Skráarsafn fyrir July, 2005

Jul 28 2005

London um helgina

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég er að fara út á laugardaginn. Hef ekki farið til útlanda síðan ég sá Liverpool verða EVRÓPUMEISTARA í Istanbúl í maí. Það er auðvitað orðið alltof langt síðan. :-)

Allavegana, fer til London. Á miðvikudaginn á ég fund í Kettering og sá því fram á að ég myndi ekki mæta í vinnu á þriðjudaginn. Þar sem að vinir mínir eru flestir rólegir um Verslunarmannahelgina, þá fannst mér vera kjörið að nýta ferðina og eyða helginni í London. Pantaði mér því ódýrt hótel nálægt Earl’s Court.

Ætla að reyna að túristast aðeins um London á staði, sem ég hef ekki komið áður. Ætla að fara í British Museum og eyða allavegna einum degi þar og ætla svo að fara niður til Stonehenge. Ætla svo að ryena að hitta systur mína og versla eitthvað.

Veðrið á víst að vera sæmilegt. Um 20 stiga hiti og það ætti að sjást til sólar allavegana á mánudag, þannig að ég reyni sennilega að fara til Stonehenge þá.


Síminn var seldur í dag fyrir 67.000.000.000 krónur. Væri ekki best að borga þetta verð beint út til allra Íslendinga? Það myndi þýða að hver lifandi Íslendingur fengi ávísun uppá 230.000 krónur. Einstæð móðir með tvö börn fengi 690.000 krónur. Það væri ekki slæmt.

En nei, auðvitað verður þessu eytt í eitthvað bull. Þarf ekki örugglega meiri pening í landbúnaðarkerfið? Já, eða fleiri jarðgöng útá landi. Það væri líka æði.

3 ummæli hingað til

Jul 27 2005

Borgin eða vinnan?

skrifaði í flokkinn Almennt

Fyrir það fyrsta, þá má ekki taka þessari færslu sem enn einum “mig langar út”© pistli frá mér! Ok? :-)

Allavegana, ég rakst á einhverjar umræður á netinu um svipað mál. En mig langaði að fá input frá fólki, sem les þessa síðu:

Hvort myndir þú heldur vilja búa í æðislegri borg og vinna leiðinlega vinnu…

eða

Búa í leiðinlegri borg í æðislegri vinnu?

Að því gefnu þá að við tökum út vini og fjölskyldu. Segjum bara að þú ættir að velja milli tveggja borga í Evrópu. Önnur borgin er tiltölulega ljót, með litlu mannlífi og leiðinlegu veðri. Hin borgin er falleg, með iðandi mannlífi og góðu veðri. Þú gætir fengið algjöra draumavinnu í leiðinlegu borginni, en þyrftir að vera í leiðinlegri vinnu í skemmtilegu borginni. Hvort myndir þú velja?

Og einsog ég sagði áður, þá á þetta ekki við um mig. En fólk virðist vera tilbúið að flytjast á ótrúlegustu staði fyrir draumavinnuna sína. Langar að heyra hvort þetta sé algengt hjá fólki.

16 ummæli hingað til

Jul 26 2005

Ströndin

skrifaði í flokkinn Bækur

Meðan ég var andvaka í gær gerði ég svosem ýmsa hluti. Ég horfði á Cubs vinna baseball leik í beinni útsendingu frá Chicago og lét mig dreyma um að vera á þriðjudagskvöldi á Wrigley Field, drekkandi bjór og horfandi á baseball.

Kláraði einnig að lesa The Beach eftir Alex Garland. Þegar ég spurðist fyrir um bækur tengdar Suð-Austur Asíu, þá var mælt með þessari bók. Ég hafði einhvernt tímann horft á myndina með Leo DiCaprio, en ég gafst uppá þeirri mynd eftir um klukkutíma. Bókin er umtalsvert betri. Samt öðruvísi en ég átti von á. Aðeins rólegri en ég átti von á miðað við allar lýsingarnar.

Þegar ég byrjaði að láta mig dreyma um ferðalög keypti ég fulltaf Suðaustur-Asíu tengdum bókum. Næst á dagskrá er Lands of Charm and Cruelty : Travels in Southeast Asia og svo The Things they carried

4 ummæli hingað til

Jul 26 2005

Andvaka

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég get ekki sofnað! Drakk of mikið af kaffinu hjá Jensa og Þórdísi.

Fokk!


Búinn að panta mér flug til London um næstu helgi. Sameina bissness og vonandi ánægju. Fundur næsta miðvikudag, þannig að ég hef laugardag-þriðjudag í London. Ég þarf virkilega á þessu að halda. Reyna að hreinsa hausinn á mér. Síðustu vikur og mánuðir hafa verið of skrýtnir, of flóknir. Of mikið vesen.

Er líka búinn að ákveða að fara út í fríið mitt í lok ágúst. Var ekki alveg viss, en er viss núna. Fékk smá bakþanka með að fara til Suð-Austur Asíu. Langar dálítið að fara til Mið-Ameríku. Tala spænsku borða tacos, dansa salsa og reyna við sætar, mexíkóskar stelpur.

Mexíkó eða Tæland? Mið-Ameríka eða Suðaustur-Asía. Ég verð að fara að ákveða mig. Held bara að ég þurfi að fara út sem allra fyrst. Reyna að byrja uppá nýtt. Gera hlutina öðruvísi. Hreinsa hugann. Gleyma öllu hérna heima, setja á mig bakpokann og fara á flakk. Hitta nýtt fólk á hverjum degi. Detta í’ða einhvers staðar þar sem enginn þekkir mig og ég þekki engann. Þar sem ég rekst ekki á neinn. Dansa við ókunnugar stelpur, heimsækja nýja staði. Láta mér leiðast á lestarstöðum og í rútum. Anda að mér mengun í stórborg. Sjá nýja hluti. Verða skotinn í stelpu í nokkra klukkutíma í ókunnugri borg.

Mig langar út….

20 ummæli hingað til

Jul 24 2005

Helgi á Grundarfirði

skrifaði í flokkinn Dagbók

Æ mikið var þetta gaman.

Ég var alveg að tapa mér í einhverri fýlu á föstudaginn og var við það að hætta við að fara í útilegu. Guði sé lof fyrir að ég fór. Ég var að koma heim aftur eftir tvo virkilega skemmtilega daga á Grundarfirði með Serrano starfsfólki. Er sólbrunninn (mér líður allavegana einsog ég sé brunninn, þrátt fyrir að ég líti ekki þannig út), með kvef og fáránlega þreyttur. En mikið skemmti ég mér vel.

Á Grundarfirði var bæjarhátíð, sem var nokkuð vel heppnuð. Allur bærinn, og þá meina ég hvert einasta hús, var skreyttur í einum af fjórum litum, en hverfunum var skipt uppí fjóra hópa og var keppt í skemmtiatriðum og skreytingum á milli bæjarhluta. Nokkuð skemmtilegt konsept og það virtust allir bæjarbúar taka þátt í þessu því öll húsin voru skreytt (sjá lýsingu hjá önnu.is).

Við komum þarna á föstudagskvöldinu og um leið og við vorum búin að tjalda fórum við í partý í heimahúsi. Eftir það fórum við svo öll á ball með Sálinni. Sem var æðislegt. Veðrið var svo fáránlega gott að fyrir utan félagsheimilið var stappað af fólki. Þannig að bæði fyrir og eftir ballið eyddi ég heillöngum tíma þar fyrir utan og hitti fulltaf skemmtilegu fólki. Inná ballinu var líka frábært.

Laugardeginum eyddi ég í sundi og rölti um bæinn. Í miðbænum voru skemmtiatriði og tívolí ásamt einhverri kraftakeppni. Veðrið var svo frábært að það að vera úti var eiginlega nóg. Hitt skipti ekki jafn miklu máli. Um kvöldið fór ég svo uppí bústað til vinar míns, þar sem ég borðaði kvöldmat og hitti svo allt fólkið. Fórum í bæinn, drukkum og spjölluðum. Kíktum svo í partý og því næst á skemmtistaðina báða. Fíluðum þá ekki alveg nógu vel, þannig að við enduðum kvöldið hjá tjöldunum okkar. Eftir sund og mat keyrðum við svo í bæinn í dag.

Semsagt, virkilega góð helgi. Ég hafði ekki farið í ferð útúr bænum síðan um síðustu verslunarmannahelgi og sú ferð var ferlega róleg, ólík þessari. Ég þurfti á þessu að halda.

Comments Off

Jul 22 2005

Útilega

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ok, ætla að gleyma öllu því sem pirrar mig í dag, því helgin skal vera skemmtileg.

Er á leiðinni í útilegu. Grundartangifjörður er víst áfangastaðurinn. Þar verður gaman. Eða svo vona ég allavegana. Ég er allavegana kominn í stuttbuxur, svo ég er til í fjörið. Góða helgi! :-)

5 ummæli hingað til

Jul 22 2005

Varðhald

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Halli: Íslensk heimska

Ímyndið ykkur hortugheitin að Íslendingar haldi að þeir geti auðveldlega keypt sér flugmiða, klætt sig í réttu fötin og farið út í heim að berjast fyrir því sem rétt er, og ef þeir lenda í vandræðum þá segja þeir bara “nei, þú skilur ekki, ég er Íslendingur”.

Þú ert Íslendingur að blanda þér í mál sem kosta líf tuga manna á hverjum degi. Strætóar eru sprengdir í loft upp, túristar skotnir í hnakkann, og konur pyntaðar og þeim nauðgað. Það skiptir engu máli hvort þú flytjir til Spánar að hjálpa Böskum, kaupir þér vélbyssu og felubúning og fljúgir til Írak að berjast á móti íröskum skæruliðum, eða flytjir til Amsterdam og slæst í för með hústökufólki.

Mér langar að skrifa langan pistil um fréttaflutning af þessari stelpu, sem vondu kallarnir handtóku, en ég nenni því ekki í svona góðu veðri. En pistillinn hans Halla er svosem ágætis innlegg.

6 ummæli hingað til

Jul 21 2005

Tölvuleikir

skrifaði í flokkinn Tækni

Ég hef spilað Grand Theft Auto: San Andreas allmörgum sinnum. Í þeim leik hef ég t.a.m.

  • Drepið fólk með sveðju
  • Drepið hóp af skólakrökkum með handsprengju
  • Lamið gamlar konur til óbóta
  • Keyrt yfir hóp af túristum á skriðdreka.

Allt þetta og meira var mögulegt í leiknum. Hins vegar þá hefur hann hingað til ekki verið algjörlega bannaður börnum. Leikurinn var einungis bannaður 17 ára og yngri.

Núna hefur hins vegar verið ákveðið að banna leikinn innan 18 ára. Er það vegna þess að það er hægt að drepa gamlar konur með vélsög? Neibbs. Ástæðan er að núna er hægt að sjá ber kvenmannsbrjóst í leiknum.

Jamm, fólk er fífl.

4 ummæli hingað til

Jul 20 2005

Trúarbrögð

skrifaði í flokkinn Netið

Er það ekki botninn á bloggi þegar maður setur inn internet könnun?

Jú, ég held það. En fokk it.

Samkvæmt þessu prófi þá ætti ég að vera Búddisti. Maður svara spurningum og svo er hverri trú gefið skor. Svona leit þetta út hjá mér:

Buddism: 67%
Islam: 58%
Judaism: 58%
Paganism: 54%
Afnosticism: 54%
Satanism: 54%
Christianity: 46%
Hinduism: 46%
Atheism: 21%

Semsagt, ég ætti að vera Búddisti, Múslimi eða Gyðingur. Í raun allt annað en Kristinn. Ég ætti frekar að vera djöfladýrkandi heldur en Kristinn. Það þykir mér magnað. Sá ekki margar spurningar, sem ættu að benda til þessa. En ég vissi svosem að Kristnin myndi koma neðarlega. Hélt að Íslam yrði í fyrsta sæti, en Búddisminn kemur mér svosem ekkert á óvart.

Þegar ég var skiptinemi í Venezuela fyrir nokkrum árum, heimsóttum ég og vinur minn nokkrum sinnum mosku. Aðalástæðan fyrir því var að við nenntum ekki í skóla og moskan var svo nálægt húsinu okkar. Og jú, við vorum forvitnir. Eiginlega fannst mér flestallt, sem kallarnir töluðu um þar, passa nokkuð vel við mínar skoðanir. Reyndar snérust þær umræður líka um flest nema kvenfyrirlitningu og hryðjuverk, sem flestir tengja við Íslam í dag.

En allavegana, er ekki voðalega trendí að vera Búddisti? Ha?

5 ummæli hingað til

Jul 19 2005

Bow wow wow yippy yo yippy yay

skrifaði í flokkinn Tónleikar

Ég fór á Snoop Dogg með tveimur vinum mínum á sunnudag. Einn stakk reyndar af eftir smá stund, þannig að við vorum eiginlega bara tveir allan tímann, ég og PR. Ég hef fílað Snoop nokkuð lengi. Uppgötvaði hann reyndar ekki þegar hann byrjaði, heldur var það ekki fyrr en 3-4 árum seinna. Þegar það gerðist varð hann strax í miklu uppáhaldi hjá mér.

Við komum inní höllina þegar að Hjálmar voru að klára sitt sett. Þeir voru nokkuð góðir. Frekar fyndin hljómsveit. Þeir líta út einsog Creedence Clearwater Revival, en spila nokkuð skemmtilega tónlist. Held einhvern veginn að tónlistin njóti sín jafnvel betur á tónleikum. Kannski að ég gefi þeim loksins sjens og kaupi plötuna.

Næstir á svið voru Hæsta Höndin. Það atriði var frekar slappt. Til að byrja með heyrðist ekkert í Erp, því míkrafónninn hans var í rugli. Það heyrðist eiginlega bara í þeim, sem gerðu ekkert nema að hrópa með í chorus-num (Sesar A t.d.). Svo komu á svið nokkrir úr Rotweiler hundum. Það var ekki mikið betra, því ekkert heyrðist í Bent í því prógrammi. Það er með ólíkindum að svona klúðrist á svona tónleikum. Sama hversu góðir menn eru á sviði (og þeir voru jú ansi hressir), þá er lítið gaman þegar að það heyrist ekkert í neinum.


Eftir að það atriði klárast var sýnd snotur stuttmynd, þar sem að Snoop svaf hjá tveim gellum og skaut svo aðra þeirra. Í þeirri mynd var víst eitthvað plott, en textinn heyrðist illa sökum slaks hljóðs í höllinni. Snoop kom svo á svið og byrjaði á Murder was the Case í nokkuð slappri útgáfu, en eftir það var leiðin hiklaust uppá við. Snoop fór í gegnum mörg af sínum bestu lögum. Flest lögin voru af Doggystyle og svo nokkur af nýju lögunum, sem hann hefur sungið sem dúett með tónlistarmönnum, sem eru vinsælli en hann sjálfur meðal yngstu kynslóðarinnar, svosem P.I.M.P., Signs og Drop it Like It’s Hot.

Við PR vorum þau auðvitað spenntastir fyrir gömlu Doggystyle og Chronic slögurunum, enda það bestu plöturnar hans Snoop. Hann tók mörg bestu lögin af þeim plötum, svo ég var nokkuð sáttur við prógrammið. Á milli laga gerði Snoop svo mikið úr því að fá salinn til að syngja með sér og hann virtist hafa alla í vasanum. Reyndar gerði hann eiginlega alltof mikið af þessu og þetta var alltof langt. Maður nennir bara að segja “Iceland is da best” og “We love you Snoop” visst mörgum sinnum áður en það verður þreytandi.


Þannig að tónleikarnir voru góðir, ég fékk það sem ég hafði búist við. Ekki síður skemmtilegt var að fylgjast með fólkinu á tónliekunum. Ég hata að hljóma einsog Íhaldsmaður og flestir sem þekkja mig vita að ég er mikill fylgismaður þess að stelpur klæði sig létt og gangi í pilsum, en ég verð hreinlega að vera sammála því sem Ásgeir Helgi skrifar á Deiglunni í gær:

Ég hafði aldrei tekið eftir þessu fyrr, en það er staðreynd að stúlkur, rétt um fermingaraldur klæða sig margar hverjar eins og mellur.

Vandamálið er ekki að fermingarstelpurnar klæði sig einsog þær séu fullorðnari en þær eru, heldur er vandamálið að þær klæðast fötum, sem að stelpur á framhaldsskóla-aldri og uppúr, myndu aldrei klæðast nema á grímuballi. Það er alveg ljóst að ef maður hefur sérstakan áhuga á að sjá léttklæddar fermingarstelpur, þá voru tónleikarnir í gær staðurinn til að vera á. Þetta var allavegana nóg til að breyta mér í íhaldsmann í fyrsta skiptið. Kannski er þetta bara aldurinn. Allavegana klæddust stelpurnar ekki svona í minni sveit þegar ég var á þessum aldri. Ég hefði þó sennilega verið alsæll með það ef svo hefði verið.

Aldursbilið var talsvert þrengra en á flestum tónleikum, sem ég hef séð. Þeir allra elstu virtust vera um þrítugt og svo náði þetta niður í um 12-13 ára krakka. Þeir elstu voru auðvitað þarna útaf Doggystyle, en þeir yngri hafa sennilega hrifist af Snoop í gegnum dúettana, sem hann hefur flutt að undanförnu. Allavegana var mest fagnað þegar Drop it like it’s hot var spilað, en minna fagnað þegar að Wit Dre Day og hans bestu lög komu. Sem er magnað.

3 ummæli hingað til

Jul 18 2005

Pad Thai

skrifaði í flokkinn Almennt

Fokk, hvað Pad Thai á Krua Thai er gott.

Verst að þetta er ekki beinlínis hollasti matur í heimi.

Comments Off

Jul 18 2005

Upptökur

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Þetta er búinn að vera skrítinn en skemmtilegur dagur. Fyrir það fyrsta stóðu yfir upptökur á nýjum sjónvarspauglýsingum fyrir vörumerki, sem ég stjórna. Þess vegna var ég óvenju lítið inní vinnu, en var þess í stað niðrí Saga Film, þar sem ég fylgdist upptökum á auglýsingunni.

Hef aldrei fylgst með upptökum á svona auglýsingu fyrr, en þetta var nokkuð skemmtilegt. Þetta er einn af þessum hlutum, sem gera vinnuna mína skemmtilega og brýtur upp daglegt stress. Held að ég hefði hvort eð er ekki höndlað það að vera fyrir framan tölvuna í góða veðrinu, þannig að þetta var kærkomið.


Um hádegi fékk ég svo símtal frá Agli Helgasyni, þar sem hann bað mig um að koma í Ísland í Dag í kvöld til að ræða um veðurfærsluna mína. Hann sagði að sér hefði verið bent á þessa færslu og vildi ræða hana við mig. Fyrsta hugsunin var að þetta væri eitthvað djók, en ég þekkti röddina hans, svo að það var ljóst að þetta væri alvara. Ég sagðist auðvitað vera til í þetta.

Þannig að ég fór snemma úr vinnunni, dreif mig heim, rakaði mig og keyrði svo uppá Stöð 2. Mætti voðalega tímanlega þangað uppeftir, en það virðist vera þannig að það gerist ekkert fyrr en að 5 mínútur eru í útsendingu. Þannig að ég sat bara þarna og las Séð & Heyrt. Svo þegar útsendingin var að byrja var ég drifinn í smink og svo inná sett.

Ég er ekki búinn að horfa á þáttinn, ætla að kíkja á hann á Stöð2 + eftir nokkrar mínútur, en mér fannst þetta ganga nokkuð vel. Var settur á móti einum veðurfræðingnum (ekki þó Sigga Storm, einsog Egill talaði um, heldur Guðríður sem flytur líka veðurfréttir á Stöð 2). Ég þuldi þar upp tölfræðina og uppúr því kom smá umræða. Það var þó enginn að mótmæla þessum niðurstöðum mínum. Eiginlega voru allir sammála um þetta. Einu mótmælin voru þau að það væri meiri rigning í Bergen. Svo viðurkenndi veðufræðingurinn að þau reyndu að finna svona tölur, sem myndu líta vel út fyrir Íslendinga. Svo sem alveg skiljanlegt, þar sem hún talaði um að fólk skammaði hana fyrir veðrið útá götu.

En þetta var fínt, fólkið var voða nice og þetta gekk vel fyrir sig. Eina var að þau gleymdu að plögga bloggið mitt. En ég meina hey.


Uppfært (EÖE): Jæja, búinn að horfa á þetta. Þetta var bara nokkuð fínt. Hélt að ég hefði stamað eitthvað á Tíbet-dæminu, en það var voðalega ómerkilegt. Þannig að ég er bara nokkuð sáttur við þetta fyrsta sjónvarpsviðtal mitt.

7 ummæli hingað til

Jul 18 2005

Í í D

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Allir að horfa á Ísland í Dag klukkan 18.18 í kvöld. Umræðuefnið er geysi spennandi: Leiðinlegasta sumarveður í heimi.

2 ummæli hingað til

Jul 17 2005

Dagurinn í dag

skrifaði í flokkinn Dagbók

Búinn að þrífa íbúðina mína. Búinn að hlaupa 8 kílómetra í sólinni.

Er á leiðinni í BBQ boð og svo á SNOOP!!! Jamm, þetta er góður dagur.


Fór á djammið á föstudaginn. Lá í leti í gær. Hef ekki skrifað á þessa síðu í heila fjóra daga. Magnað að maður skuli ekki hafa meira að segja eftir slíka hvíld.

Comments Off

Jul 17 2005

Atvinnu-auglýsing

skrifaði í flokkinn Vinna

Ein ummæli hingað til

Jul 13 2005

Hjólhýsi og wife swap

skrifaði í flokkinn Almennt

Magga fjallar um hjólhýsaæði landans. Hún er besti bloggari landsins, segi ég og skrifa.


Á þessi Wife Swap þáttur virkilega að vera skemmtilegur? Ég náði ekki að standa uppúr sófanum eftir að Liverpool leikurinn kláraðist og festist yfir þessum þætti. Þetta er hryllilega leiðinlegt. Án efa í síðasta skipti sem ég hlusta á Bo Halldórs. “Nýjasta æðið í bandarísku sjónvarpi” my ass.

Ég er ferlega þreyttur. Fór í körfubolta eftir vinnu og svo komu nokkrir vinir í heimsókn til að horfa á Liverpool leikinn. Núna get ég varla staðið uppúr sófanum.


Færslan mín um leiðinlega sumarveðrið var listuð á b2.is (gamla Batman) og það þýddi að 3000 manns skoðuðu þá færslu. Ekki einn af þessum þrjú þúsund kommentaði á færsluna, sem mér finnst magnað.

En allavegana, það er ekki enn búið að boða mig í Kastljósið til að tala um þessa stórkostlegu uppgötvun mína! Ég meina, ég, hagfræðingurinn Einar Örn uppgötvaði það að á Íslandi er leiðinlegasta sumarveður í heimi!!! Þetta er senninlega ein af fimm merkilegustu uppgötvunum Íslandssögunnar og mun sennilega hafa hræðilega afleiðingar fyrir íslenska þjóðarsál.

Veðurfræðingarnir í fréttunum passa sig á því að minnast alltaf á það þegar það er kalt í Evrópu eða rigning á Spáni, sérstaklega þegar það er sól á Austurlandi á sama tíma. Það er gert til að búa til þann ímyndaða rauveruleika að veðrið hérna sé eðlilegt og í einhverju samræmi við veður í öðrum löndum. Það er hins vegar bull.

En svona er þetta.

4 ummæli hingað til

Jul 12 2005

QOTSA og Sufjan Stevens

skrifaði í flokkinn Tónlist

Ég var að komast að því að “Lullabies to Paralyze” með Queens of the Stone Age er helvíti góð plata. Hún fellur í sama hóp og Time out of Mind, það er að hún byrjar svo hroðalega leiðinlega að ég gafst eiginlega uppá að hlusta á hana. Ég hlustaði nokkrum sinnum á hana stuttu eftir að hún kom út, en byrjunin er svo leiðinleg að ég dæmdi alla plötuna út frá henni. Það voru mistök.

Eiginlega byrjar “Lullabies” ekki af alvöru fyrr en á “In My Head”, sem er lag númer 6. Eftir það er platan virkilega góð. Fyrsta lagið á plötunni er djók, svo koma nokkur lög sem eru einungis la la. Eftir miðbikið, færist hins vegar fjör í þetta. I Never Came er að ég held eitt besta lag þessa árs og hin lögin eru öll virkilega góð, sérstaklega Blood is love, Someone’s in the wolf og Broken Box. Ja hérna…


En þessi plata er samt ekki jafn góð og Illinois með Sufjan Stevens. Sú plata er stórkostleg snilld. Gunni vinur minn mældi með henni við mig fyrir nærri því tveimur mánuðum, en ég var lengi að gefa henni sjens. Ég ætti að vita betur, því ég hlusta alltaf á ráðleggingar hans í tónlist. Og jú, platan er frábær.

Held að þetta sé besta plata ársins hingað til ásamt Blinking Lights… með Eels.

4 ummæli hingað til

Jul 12 2005

McD búningar

skrifaði í flokkinn Viðskipti

Þetta er stórkostlegt: McDonald’s ætlar að eyða 80 milljónum bandaríkjadala í að fá hip-hop tískufyrirtæki einsog SeanJohn, Tommy Hilfiger, Fubu og fleiri til að hanna nýja búninga á starfsfólk staðanna.

Ég hannaði Serrano búningana með einhverjum gaur hjá bolafyrirtæki á svona 15 mínútum og að mínu mati eru þeir umtalsvert smekklegri en McDonald’s búningarnir, þannig að þetta ætti að vera auðvelt verk.

2 ummæli hingað til

Jul 11 2005

Leiðinlegasta sumarveður í heimi

skrifaði í flokkinn Almennt

Ég er vanalega ekki mikill svartsýnismaður, en þetta veður hefur alveg stórkostleg áhrif á mig. Veðrið fer nær aldrei í taugarnar á mér á veturna. Mér er alveg sama þótt að veturnir séu harðir. Hins vegar vil ég hafa almennilegt sumarveður, þar sem ég get verið úti á stuttermabol, get labbað um bæinn án þess að fjúka og get grillað án þess að blotna.

Ég lýsti í síðustu færslu eftir hugmyndum að því hvort það væri eitthvað land í heimi, sem þyrfti að þola jafn ömurlega leiðinlegt sumarveður og við Íslendingar. Einhverjar tillögur komu, til dæmis Grænland, Falklandseyjar, Bhútan og Mongólía.


Ég ákvað að skoða þetta aðeins betur og fletta upp veður-upplýsingum frá þessum stöðum og bera saman við Reykjavík. Það er auðvitað ekki hægt að bera saman veðurfar í heilum löndum, þannig að ég miða við höfuðborgir. Niðurstöðurnar eru magnaðar:

Hérna er meðalhitinn í Reykjavík. Meðalhitinn í besta mánuðinum, Júlí, er Júlí með heilar 13 gráður.

Ok, hvaða staðir koma þá til greina sem kandídatar fyrir leiðinlegasta sumarveður í heimi? Prófum höfuðborgina í Mongólíu. Nei, meðalhitinn þar í besta mánuðinum er 22 gráður. Hvað með Moskvu? Nei, hitinn er líka 22 gráður í heitasta mánuðinum þar, langt yfir Íslandi. Wellington á Nýja Sjálandi? Neibbs, hitinn er 19 gráður í bestu mánuðinum. En Alaska (teygjum þetta aðeins, líkt og Alaska væri sér land)? Veðrið hlýtur að vera verra þar! Ha? Neibbs, hitinn í besta mánuðinum þar er 18 gráður.

Í örvæntingunni minni þá ákvað ég að prófa Grænland og leitaði uppi meðalhitann í Narsarsuaq (það eru ekki til upplýsingar um Nuuk). Og vitiði hvað?

MEÐALHITINN Í NARSARSUAQ Á GRÆNLANDI ER HÆRRI EN Í REYKJAVÍK!!!

Meðalhitinn í Narsarsuaq í júlí er 14 gráður, eða 1 gráðu hærri en í Reykjavík. Þetta er hreinasta sturlun!

Þannig að með öðrum orðum, þá get ég ekki fundið land með verra sumarveður en Ísland!

Hvernig getum við mögulega verið hamingjusamasta þjóð í heimi þegar að við erum með leiðinlegasta sumarveður í heimi? Eru allir nema ég á prozac?


Uppfært (EÖE): Ágúst Fl. er með svipaðar pælingar á sinni heimasíðu og hann kemst að sömu niðurstöðu og ég.

17 ummæli hingað til

Jul 10 2005

Sunnudagur til sjónvarpsgláps

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég fokking HATA þetta veður!

Í alvöru talað, á ekki að vera sumar hérna? Er einhver þjóð í HEIMINUM fyrir utan Grænland, sem þarf að þola annað eins veðurfar og við Íslendingar? Í alvöru talað!

Það er eflaust hægt að finna lönd, þar sem veturnir eru miklu verri, en er í alvöru hægt að finna land þar sem sumrin eru jafnömurleg? Kræst!


GSM símar geta verið erfið tæki. Til dæmis eru númerabirtar á öllum GSM símum. Segjum sem svo að þú viljir ná í ákveðna manneskju. Læturðu eitt símtal duga, þar sem að númerið sést á síma viðkomandi, eða hringirðu aftur og aftur og átt þá á hættu að líta út einsog geðsjúklingur þegar að viðkomandi sér 10 “missed calls” frá þér? Lífið væri einfaldara ef að enginn væri með GSM.


Annars er ég búinn að liggja í leti í dag. Ljómandi skemmtilegt alveg hreint. Kíkti útá lífið með vinum á föstudagskvöld. Ætluðum á Ólíver og vorum mættir þar um 11 leytið, en þar var gjörsamlega stappað. Þannig að við enduðum á Vegamótum. Aðsóknin á þann stað virðist algjörlega hafa hrunið eftir að Ólíver opnaði. Það var hálftómt inni alveg til klukkan 2 þegar dansgólfið byrjaði að fyllast af ofurölva 16 ára stelpum. Ljómandi skemmtilegt. Fengum okkur bara nokkra bjóra og vorum nokkuð rólegir.


Horfði á sjónvarpið í dag. Þar á meðal Newlyweds, sem er algjör snilld. Jessica Simpson er óþrjótandi uppspretta misgáfulegra kommenta.

Horfði einnig á The Apprentice. Það er eini raunveruleikaþátturinn, sem ég myndi vilja taka þátt í (kannski fyrir utan Dismissed og amerísku útgáfuna af The Bachelor). Mér finnst alltaf einsog ég hefði getað gert svo miklu, miklu betur en þetta fólk í þættinum. Þetta snýst í raun langflest um eitthvað varðandi markaðssetningu og að starta einhverju nýju, sem ég held að ég gæti staðið mig vel í.

Kláraði líka að horfa á 24, sem endaði skemmtilega.

Já, og kláraði að horfa á Return of The King. Kannski er það bara ég, en mér finnst öll þessi Lord of the Rings sería vera fáránlega ofmetin. Þetta er ágætt, en alltof langdregið. Ég held að ég hafi horft á síðustu myndina í svona 8 hlutum.

12 ummæli hingað til

Eldri færslur »