May 01 2005
Tónlist og djamm
Á rípít þessa dagana:
I’m the Ocean – Neil Young (af Mirror Ball)
Natural beauty – Neil Young (af Harvest Moon)
Landslide – Fleetwood Mac
Beverly Hills – Weezer (af óútkominni plötu Make Believe)
Speed of Sound – Coldplay (af óútkominni plötu X&Y)
Solitude Sometimes Is – Manic Street Preachers (af Lifeblood)
Ég hef átt Mirror Ball í 10 ár, en aldrei gefið henni raunverulegan sjens. Ég keypti hana sem Pearl Jam aðdáandi, en það má segja að núna sé ég að gefa henni annan sjens sem Neil Young aðdáandi. Ég hef verið svona semi-aðdáandi Neil Young í gegnum tíðina, en það er ekki fyrr en núna síðustu mánuði, sem ég er farinn að hlusta virkilega mikið á hann.
Young er snillingur. Svo einfalt er það. Hef verið að hlusta aftur mikið á Harvest og svo einnig Harvest Moon, After the Gold Rush, American Stars ‘n’ bars (sem inniheldur mitt uppáhaldslag með Neil Young, Like a Hurricane) og Freedom. Allt eru þetta frábærar plötur. Var núna líka að redda mér Tonight’s the Night. Er bara rétt að byrja að hlusta á hann, á ennþá gríðarlega mikið inni. Það er frábært.
Ég var á árshátíð í vinnunni í gær, en er samt búinn að vera furðu hress í dag. Ég er í stjórn starfsmannafélagsins og hafði því séð eitthvað um undirbúninginn, þrátt fyrir að ég hefði verið úti síðustu daga. Allavegana hátíðin var algjör snilld og ég skemmti mér frábærlega. Á móti Sól spiluðu fyrir dansi og þeir voru lygilega góðir í að halda starfsfólki, sem er 20-65 ára gamalt, á dansgólfinu. Mjög gott!
Fór síðan með tveim stelpum úr vinnunni á Hverfisbarinn og síðar Vegamót. Frábært kvöld og ánægjulegt að ég hafi farið á léttvínsdjamm án þess að gera einhvern skandal. Það gerir það að vakna daginn eftir mun bærilegra
2 Ummæli við færsluna “Tónlist og djamm”
# - þann 01 May 2005 klukkan 22:31
Félagi minn hefur mikið verið að ýta Neil Young að mér. Hef þess vegna verið mikið að hlusta á Harvest og Neil Young (þ.e. plötuna), en eitthvað minna á Harvest Moon.
Hann er ansi góður.
Strumpakveðjur
# - þann 02 May 2005 klukkan 20:57
Jammm, hann er snillingur. Mæli með After The Gold Rush þegar þú ert búinn að hlusta á Harvest.