Jun 29 2005
Merkasti Bandaríkjamaðurinn!
Eru menn ekki að fokking grínast í mér?
Reagan voted ‘greatest American’
Mikið geta þessir Repúblikanar í Bandaríkjunum verið miklir bjánar. Að velja Reagan framyfir FDR, Lincoln, MLK. Já, og Oprah lendir líka ofar en FDR.
Annars bendi ég áhugafólki um bandaríska pólitík á þessa grein: If Watergate happened now. Sorglegt, en ekki svo fjarri sannleikanum.
5 Ummæli við færsluna “Merkasti Bandaríkjamaðurinn!”
# - þann 29 Jun 2005 klukkan 12:14
Humm… ég er nú ekki mikill aðdáandi Repúblicanana… en ég verð nú bara að benda á eitt með þessa Watergate í dag frétt….
Af hverju í ósköpunum ættu Repúblicananir að brjótast inn í höfuðstöðvar DNC í dag? Stela einhverjum áhrifamiklum hernaðarleyndarmálum sem Democratar munu nýta sér í næstu kosningabaráttu? Demókrötum hefur nú gengið svo vel síðastliðnar kosningar.
Miðað við að skárri flokkurinn af tveimur er á hraðri leið í ræsið og virðist bara grafa sér dýpri gröf… þá er hæpið að Íhaldið fari að brjótast inn til þeirra til að afla upplýsinga.
Strumpakveðjur
# - þann 29 Jun 2005 klukkan 12:17
Beðist er velvirðingar á öllum þessum gríðarlega fjölda stafsetningar og málfræðivilla í commentinu á undan… skrifað í flýti.
Strumpakveðjur
# - þann 29 Jun 2005 klukkan 14:47
Það var ekki pointið í greininni, heldur einungis hvernig fjölmiðlaumfjöllunin yrði ef einhver viðlíka viðburður gerðist.
# - þann 29 Jun 2005 klukkan 15:15
Jújú… ég náði innihaldi greinarinnar alveg… kemur líka fremur skírt fram og erfitt að vera ósammála því sem í greininni segir…. en…
ég tel það vera meira vandamál að staða mála í BNA er þannig í dag að Repúblikanar og önnur íhaldsöfl eru leiðandi í svo til öllum hugmyndafræðilegum baráttumálum og Demokratar og önnur frjálslynd öfl eru stöðnuð eða í að gefa eftir í baráttunni við íhaldið.
Ef að viðhorf frjálslyndis og skynsemi fá meira vægi í almennri umræðu í BNA, þá mundi skynsamlegri fjölmiðla umfjöllun fylgja fljótt á eftir…
ég er vonandi skýrari í þessu kommenti.
Strumpakveðjur
# - þann 30 Jun 2005 klukkan 0:16
Það sem mér þykir nú merkilegast samt, er að George W Bush skuli vera í 6.sæti.