Oct 20 2005
Heitustu málin í dag
Aðalumræðuefni í þættinum Ísland í dag í kvöld:
Á Unnur Birna fegurðardrottning að fara á Miss World í íslenska þjóðbúningnum eða síðkjól?
Ja hérna. Er það ekki einhvers konar met að geta talað um þetta málefni í 15 mínútur?
3 Ummæli við færsluna “Heitustu málin í dag”
# - þann 20 Oct 2005 klukkan 19:54
Hefurðu eitthvað pælt í því hvernig þetta verður þegar það verður komin “fréttastöð” sem sendir út ALLAN sólarhringin?
Þá verður væntanlega farið í hluti eins og skó, undirfatnað, skartgripi og þess háttar sem fegurðardrottningin verður að hafa með sér…
Strumpakveðjru
# - þann 20 Oct 2005 klukkan 22:36
Jamm, sama hvað menn reyna að tauta um að þetta verði voðalega spennandi stöð, þá hreinlega get ég ekki séð það gerast.
# - þann 21 Oct 2005 klukkan 0:29
Mér fannst áhugavert að viðmælendurnir voru báðir sko mjög sko sammála sko.
Um hvað?
Jú að það gæti verið einhver tvískinnungur fólgin í því að standa í kvennréttindabaráttu samhliða þátttöku í fegurðasamkeppni.
Ég hefði verið spenntur fyrir því að fá followup spurninguna: af hverju ertu þá að taka þátt?
Merkilegt að spyrlar hafi ekki slysast á þá spurningu á þeim 15 mín (treysti tímatökunni þinni!) sem viðtalið stóð.