May 06 2005

Fimm ára

uppfærði klukkan 9:31 í flokkinn Netið

Fyrir tveim vikum, þá varð þessi síða fimm ára gömul. Ég steingleymdi afmælinu, enda var ég í Póllandi. Núna hef ég haldið þetta út án hvíldar síðan 22. apríl 2000. Veit ekki um neinn á Íslandi, sem hefur haldið svona lengi út án hvíldar.

Til hamingju ég!

12 ummæli hingað til

12 Ummæli við færsluna “Fimm ára”

  1. bió
    # - þann 06 May 2005 klukkan 11:14

    Nokkuð gott :)

  2. Gummi Jóh
    # - þann 06 May 2005 klukkan 11:18

    Til hamingju með það!!!!

    Ætli ég og Ágúst Flygenring séum ekki á eftir þér, 2júní verður síðan mín 5 ára og hann er á undan eða eftir mér.

    Hver er sagnfræðingur íslenskra bloggheima? :wink:

  3. Strumpurinn
    # - þann 06 May 2005 klukkan 12:16

    Til hamingju með afmælið… bara eitt ár þangað til þú þarft að senda síðuna í grunnskóla.

    Strumpakveðjur :)

  4. Kristján Atli
    # - þann 06 May 2005 klukkan 13:28

    Til hamingju með það. Ég er sjálfur búinn að blogga í rétt rúm þrjú ár en á mismunandi stöðum, og á ekki elstu færslurnar lengur, þannig að ég skil vel hversu mikið afrek þetta er.

    Spurning: heldurðu að þú náir 10 árum óslitið? Sjá bloggarar sig fyrir sér eftir 50 ár, á eftirlaunum, enn bloggandi? Ég er ekki viss um að ég vilji vera þannig manneskja…

  5. Emma
    # - þann 06 May 2005 klukkan 13:46

    tilllykke!

  6. bió
    # - þann 06 May 2005 klukkan 13:59

    Samkvæmt blogtree er Einar eldri en Ágúst.

    http://www.blogtree.com/blogtree.php?blogid=6490

  7. Einar Örn
    # - þann 06 May 2005 klukkan 17:40

    Takk öll.

    Ágúst byrjaði 4.maí, um tveimur vikum á eftir mér. :-)

  8. heidi
    # - þann 06 May 2005 klukkan 17:56

    vá.. þetta er nokkuð vel af sér vikið !

  9. Finnbogi
    # - þann 06 May 2005 klukkan 18:34

    Til hamingju!

    Ætli Már og Bjarni Rúnar séu samt ekki búinn að vera lengur að?

  10. Einar Örn
    # - þann 06 May 2005 klukkan 18:45

    Már byrjaði fyrr, en hann hefur tekið sér nokkur löng hlé :-)

    Veit ekki með Bjarna.

  11. Einar Örn
    # - þann 06 May 2005 klukkan 18:47

    Annars er það ekkert sérstakt takmark hjá mér að hafa haldið lengst út :-)

  12. RG
    # - þann 06 May 2005 klukkan 21:56

    Hehe yeah right, þú ert svo mikill keppnismaður að hvaða sigur sem er gleður þig :biggrin2: