Skráarsafn fyrir November, 2005

Nov 30 2005

Ég er þreyttur

skrifaði í flokkinn Netið

Í dag: Vinna frá 8-22. Þreyttur, en það er góð þreyta. Finnst einsog ég hafi klárað slatta. Vann meira að segja yfir Liverpool leiknum í kvöld. Tók saman laun og slíkt fyrir Serrano á meðan ég horfði á frekar daufan leik.

Get hins vegar lítið sem ekkert skrifað hingað inn. Er of þreyttur og ánægður til að skrifa of mikið inná þessa síðu. Þetta kemur allt.

Annars er það helst í fréttum að aularnir á Pitchfork skrifa plötudóm, sem ég er 100% sammála! Merkilegt, ekki satt?

Svo hélt ég í World Class að einhver hefði stolið Nano-inum mínum. Var nálægt því að fá móðursýkiskast og að byrja að kalla fólk í kringum mig illum nöfnum. Kom heim og sá að hann var þá staddur í óhreina taujinu mínu. Sú hrúga stækkar óðum.

Fokk fokk fokk, hvað líf mitt er lítið spennandi þessa dagana. Þarf að fara að gera einhvern skandal.

Já, og svo mæli ég með þessu. Lokaþátturinn í bachelor er víst á morgun. Það verður skrautlegt.

4 ummæli hingað til

Nov 28 2005

Elvis og skotárásir í Írak

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Hérna á þessari síðu er hægt að skoða þetta myndband þar sem sýnt er hvar bandarískir öryggisverðir frá einkareknu öryggisfyrirtæki skjóta á almenna borgara að því er virðist þeim til skemmtunar.

Til að gera þetta enn súrealískara er þetta allt gert undir tónlist Elvis Presley. Sjá frétt um þetta í Sunday Telegraph. Málaliðar á vegum Bandaríkjamanna hafa áður valdið ólgu í Írak, en hegðun þeirr var upphafið af uppreisninni í Fallujah.

Já, og forsætisráðherra Íraks segir að mannréttindabrot séu núna alveg jafn slæm og þau voru í Írak undir stjórn Saddam Hussein. Hvað ætli Halldór og Davíð segi við því?


Einnig mæli ég með þessari grein:

In e-mails to his family, Westhusing seemed especially upset by one conclusion he had reached: that traditional military values such as duty, honor and country had been replaced by profit motives in Iraq, where the U.S. had come to rely heavily on contractors for jobs once done by the military.

Westhusing, virtur yfirmaður í bandaríska hefnum fannst látinn fyrr á árinu. Í vagninum hans fannst miði með þessari spurningu:

How is honor possible in a war like the one in Iraq?

7 ummæli hingað til

Nov 27 2005

Hlutir, sem ég hef lært yfir helgina

skrifaði í flokkinn Dagbók

Hlutir, sem ég hef lært yfir helgina

  1. Það á ekki að blanda saman rauðvíni, hvítvíni, vodka, líkjör og bjór
  2. Það er ekki fræðilegur möguleiki á að halda uppi samræðum á Vegamótum. Hreinlega ekki sjens.
  3. Hverfisbarinn er enn opinn.
  4. Það að fara í fótbolta klukkan 11 daginn eftir djamm er ekki gaman.
  5. Það að öskra yfir fótbolta þegar að John-Arne Riise skorar er ekki gott fyrir hausinn minn.
  6. Að borða uppáhaldsmatinn minn, kalkún í thanksgiving boði hræðilega þunnur er ekki skemmtilegt.

Comments Off

Nov 24 2005

Sælar stúlkur, þið lítið vel út í dag

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Þulurinn í íslenska “Bachelor-num” talar yfir lautarferð tveggja þáttakenda í San Fransisco. Útúr honum kemur eftirfarandi SNILLD:

Súr eða sæt orð fyrst og fremst ætluð eyrum tveggja blandast Nizza súkkulaðinu, sem læddist með að heiman.

BESTA . LÍNA . Í . ÍSLENSKU . SJÓNVARPI . EVER !


– BATCHELOR SPOILER –

Ég hef ekki horft á síðustu þrjá þætti af Bachelornum, en í kvöld var ég að gera vaktaplan á Serrano fyrir jólin, sem er gríðarlega mikið púsluspil og því hafði ég þáttinn á í bakgrunninum. Það var vel þessi virði enda var rósa athöfnin án efa einn neyðarlegasti sjónvarspviðburður á Íslandi fyrr og síðar.

Fyrir þá, sem sáu þáttinn ekki og ætla ekki að horfa á hann, þá voru þrjár stelpur eftir. Þegar að gaurinn velur fyrstu stelpuna af tveim til að gefa rós, þá hafnar hún honum (þetta var að mínu mati langframbærilegasta stelpan í þættinum – og alltof sæt fyrir þennan gaur). Þá voru eftir tvær stelpur, en augljóst að hann hafði bara ætlað að hafa aðra þeirra áfram. Eftir að fyrsta stelpan hafnar honum, kallar hann á þá næstu og hún þiggur rósina. Svo þarf hann að kalla á þá þriðju, sem er ein eftir og eflaust sú, sem hann ætlaði ekki að velja í upphafi.

Þegar hann býður henni svo rósina, þá vill hún ekki taka við henni vegna þess að hún heldur að rósin hafi verið ætluð fyrstu stelpunni. Þá tekur við vandræðalegasta móment í sögu sjónvarps. Bachelorinn áttar sig á að það gæti endað svo að tvær stelpur myndu hafna honum í þættinum og hann myndi sitja eftir með síðustu stelpuna. Þetta var stórkostlegt sjónvarpsefni. Hann varð greinilega fúll þegar hún hafnaði honum, en að lokum ákvað hún að þiggja rósina með semingi og án þess að kyssa hann takk.

Það er varla hægt að lýsa þessu almennilega. Hvet fólk til að skoða atriðið þegar að þátturinn kemur á netið. Það er vel þess virði. :-)

Ég er orðinn verulega spenntur fyrir lokaþættinum, sem hlýtur að verða stórkostleg skemmtun. En allavegana, ég ætla að drífa mig útí búð og kaupa mér Nizza.

9 ummæli hingað til

Nov 22 2005

Ný myndasíða!

skrifaði í flokkinn Myndablogg

Ein stærsta ástæðan fyrir því að ég ákvað að skipta um server fyrir þessa síðu er sú að síðan var hýst á Windows server, sem býður ekki upp jafnmarga möguleika og aðrir server-ar.

Ég var spenntur fyrir því að bæta þessa síðu og þá sérstaklega myndahluta síðunnar, sem hefur verið mjög illa haldinn að undanförnu. Útlitið á síðunum var ljótt og auk þess var hrikalega erfitt og flókið fyrir mig að uppfæra myndasíðurnar og því gerði ég það nánast aldrei.

En núna hef ég gert bót á. Ég fann fullkomlega lausn á Stopdesign (og borgaði fyrir lausnina), sem ég hef núna nýtt mér á þessari síðu (og íslenskað mestallt).

Því kynni ég: Nýja myndasíðu – klapp klapp!

Til að byrja með er ég búinn að setja inn fyrstu tvær vikurnar frá Mið-Ameríkuferðinni (auk nokkurra eldri mynda frá Rússlandi og Tyrklandi):

Mexíkó
El Salvador

Þessi nýja myndasíða er gasalega grúví að mínu mati. Fyrir það fyrsta þá eru myndirnar stórar og flakk á milli mynda mjög einfalt, hvort sem myndirnar eru láréttar eða lóðréttar. Einnig, þá er hægt að kommenta á hverja einustu mynd og síðan heldur utan um kommentin á einum stað, Einnig er hægt að gerast áskrifandi að RSS uppfærslum á nær öllu á þessari myndasíðu. Mjög sniðugt fyrir þá, sem hafa brennandi áhuga á mínu lífi og kunna á RSS.

En annars, þá eru þetta mínar myndir, sem ég set aðallega upp fyrir mína vini og fjölskyldu. Það má því EKKI nota myndirnar í einhverjum annarlegum tilgangi, nema með mínu leyfi. Og plís, plís, plís ég nenni ekki að lesa komment einsog: “Uh, af hverju ertu alltaf að taka myndir af sjálfum þér?” Ef fólk þolir ekki að sjá myndir af mér, þá á það að sleppa því að skoða þessa síðu. Blogg er gríðarlega sjálhverft og myndasíður á bloggsíðum eru það ekki síður.

Athugið að myndasíðan virkar best í nýlegum vöfrum, það er FireFox á PC og Safari eða FireFox á Mac. Hún virkar ágætlega í Explorer á PC, en er fallegri í FireFox. Ef þú ert enn að nota Explorer á PC, í Guðanna bænum skiptu yfir í FireFox. Trúið mér, það margborgar sig!

En allavegana, ég vona að einhverjir hafi gaman af. Ég ætla að setja inn restina af myndunum frá Mið-Ameríku á næstu dögum.

3 ummæli hingað til

Nov 21 2005

Gullkindin

skrifaði í flokkinn Dagbók

Á heimasíðu XFM geta menn núna kosið um Gullkindina, sem eru verðlaun útvarpsþáttarins Capone fyrir ýmsa hluti, sem hafa þótt óvenju lélegir á árinu. Þarna er m.a. hægt að velja uppákomu ársins (ég kaus Kristján Jóhannsson og rauðu brjóstin), versta sjónvarpsþáttinn (of margir möguleikar!), verstu plötuna og svo framvegis.

Þegar að X-ið dó þá bölvaði ég því mikið að Tvíhöfðamenn hefðu hætt með útvarpsþáttinn sinn. Fyrstu daga X-FM var Freysi af X-inu með sinn eigin morgunþátt og hann var ekki alveg að virka. Hann átti sína spretti þegar að Freysa þátturinn var að byrja á X-inu, en þetta virtist ekki vera að verka á X-FM.

Allavegana, eftir að ég kom heim úr fríinu hef ég uppgötvað að Capone, morgunþátturinn, sem Andri (Freysi) og Búi Bendtsen stjórna er allt í einu orðinn hreinasta snilld! Þeir þurftu greinilega smá tíma til að slípa þáttinn saman. En núna reddar þessi þáttur algjörlega keyrslunni minni í vinnuna á morgnana. Hann er í raun svo góður að ég held oft áfram að hlusta þegar ég kem inná skrifstofu. Án efa langbesta útvarpsefnið á morgnana, enda samkeppnin svosem ekki burðug.


Ég veit að ég er með sér síðu, þar sem ég skrifa um fótbolta. En hún fjallar um Liverpool og ég vil tjá mig um hitt uppáhaldsliðið mitt, Barcelona. Á laugardaginn fékk ég þrjá góða vini hingað heim og við horfðum á Barca taka Real Madrid í kennslustund. Ronaldinho hreinlega jarðaði dýrasta varnarmann Spánar og hina trúðana í þessu Madridar-liði. Zidane virkaði einsog sjötug amma við hliðiná Ronaldinho. Barca er í dag besta lið í heimi, svo einfalt er þetta.

Annars fórum við eftir leikinn á Hornið og svo á Vegamót. Ég held að ég verði að fara að horfast í augu (haha) við þá staðreynd að ég þarf að fara að nota gleraugu á djamminu. Ég fíla gleraugun ágætlega, en kann þó betur við mig án þeirra og fíla betur hvernig ég lít út án þeirra.

En ástandið er hreinlega orðið þannig að ég get ekki greint stelpur á skemmtistöðum borgarinnar, nema að þær séu innan við svona 3-4 metra radíus. Ég get allavegana sjaldan greint hvort þær séu myndarlegar eður ei, nema að ég sé kominn uppað þeim. Þetta er sambland af því að sjónin er að versna hjá mér og svo að ég sé svo miklu verr í myrkri en í birtu. Á daginn er þetta allt í fína, en þetta versnar á kvöldin.

Svo er ég líka svo gáfulegur með gleraugu.


Komst að því á laugardaginn að ég á vin, sem fílar líka The O.C., þannig að ég get hætt að vera með einhverja komplexa yfir því að elska þá þætti. Ekki að þeir komplexar hafi angrað mig mikið hingað til.


Já, og myndbandið við þessa frétt á BBC er snilld.

8 ummæli hingað til

Nov 18 2005

Halló aftur

skrifaði í flokkinn Netið

Krææææææst!

Smá breyting á server, sem átti ekki að taka nema nokkra klukkutíma endaði á því að taka 4 daga og kallaði á endalaust vesen og pirring.

En síðan er komin upp. Reyndar í tómu rugli, en það lagast. Er komin með Movable Type 3.2 og get ekki importað gömlu færslunum. Þær koma allar með einhverja fucked-up íslenska stafi (hefur einhver reynslu af þessu?).

Allavegana, ég ætla að koma síðunni í lag á næstu dögum og svo smám saman koma upp þeim hlutum, sem ég ætlaði að bæta við á nýjum server. Þetta verður allt mikið betra.

En núna er ég hins vegar fullkomlega uppgefinn. Þetta er búinn að vera erfið vika í öllum hugsanlegum merkingum þess orðs. Núna ætla ég að leggjast niður á sófann, klára Chow Mein-ið mitt og horfa á sjónvarpið. Ég á hvíldina skilið, sama hvað þið segið.

4 ummæli hingað til

Nov 09 2005

Down to the river

skrifaði í flokkinn Tónlist

bruce_springsteen38.jpgSamband mitt við Bruce Springsteen er býsna skrýtið. Bróðir minn var (er) mikill Bruce Springsteen aðdáandi og þegar ég var lítill og horfði upp hans, þá reyndi ég að komast inní tónlist Springsteen. Átti einhverjar plötur með honum, en var eiginlega fastur í Born in the U.S.A. og elskaði þá plötu útaf lífinu þegar ég var kannski 10 ára gamall.

Svo varð ég eldri og ákvað að Springsteen væri hallærislegur (og þá sérstaklega Born in the U.S.A.) og nennti ekki að hlusta á hann lengur. En fyrir nokkrum árum eignaðist ég The Rising, plötuna sem Springsteen samdi eftir 11.september og varð aftur hrifinn. Ákvað að gefa honum aftur sjens.

Og hef ekki séð eftir því.

Hef verið fastur í eldgömlu efni, sem Bruce samdi þegar hann var á svipuðum aldri og ég er núna. Einhvern veginn finnst mér ég geta tengt við svo margt af þessu, þrátt fyrir að okkar líf séu náttúrulega einsog svart & hvítt.

Allavegana, ég þekki ekki einn einasta mann á mínum aldri, sem fílar Springsteen, þannig að ég ætla að reyna að breiða út boðskapinn. Ég held að góð leið sé að byrja á uppáhaldslaginu mínu með honum, The River af samnefndri plötu:

The River – Bruce Springsteen – 4,8 mb – MP3 skrá

Þetta lag er hreint stórkostlegt. Ég fæ gææææsahúð þegar ég heyri í munnhörpunni í byrjun lags.

Her body tan and wet down at the reservoir
At night on them banks I’d lie awake
And pull her close just to feel each breath she’d take
Now those memories come back to haunt me
they haunt me like a curse
Is a dream a lie if it don’t come true
Or is it something worse
that sends me down to the river
though I know the river is dry
That sends me down to the river tonight

Fyrir byrjendur, þá mæli ég hiklaust með allri The River plötunni og svo Born to Run, en titillagið á þeirri plötu er einmitt annað uppáhaldslagið mitt með Springsteen. Gefið manninum sjens.

12 ummæli hingað til

Nov 08 2005

Bestu ár ævinnar?

skrifaði í flokkinn Vinna

Ég er svo rómantískur að jafnvel þær markaðsherferðir, sem ég stjórna, eru rómantískar. Það kalla ég afrek.


Ég er búinn að eyða þremur klukkutímum í gær og í dag í að skrifa eitt bréf. Það er erfitt að skrifa þegar maður er óviss um efnið eða hverju maður vill koma frá sér. Ég er ruglaður í dag…


Í Kastljósi í kvöld var viðtal við strák úr framhaldsskóla. Hann sagði: “Svo vita allir að bestu ár ævinnar eru árin í framhaldsskóla”.

Er það, já, virklega?

Ég átti samtal um þetta mál útí Amsterdam. Var spurður hvort ég teldi að árin mín í háskóla í USA (sem mér fannst reyndar skemmtilegri en framhaldsskóla-árin) yrðu í framtíðinni talin bestu ár ævi minnar. Ég sagði nei, ég væri ákveðinn í því að þau yrðu það ekki. Ég get hreinlega ekki lifað með þeirri hugmynd að skemmtilegustu ár ævi minnar séu liðin og get ekki skilið fólk, sem segir svona hluti.

Er það ekki algjör uppgjöf að sætta sig við slíkt? Að toppnum séð náð með dauðadrukknum krökkum á menntaskólaböllum á Hótel Íslandi?

Þetta er ein ástæðan fyrir því að ég bögga vini mína oft með það að gera hluti. Ég er ekki sáttur við að lifa lífinu í að vinna, slappa af og kaupa nýtt parket. Ég verð eiginlega bara reiður þegar ég heyri þetta um framhaldsskóla árin og er ákveðinn í að afsanna þessa kenningu, þrátt fyrir að framhaldsskólaárin mín (sérstaklega seinni tvö) hafi vissulega verið frábær.

Mér finnst hins vegar fullt af fólki á mínum aldri vera búið að ákveða þetta og sætta sig við. Það er, að þetta hafi verið bestu ár ævinnar og engin leið til að bæta um betur. Það þykir mér sorgleg.

7 ummæli hingað til

Nov 07 2005

Embla.is

skrifaði í flokkinn Netið

Embla er víst ný leitarvél, sem að okkar merki menntamálaráðherra opnaði fyrir einhverju síðan. Ég batt nokkrar vonir við að þetta yrði eitthvað skárra en leit.is. verð því miður að segja að ef að eitthvað er, þá held ég að þetta sé verri leitarvél en leit.is (uppfært (EÖE): ég er reyndar sannfærður núna um að hún sé betri en leit.is – það breytir ekki þeirri gagnrýni, sem hér fylgir)

Fyrir það fyrsta, þá heitir leitarvélin “Embla”, en á embla.is er hins vegar ferðaskrifstofa. Til að fara á Emblu, þarf maður því að fara á mbl.is/embla.

Ég tók nokkur tékk á leitarvélina og bar saman við leit.is

Prófaði fyrst leitarorðið “Serrano”. Á leit.is þá kemur serrano.is sem fyrsta niðurstaða einsog væri eðlilegt. Á emblu, þá kemur hins vegar serrano.is númer 11. Áður en að sú síða kemur upp koma nokkrar blogsíður, sem fjalla um Serrano. Sem betur fer, þá eru dómarnir jákvæðir, ólíkt því sem gerist þegar maður flettir upp Mcdonalds á Emblu eða Burger King.

(Þegar ég fletti í gegnum Serrano linkana rakst ég m.a. á þennan link þar sem ég er tilnefndur af ónefndum aðila sem Metró maður Íslands. Gríðarlegur heiður það.)

Ef ég ætla til dæmis að leita að Vesturbæjarlauginni, þá kemur mín eigin síða upp á leit.is, en á Emblu kemur umfjöllun Stefáns Pálssonar um laugina. Hvergi sést hins vegar heimasíða sjálfrar laugarinnar.

Í stuttu máli virðist þessi leitarvél vera alltof hrifin af bloggum, á kostnað þá þess sem bloggin eru að fjalla um. Ef ég skrifa færslu, sem heitir “Dominos er æði” þá er líklegt að sú færsla myndi verða hærra á listanum heldur en sjálf heimasíða Dominos. Ef mig vantar að panta pizzu á netinu (ef það er þá hægt), þá þyrfti ég að fara í gegnum 20 síður af bloggum um það hversu góðar eða vondar pizzurnar á þeim stað eru.

Ekki nógu gott. Ennþá eru engar leitarvélar, sem komast nálægt Google, jafnvel þegar að kemur að því að leita á íslenskum síðum. Mér er alveg sama þótt að leitarvélin “kunni íslensku” ef að niðurstöðurnar eru ekki nytsamlegar.

8 ummæli hingað til

Nov 07 2005

Breyting á server

skrifaði í flokkinn Netið

Ég er að breyta um server á eoe.is og Liverpool blogginu. Því gætu þessar síður legið eitthvað niðri næstu daga.

Biðst velvirðingar á þessu. Vonandi gengur þetta fljótt yfir.

Comments Off

Nov 06 2005

Djamm á Íslandi

skrifaði í flokkinn Dagbók

Í gær fór ég á djamm í Reykjavík. Það hefði seint talist til tíðinda, nema að ég hef ekki djammað í Reykjavík í einhverja 80 daga. Vegna ferðalaga hef ég verið erlendis nær allar helgar síðan um miðjan ágúst.

Þannig að síðan ég djammaði síðast í Reykjavík, þá hef ég djammað í Mexíkóborg, San Salvador, Roatan – Hondúras, Livingston – Gvatemala, Cancun – Mexíkó, Köln, Liverpool og Amsterdam. Það er ágætis árangur að mínu mati.

En semsagt í gær, þá var starfsmannapartý hérna í Vesturbænum og eftir það fór ég niðrí bæ. Fór fyrst á Prikið og svo á Ólíver. Ég veit ekki hvað það er, en mér finnst Ólíver hafa breyst slatta mikið. Einhvern veginn virðist standardinn hafa hrapað og auk þess var plötusnúðurinn í gær (Svala Björgvins og einhver gaur, að mig minnir) á sterkum lyfjum. Þegar ég var á dansgólfinu kom m.a. einhver hryllileg syrpa af íslenskum klysjulögum.

Einnig eru klósettmálin í algjöru rugli. Ég þarf að fá næði þegar ég pissa og því get ég ekki pissað í pissuskálar. En hins vegar þá virtust þeim, sem voru inni á klósettunum tveim, líða býsna vel. Ég þurfti því að bíða í um 10-15 mínútur eftir að komast að. Þegar að loksins annað klósettið opnaðist þá komu tveir gaurar út og voru alveg brjálaðir yfir því að fólk skyldi vera að banka á hurðina. Þeim fannst greinilega fullkomlega eðlilegt að vera þarna tveir inni í þennan tíma.

Ekki batnaði ástandið þegar að gaurinn, sem fór næstur inn var svo fullur að einhvern veginn tókst honum að rífa niður hurðina af klósettinu þegar hann hékk í henni. Þá ákvað ég að þetta væri komið gott og að ég gæti haldið í mér lengur. Þegar ég kom hins vegar upp aftur, þá var fólkið, sem ég var með, farið burt. Hafa sennilega haldið að ég hefði verið stunginn af, enda ekki eðlilegt að eyða 20 mínútum á karlaklósettinu.


En annars, þá á ég eftir þetta kvöld og reynslu undanfarinna helgia, erfitt með að skilja af hverju útlendingar sækja í íslenskt næturlíf. Fyrir það fyrsta, þá sá ég umtalsvert meira af sætum stelpum í Amsterdam, Liverpool og Mexíkóborg. Einnig er hvergi hægt að dansa á íslenskum skemmtistöðum. Ég batt vonir við Ólíver, en þar er núna alltof troðið af fólki á gólfinu. Það að vera á dansgólfinu á Ólíver í gær líktist því helst að vera í mosh pit á Limp Bizkit tónleikum.

En þrátt fyrir þetta skemmti ég mér ljómandi vel á djamminu. Síminn minn var orðinn batteríslaus þegar að ég týndi fólkinu, þannig að ég ákvað að fara bara niður á Pizza King, þar sem ég keypti mér pizzu og fór svo heim.


Notaði vekjaraklukku-og-excedrin-þynnkutrixið mitt og hef því verið alveg þynnkulaus í allan dag. Er búinn að taka til og núna er íbúðin mín ýkt fín. Horfði svo á Man U vinna Chelsea (sem er gott) og fór svo uppí Kringlu, þar sem ég vann í nokkrum hlutum.

Ljómandi góður dagur.

5 ummæli hingað til

Nov 04 2005

Prófkjör

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Það er eitthvað skrítið að koma yfir mig. Kannski eitthvað svipað og virðist vera að koma yfir Möggu. Mér líst nefnilega bara helvíti vel á Gísla Marten sem borgarstjóra. Nú hef ég aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn á minni ævi, en svei mér þá ef að ég myndi ekki freistast til að láta af því verða ef að Gísli myndi slá til. Kannski er þetta bara eitthvað stundarbrjálæði hjá mér og kannski mun ég eftir nokkra daga reyna að þræta fyrir það að ég hafi nokkurn tímann skrifað þessi orð. En svona líður mér í dag. Lesa áfram »

2 ummæli hingað til

Nov 04 2005

Vinna og tónlist

skrifaði í flokkinn Vinna

Ég er gjörsamlega uppgefinn.

Annan daginn í röð hef ég unnið frá 8 um morguninn til 5 í venjulegu vinnunni og svo allt kvöldið á Serrano. Í gær var ég í vinnu frá 8-23 og í dag frá 8-21. Í gær var ég mættur vegna vesens, en við það fékk ég svo mikið af hugmyndum að ég ákvað að vinna í þeim í dag. Sem ég og gerði. Líður vel, þrátt fyrir þreytuna.

Einhvern tímann í háskóla festist ég í tölvuleik, sem mig minnir að heiti Caesar. Dálítið í anda Sim City. Að vissu leyti finnst mér það að reka veitingastað vera dálítið líkt því að spila þennan leik. Málið var nefnilega að í leikjunum einbeitti maður sér að því að laga eitthvert vandamál. Á meðan maður einbeitti sér að því vandamáli, þá spruttu hins vegar upp 10 önnur vandamál. Þegar maður var búinn að laga þau, þá var gamla vandamálið, sem maður hafði leyst, aftur orðið að vandamáli.

Þannig gekk þetta endalaust. Að stjórna veitingastað er ekki ósvipað. Þegar maður einbeitir sér að því að laga eitt vandamál, þá koma önnur upp. Þegar maður lagar þau, þá kemur gamla vandamálið upp aftur. Þessi rekstur getur verið ofboðslega skemmtilegur (og er það að mínu mati 95% tímans), en líka svo ofboðslega frústrerandi þegar að maður þarf að endurtaka sömu hlutina aftur og aftur og svo kemst maður að því að vandamál, sem maður hélt að væru endanlega leyst, eru aftur orðin vandamál.

En svona er þetta. Merkilegt hvað ég hef þrátt fyrir allt gaman af þessum veitingastað.


Annars, þá var ég á labbi á laugaveginum fyrir einhverjum dögum og rataði inní Skífuna. Ætlaði að kaupa mér Cardigans diskinn (sem verður bæ ðe vei æ meiri snilld með hverri hlustun). Sá diskur var ekki til, en af einhverjum ástæðum fannst mér einsog ég þyrfti að kaupa eitthvað. Við kassann rakst ég á nýja diskinn með Hjálmum og keypti hann.

Allir (og ömmur þeirra) hafa verið að dásama þessa hljómsveit. Furðulegustu vinir mínir hafa talað um hana og fyrsta diskinn þeirra. Þetta lof fannst mér hálf skrítið, því ég sá ekki alveg appealið við sveitina. En á Snoop Dogg tónleikunum, þá heyrði ég 3 lög með þeim og varð bara nokkuð hrifinn.

Allavegana, mér fannst það nóg til að kaup diskinn og ég verð að játa að mér finnst hann virkilega góður. Diskurinn er búinn að renna í gegn (skv. iTunes) 10 sinnum hjá mér og ég hef haft hann líka í bílnum og þetta er góð tónlist. Frekar rólegt, en grípandi reggí. Nánast öll lögin hafa smogið inní hausinn á mér á einn eða annan hátt. Ég held að ég geti mælt með honum fyrir alla, sem hafa ekki uppgötvað þessa sveit enn sem komið er.

Ein ummæli hingað til

Nov 02 2005

Litli staðurinn okkar þriggja ára

skrifaði í flokkinn Vinna

Það er nánast lygilegt að hugsa til þess, en Serrano, litla barnið okkar Emils er orðinn þriggja ára gamall.

Fengum kort frá öllu starfsfólkinu í gær, sem mér þótti geðveikt vænt um. Annars var lítið gert í tilefni afmælisins. Við ætluðum að breyta alveg fullt af hlutum á staðnum, en sökum gríðarlegar þenslu á atvinnumarkaðinum, þá hafa starfsmannamál ekki reynst jafn auðveld og við hefðum óskað.

En breytingarnar munu koma, vonandi aðeins seinna í þessum mánuði. Ég mun kynna þær á þessari síðu, so stay tuned!

Stórt afmælispartý verður líka að bíða, þar sem að Emil er farinn til útlanda og verður úti í mánuð. Ég ætla því bara að halda lítið starfsmannapartý heima hjá mér á laugardaginn. Ég hef ekki djammað á Íslandi í margar, margar vikur, þannig að það verður ábyggilega gaman.

Annars, þá er hérna fyrir þá sem ekki sáu hana í fyrra, Saga Serrano. Í þeirri grein rek ég það hvernig Serrano varð til. Skrifaði söguna fyrir tveggja ára afmælið okkar.

En allavegana, til hamingju með afmælið. Öll þið, sem verslið við okkur reglulega: I kiss you!

5 ummæli hingað til

Nov 01 2005

Amsterdam

skrifaði í flokkinn Ferðalög,Myndir

Kominn heim frá Hollandi eftir frábæra helgi þar. Veðrið var æði. Amsterdam er æði. Túristaðist einhvern slatta, fórum á Van Gogh safnið, markað í Bewervijk, djömmuðum á Leidseplein, löbbuðum meðfram síkjum, borðuðum indónesískan mat, reyndum að skilja hollensku.

Löbbuðum um Rauða Hverfið og virtum fyrir okkur misfagrar hórur. Var búinn að heyra allt um þetta hverfi, en samt brá mér við að sjá þetta. Drukkum bjór á bekk útá götu.

Amsterdam fyrir fullorðna er talsvert skemmtilegri en sú Amsterdam, sem ég man eftir sem barn. Svona borg sem ég væri alveg til í að heimsækja líka um næstu helgi.

Ég tók örfáar myndir í Amsterdam. Hérna eru þrjár þeirra. Smellið á myndirnar til að fá stærri útgáfu.

Ég við síki í Amsterdam

Ég sá hjól í Amsterdam!

Rauða hverfið

3 ummæli hingað til