Oct 26 2005
Augnabrýr
Er Vilhjálmur Þ, Sjálfstæðismaður búinn að láta plokka augnabrýrnar?
Hann hlýtur að vera án efa mest metrósexúal frambjóðandinn. Húrra fyrir honum. Hver var samt tilgangurinn með kappræðum hans og Gísla Marteins í Kastljósinu síðasta fimmtudag? Kappræðurnar eru án efa súrustu sjónvarpskappræðurnar í sögu lýðveldisins. Stjórnendur þáttarins hefðu náð sama árangri með því að spyrja bara tveggja spurninga: 1. “Vilhjálmur: Ert þú betri en Gísli Marteinn?” og 2: “Gísli: Ert þú betri en Vilhjálmur?”.
Ekki gott. Gísli Marteinn lofaði svo lægri sköttum, en þegar hann var spurður að því hvar hann ætlaði að fá peningana fyrir skattalækkunum, þá sagði hann að hann trúði því að frambjóðendur í prófkjöri ættu ekki að setja fram loforð. Magnað.
7 Ummæli við færsluna “Augnabrýr”
# - þann 27 Oct 2005 klukkan 0:07
hahaha!
þetta er mögnuð pæling.
# - þann 27 Oct 2005 klukkan 9:25
úff.. aðeins of mikið close-up fyrir minn smekk :confused:
# - þann 27 Oct 2005 klukkan 9:35
Jamm, þetta er rosaleg upplausn á fyrri myndinni.
# - þann 27 Oct 2005 klukkan 13:16
Herru held að rakarin hafi rakað þær á honum í stað plokkunar.
Metrosexual hárgreiðslugæjin minn hefur reint að gera þetta…
meiriháttar góð pæling hjá þér samt.
# - þann 27 Oct 2005 klukkan 13:27
Hvernig er það, varst þú ekki Chicago White Sox fan #1 á Íslandi?
# - þann 27 Oct 2005 klukkan 13:59
Nei, Chicago Cubs, en ég gleðst samt yfir því að Chicago skuli fá titil. Borgin á það allavegana skilið.
# - þann 28 Oct 2005 klukkan 8:33
Maður segir “augabrúnir” ekki “augnabrýr”