Jul 07 2005

Hálfvitar

uppfærði klukkan 16:44 í flokkinn Almennt

Djöfulsins hálfvitar!

Systir mín býr í London og fer þarna oft um á leið heim til sín. Hún slapp þó við þessa árás. Guði sé lof.

2 ummæli hingað til

2 Ummæli við færsluna “Hálfvitar”

  1. Arndís
    # - þann 10 Jul 2005 klukkan 2:18

    Já, gott hún býr ekki í Pakistan eða Írak, hún væri í enn meiri hættu þar.

    Og hvaða hálfvitar eru það sem bera ábyrgð á því?.. Það vill gleymast.

  2. Einar Örn
    # - þann 10 Jul 2005 klukkan 13:21

    Ó plís!

    Ég er á móti stríðsrekstrinum í Írak. Hins vegar er það magnað ef þú sérð engan mun á stríðsrekstri, þar sem reynt er að takmarka mannfall óbreyttra borgara (ekki reyna að halda öðru fram) og hryðjuverkum, þar sem reynt er að drepa sem flesta.

    Einnig, það dóu sennilega fimm hundruð manns í bílslysum í Bandaríkjunum í síðustu viku. Ert þú ekki sorgmædd yfir þeim slysum? Eru ekki líkur á því að þú myndir taka það meira nærri þér ef bara ein manneskja, sem býr í sömu götu og þú, myndi deyja í bílslsysi?

    Ég þoli ekki þegar fólk agnúast útí það að menn skrifi um dauða í einu landi með þeim rökum að miklu fleiri deyji í Langt-í-burtu-stan. Það er fullkomlega eðlilegt að við tökum dauðsföll nærri okkur mun verr en dauðsföll fjarri okkur. Það sama á alveg við um fólkið í Írak og Afganistan, sem og alla jarðarbúa.