Jun 29 2005

Fo’ Shizzle!

uppfærði klukkan 19:46 í flokkinn Tónlist

Ok, ég er að fara á Snoop í Egilshöll ásamt tveim vinum mínum. Þetta var auðvitað of gott tækifæri til að láta framhjá sér fara.

Allavegana, ég hef verið að leita að set-lista fyrir þennan túr, sem Snopp er á, en hef ekkert fundið. Veit einhver hvaða lög Snoop er að taka á þessum túr, eða veit einhver um set-lista frá einhverjum tónleikum af þessum síðasta túr?

5 ummæli hingað til

5 Ummæli við færsluna “Fo’ Shizzle!”

  1. Ágúst
    # - þann 29 Jun 2005 klukkan 22:51

    Sumum hliðum við þig botna ég ekkert í. Ég var einmitt að spá í það um daginn hvaða markhópur væri eiginlega að fara á þessa tónleika.

    Einar skoppari! :tongue:

  2. Einar Örn
    # - þann 30 Jun 2005 klukkan 8:46

    Já, ég er svo margbrotinn persónuleiki. Annars er ég nú að fara með framkvæmdastjóra ungra jafnaðarmanna, þannig að hann er líka í markhópnum.

  3. Daði
    # - þann 02 Jul 2005 klukkan 20:12

    Á síðunni hjá Katrínu er setlistinn frá því að við fórum á Snoop í Berlín í lok febrúar…

  4. katrín
    # - þann 05 Jul 2005 klukkan 21:45

    http://www.katrin.is/?nid=5150

    leitaðu ekki langt yfir skammt elskan!

    hann bætti samt við fleiri slögurum á okkar tónleikum sem ég man ekki núna hverjir voru, meira af dre efni…

    en svo núna á hróarskeldu tók hann miklu færri lög enda held ég maður megi ekki vera nema eitthvað ákveðið lengi á orange.. og það var verið að sýna vídjóin hans á risaskjá og dj eazy dick talaði við mann á milli laga á risaskjánum.. veit ekki hvort það verða svona skjáir í egilshöll…

  5. Einar Örn
    # - þann 06 Jul 2005 klukkan 19:33

    Takk, Katrín :-)

    Þetta lítur vel út!