búllu hamborgara í hádegismat.

Horfði svo á mest frúestrerandi knattspyrnulið í heimi og er nú að reyna að safna krafti til þess að fara útí matvörubúð til að klára undirbúning fyrir matarboð í kvöld. En mikið djöfull getur gengi Liverpool dregið úr mér allan kraft.

Comments Off

Apr 14 2005

Damn shit

skrifaði í flokkinn Almennt

Ég verð að játa að mér finnst þetta dálítið fyndið. Einhver gaur tók sig til og fjarlægði allt úr laginu Straight outta Compton með N.W.A. nema blótsyrðin. Þannig að þessi úrklippa er samansafn af öllum blótsyrðum í laginu. Nokkuð gott.


Annars mæli ég með piparsteikinni á Vegamótum. Fékk mér svoleiðis í kvöld. Það væri að ég held ágætis regla að fá sér alltaf steik á fimmtudögum. Af hverju datt mér þetta ekki fyrr í hug?

Fyrir utan það, þá veit ég hreinlega ekki hvað ég á að skrifa um. Er alveg stopp þessa dagana.

Jú, ég á að halda matarboð á laugardaginn, en veit ekkert hvað ég á að elda. Einhverjar hugmyndir?

7 ummæli hingað til

Apr 13 2005

Da da da dara!

skrifaði í flokkinn Íþróttir

Ó, ég er svo glaður

SVO GLAÐUR!

Ég elska fótbolta!

2 ummæli hingað til

Apr 12 2005

Punktar um pólitík

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Á leið úr ræktinni í hádeginu hlusta á oftast á Ingva Hrafn á Talstöðinni. Ég veit ekki almennilega af hverju. Gæti verið vegna þess að “Fólk og Fyrirtæki” með Jörundi á Sögu er sennilega lélegasta útvarpsefni mannkynssögunnar og ég finn aldrei nein lög á hinum stöðvunum.

Allavegana, ég er nær ávallt ósammála Ingva Hrafni, en samt hef ég gaman af því að hlusta. Hann má líka eiga það að hann er óspar á yfirlýsingar. Einsog t.d. í dag þegar hann talaði um forsætisráðherra:

örflokkksormaðurinn Halldór Ásgrímsson, sem stal forsætisráðherrastólnum!

Jammm!

Annars er skondið að ímynda sér Ingva Hrafn, sólbrunninn á svölum í Flórída, gasprandi í síma um vandamál okkar hérna á Íslandi. En hann getur verið skemmtilegur.


Og já. Húrra fyrir Gunnari Birgissyni! Af hverju er hann sá eini, sem ver hagsmuni borgarbúa á Alþingi?


Og já, ég vil fá Ágúst Ólaf í varaformanninn!!!

Ein ummæli hingað til

Apr 11 2005

Gúrka?

skrifaði í flokkinn Netið

Hversu mikil gúrka er í fréttum á Íslandi þegar aðalviðtalið í næst-vinsælasta fréttaþættinum á Íslandi er við tvo stráka úr Keflavík, sem stjórna sjónvarpsþætti á keflvískri sjónvarpsstöð, þar sem þeir mynda fulla Keflvíkinga strippandi á djamminu?


Þessi færsla hjá Maju er snilld!

Annars bætti ég tveim bloggum inná RSS listann minn um helgina. Bæði eru snilld. Anna.is og Halli.


Já, og þetta mynddband er helvíti magnað. Minnir óneitanlega á þau tilþrif, sem ég er vanur að sýna í Sporthúsinu á fimmtudögum.

Comments Off

Apr 10 2005

Hvað á barnið að heita?

skrifaði í flokkinn Dagbók

Það má segja að gærkvöldið hafi markað ákveðin tímamót í mínu lífi. Í fyrsta skiptið var ég staddur í strákapartýi með vinum mínum, þar sem talað var um barnanöfn!!! Þegar þetta rann upp fyrir mér bað ég viðkomandi vinsamlegast að hætta og reyndi að skipta um umræðuefni. Í partýinu var líka gerð tillaga að ferðalagi, sem átti að fara í eftir 15 ár, það er eftir að börnin eru vaxin úr grasi.

Er ég orðinn svona gamall? Eða eru vinir mínir bara orðnir svona gamlir? Ég veit ekki. En samt, þá var gærkvöldið frábært. Fékk góða vini í heimsókn, við grilluðum og drukkum til miðnættis þegar við fórum niður í bæ. Enduðum á Vegamótum, þar sem var verulega fínt. Ég var kominn ágætlega í glas fyrir Vegamót en inni á staðnum var verið að hella Captain Morgan í allt fólkið, svo það varð ekki til að bæta ástandið. En samt frábært. Alltof langt síðan ég hef farið í bæinn. Alltof langt! Það var þó greinilegt að prófin eru að byrja því það var lítið af fólki og sætum stelpum á Vegmótum. Held þó alveg örugglega að þessi gaur hafi verið á efri hæðinni í gær.


Annars barst talið að Suður-Ameríku í gær. Ég man að á Vegamótum fékk ég alveg einstaka löngun til að fara á ekta Suður-Amerískt djamm. Sat á Vegamótum mestallan tímann. Ég elska djammið einsog það var í Suður-Ameríku, þar sem var dansað allt kvöldið. Og ekki bara þessi hópdans, sem er stundaður á íslenskum stöðum, heldur bauð maður stelpum upp til að dansa salsa. Allt kvöldið. Ég verð að finna mér kærustu, sem finnst gaman að dansa og helst að búa í borg, sem er nógu stór til að geta haldið uppi almennilegum salsa klúbb.

Fór skyndilega að hugsa um gamalt djamm, veit ekki nákvæmlega af hverju, en skyndilega fannst mér Vegamót ekki vera spennandi í samanburðinum. Djammið, sem ég rifjaði upp var þegar ég hélt uppá tvítugsamfmælið mitt í Mexíkó. Ég og kærastan mín á þeim tíma, Gabriela, ákváðum að eyða afmælishelginni í Acapulco, sem er um 6 tíma keyrslu frá Mexíkóborg, þar sem ég bjó á þeim tíma.

Kvöldið, sem ég átti afmæli fórum við á stærsta klúbbinn í Acapulco. Við tókum leigubíl þangað og þegar við stigum útúr leigubílnum var lengsta röð, sem ég hef séð fyrir utan skemmtistað á ævinni. Við vorum þó varla stigin útúr bílnum þegar að dyraverðir staðarins veifuðu á okkur og hleyptu okkur fram fyrir alla. Ástæðan var sennilega blanda af því að Gaby var sæt og að ég var ljóshærður. Það að vera ljóshærður getur gert ýmsa hluti fyrir mann í þessari heimsálfu.

Staðurinn sjálfur var algjört æði með útsýni yfir Acapulco frá dansgólfinu. Einsog á flestum skemmtistöðum í Mexíkó voru allir drykkir innifaldir í miðaverðinu. Við fengum okkur því bara sæti, gáfum þjónustustelpu smá þjórfé og eftir það kom hún með eins mikið tekíla og við gátum í okkur látið. Síðan dönsuðum við allt kvöldið.

Það var það eina, sem þurfti uppá hið fullkomna djamm; góður skemmtistaður, æðisleg stelpa, smá tekíla og salsa.

10 ummæli hingað til

Apr 07 2005

Afhommun í sjónvarpi

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Ég tek mér nú ekki oft stór orð í munn á þessari síðu.

Eeeeen,

Gunnar í Krossinum er fordómafullur asni!

14 ummæli hingað til

Apr 06 2005

Spurningalisti

skrifaði í flokkinn Dagbók

Jæja, þá er síðan með Ungfrú Reykjavík komin upp. Ég get nú lítið talað um að sú keppni sé sponsor-uð, nema þá að K sé eitthvað að styrkja keppnina.

En allavegana, hver keppandi fær þennan líka ljómandi skemmtilega spurningalista, sem þær svara misvel. Þar sem ég hef ekki skrifað inn neitt af viti undanfarna daga ætla ég að spreyta mig á listanum:


Foreldrar: Einar Kristinsson & Ólöf Októsdóttir

Nám-Vinna: Markaðsstjóri

Áhugamál: Fótbolti, Ferðalög, tónlist, aðrar íþróttir

Draumastarfið: Forstjóri míns eigin risafyrirtækis

Draumabíllinn: Skiptir ekki máli, bara að ég verði með einkabílstjóra svo ég sleppi við að keyra sjálfur. Það er mikilvægast

Uppáhaldsmaturinn: Burrito á Serrano, hvað annað? Jú, og nautasteik. Já, og hamborgari á Johnny Rockets. Já, og BBQ Chicken Pizza á California Pizza Kitchen. Já, og Arroz con Pollo auðvitað. Já, og ekta mexíkóskar tacos á taqueria í Mexíkó.

Er Ísland ævintýraland?: Eflaust.

Hvað er tíska? Kræst, næsta spurning.

Hvernig er fullkominn laugardagur: Hmmm… þetta er erfitt. En ok: Natalie vekur mig um morguninn og vill ólm sofa hjá mér. Hvað getur maður gert?

Ég fer svo framúr og kveiki á sjónvarpinu. Horfi þar á Liverpool vinna Manchester United 6-0. Milan Baros skoraði þrennu og Roy Keane tvö sjálfsmörk. Alex Ferguson gleypir tyggjó. Fæ mér bjór.

Ákveð svo að skella mér í göngutúr um nágrennið. Kíki á ströndina, þar sem allar stelpurnar dást að ótrúlega lögulegum líkama mínum. Verð að afþakka nokkur boð um “guilt-free” kynlíf, þar sem ég og Natalie eru jú par. Hitti vini mína og við spilum fótbolta saman.

Um kvöldið förum við Natalie svo saman útað borða á ástralskt steikhús og borðum æðislegar steikur og drekkum rauðvín. Öllum á óvart, þá mætir Frank Sinatra á svæðið og tekur nokkur lög, bara fyrir okkur tvö.

Við kíkjum svo útá næturlífið og endum með okkar vinum á salsa stað, þar sem við dönsum stanslaust salsa og merengue langt fram á morgun.

Hvernig ætlar þú að slá í gegn?: Með því að skrifa um sjálfan mig á netinu. Já, eða verða þekktur fyrir mikið viðskiptavit.

Hver er þekktasta persónan sem þú hefur séð? Ok, ég hef séð ansi marga. Sá páfann í Venezuela, Fujimori í Venezula, Bob Dylan í Kansas og Bono í Chicago. En ef það er átt við hvort maður hafi heilsað viðkomandi, þá myndi ég segja Lauryn Hill og Wyclef þegar ég sat og spjallaði við þau á leið til New York. Og Luke Wilson, sem ég sat með í leigubíl.

Hver er besta bíómynd, sem þú hefur séð? Ya llego la feria, 110 mínútur af stórkostlegum tékkneskum leiðindum frá 1960, sem ég sá á Kúbu. Ah, ok, besta myndin. Ok, það er Pulp Fiction.

Er eldhúsið staður fyrir konur? Jammm, alveg eins. Þær mega samt líka alveg vera á fleiri stöðum.

Lístu sjálfum þér með einu orði: Magnaður!


Annars þá hlýtur þessi stelpa að vinna.

7 ummæli hingað til

Apr 06 2005

Aukinn hraði

skrifaði í flokkinn Netið

Fyrir ykkur, sem nota Firefox á PC þá er þetta algjör snilld. Þetta jók hraðann á Firefox umtalsvert hjá mér.

Fyrir ykkur, sem notið Explorer á PC, í Guðanna bænum skiptið yfir í Firefox. (via A.wholeloattanothing)

5 ummæli hingað til

Apr 03 2005

Svartasti dagurinn í sögu Liverpool

skrifaði í flokkinn Íþróttir

Á þriðjudaginn mætast Liverpool og Juventust í 8-liða úrslitum í Meistaradeild Evrópu. Ég skrifaði pistil á Liverpool bloggið um þennan leik, en þetta er í fyrsta skipti sem liðin mætast eftir hörmungarnar á Heysel fyrir 20 árum.

Held að margt af því, sem ég bendi á í pistlinum, sé áhugavert fyrir fólk, sem ekki endilega fylgist mikið með fótbolta.

7 ummæli hingað til

Apr 02 2005

Páfinn dáinn

skrifaði í flokkinn Almennt

Jæja, hann er dáinn.

Comments Off

Apr 02 2005

Í boði?

skrifaði í flokkinn Dagbók

Glöggir lesendur þessarar síðu komu fyrir nokkrum vikum auga á það að keppnin um Ungfrú Vesturland var í boði Diet Coke

[En](http://www.vaxak.is/modules/Coppermine/displayimage.php?album=2&pos=23 ) [hvaða](http://www.vaxak.is/modules/Coppermine/displayimage.php?album=2&pos=21 ) [fyrirtæki](http://www.vaxak.is/modules/Coppermine/displayimage.php?album=2&pos=19 ) [ætli](http://www.vaxak.is/modules/Coppermine/displayimage.php?album=2&pos=17 ) [styrki](http://www.vaxak.is/modules/Coppermine/displayimage.php?album=2&pos=1 ) [fegurðarsamkepppni](http://www.vaxak.is/modules/Coppermine/displayimage.php?pid=117&fullsize=1 ) [Norðurlands](http://www.vaxak.is/modules/Coppermine/displayimage.php?album=1&pos=14 )?
[Mér](http://www.vaxak.is/modules/Coppermine/displayimage.php?album=3&pos=5 ) dettur [ekkert](http://www.vaxak.is/modules/Coppermine/displayimage.php?pid=135&fullsize=1 ) í [hug](http://www.vaxak.is/modules/Coppermine/displayimage.php?pid=127&fullsize=1 )!


Annars var ég að horfa á Liverpool leik í dag með tveim vinum mínum. Helminginn af seinni hálfleikinn hafði ég áhyggjur af því hvað ég yrði í hræðilega vondu skapi ef Liverpool myndi bara ná jafntefli. En svo kom Igor Biscan og reddaði deginum fyrir mér.

Það getur stundum verið með ólíkindum mikill léttir að koma hjartans efnum frá sér til vina. Gerði það nú í vikunni og líður talsvert betur eftir það.

Ég er byrjaður að drekka grænt te. Ég hélt að geðveiki mín hefði náð hámarki þegar ég byrjaði að drekka sódavatn, en þetta er án efa nýr toppur. Mér hefur alltaf þótt te vera viðbjóður. Verst var coca teið, sem mér var gert að drekka í Bólivíu.

Ég fór nefnilega ásamt vinum mínum í flugvél frá Asuncion í Paragvæ beint til La Paz Bólívíu, sem er eitthvað um 3000 metrum hærra yfir sjávarmáli en Asuncion. Því fékk ég hrikalegan hausverk, enda á hausinn minn oft erfitt með að jafna sig eftir miklar hæðabreytingar. Innfæddir sögðu mér að te úr kókaín laufum væri það eina, sem myndi virka á hausverkinn. Ég píndi þann óþverra oní mig og reyndi að tyggja kókaín laufin, en án árangurs.

Síðan þá hef ég haft óbeit á te-i, en er nokkurn veginn kominn yfir það skeið núna.

Einnig fékk ég mér fisk í matinn í vikunni. Það er þriðja stig geðveiki að mínu mati og mamma myndi ábyggilega tárast við að heyra þetta, hún væri svo stolt. Reyndar sagði vinur minn, sem kom í heimsókn, að öll blokkin mín angaði af fiskifýlu. Sem er ekki gott. En vissulega ákveðin hefnd fyrir fólkið, sem er alltaf að djúpsteikja kjúklinga í blokkinni.

Fyrir utan gluggann minn í Vesturbænum er snjór. Einsog ég hef sagt áður, þá er þetta veður á þessu landi fáránlegt. Hreinlega fáránlegt.

5 ummæli hingað til

Apr 01 2005

7 í röð

skrifaði í flokkinn Íþróttir

Ég vildi bara benda áhugasömum á þetta:

Bulls win 7th straight.

Gaman gaman!

Hvernig væri nú ef að Sýn myndi taka sig til og sýna einn leik með Bulls, ha? Chicago eru núna í 4. sæti í Austurdeildinni. Magnað!

9 ummæli hingað til