May 06 2005
Húnar og Naut
Jööössss! Sýn ætla að sýna leik 6 í einvígi Washington og Chicago í NBA á miðnætti í kvöld.
Þannig að klukkan hálf átta get ég horft á Mark Prior kasta fyrir Chicago Cubs gegn Philadelphia og svo get ég horft á Chicago Bulls á miðnætti. Yndislegt!
Washington STÁLU sigrinum síðast og Chicago hafa ekki unnið í D.C. í 10 ár, en það mun breytast í kvöld! Ég er sannfærður um það!
2 Ummæli við færsluna “Húnar og Naut”
# - þann 06 May 2005 klukkan 18:38
Andskotinn, ef ég væri ekki að fara að vinna kl. 5 í fyrramálið myndi ég horfa. Ég verð að vona að Bulls vinni svo að ég fái 7. leikinn á sunnudag/mánudag.
Go Kirk, go Ben! Þið getið tekið þetta í kvöld!
# - þann 07 May 2005 klukkan 13:49
Neibbs, tókst því miður ekki. :confused:
Bulls voru yfir allan tímann, en töpuðu þessu á síðustu mínútunum. Verulega svekkjandi.