May 09 2005
E
Ég elska nýju plötuna með Eels: Blinking Lights And Other Revelations.
Elsk’ana!
33 lög, 90 mínútur af frábærri tónlist. Besta plata ársins hingað til. Ekki nokkur spurning. Hef verið að hlusta á hana síðustu kvöld og ég er loksins núna að skilja almennilega hversu góð þessi plata er. Þið, sem hafið aldrei hlustað á Eels, gefið honum sjens. Þið sjáið ekki eftir því.
5 Ummæli við færsluna “E”
# - þann 10 May 2005 klukkan 11:58
Nákvæmlega! You beat me to it! Ætlaði að skrifa ítarlegan pistil um þessa plötu á minni síðu í dag eða á morgun, ég hef ekki hlustað á neitt annað síðan ég keypti hana á fimmtudaginn! Stórgóð plata!
Ég elska E, hann veldur mér aldrei vonbrigðum… þetta er vafalítið hans besta stykki síðan ‘Electro Shock-Blues’ fyrir sjö árum síðan…
# - þann 10 May 2005 klukkan 12:39
Jæja, ég skrifað’ann samt…..
# - þann 10 May 2005 klukkan 17:12
Jamm, fínn pistill hjá þér. Er einmitt að hlusta á hana núna seinnipartinn í vinnunni. Æði æði æði æði!
# - þann 10 May 2005 klukkan 20:41
það er rétt…ég sé ekki eftir því. æði! takk:)
# - þann 12 May 2005 klukkan 23:22
ég tel mig sennilega vera mesta EELS aðdáenda á Íslandi , ota henni að öllum sem ég hitti og því er gaman að vita af öðrum sem kunna að meta snilldina sem Mark Oliver Everett færir okkur.
Blinking Lights er stórkostleg í alla staði, að mínu mati næst besta plata EELS, á eftir Electro-Shock Blues.