Skráarsafn fyrir December, 2005

Dec 30 2005

Áramóta-ávarp

skrifaði í flokkinn Dagbók

perquin.jpgAf einhverjum ástæðum hef ég undanfarna daga hlustað nær stanslaust á síðasta lagið á nýju(stu) Eels plötunni, “Things the grandchildren should know”. Þetta er án efa besta lag plötunnar og einhvern veginn finnst mér það passa svo vel við þessi áramót. Allavegana 1 eða 2 punktar í laginu eiga vel við það hvernig mér líður núna um áramótin.

I tried to make the most of my situations
And enjoy what i had
I knew true love and i knew passion
And the difference between the two
And I had some regrets
But if i had to do it all again
Well, it’s something i’d like to do

Þetta ár hefur verið skrýtið á svo ótal marga vegu. Svo innilega viðburðalaust, en samt skringilega fullt af spennandi hlutum. Ég hef upplifað æðislegar stundir, en einhvern veginn eru þær nær allar tengdar útlöndum. Hérna heima finnst mér lítið skemmtilegt hafa gerst. Einhvern veginn virkar allt betra í útlöndum. Stelpurnar eru skemmtilegri, hlutirnir meira spennandi og mér líður betur.


Ég hugsa sennilega alltof mikið á áramótum. Reyni að gera upp árið hjá sjálfum mér og hvort ég sé sáttur við lífið og tilveruna. Allt frá því hversu duglegur ég var í ræktinni til þess hvernig ég hef verið við fólkið í kringum mig.

Ég hef ferðast umtalsvert á þessu ári og fyrir það getur árið ekki annað en talist gott. Hef sennilega ferðast umtalsvert meira en flestir í kringum mig og fyrir það get ég ekki annað en verið þakklátur. Ég er heppinn með vinnu í þeim skilningi, en ég sleppi líka umtalsverðu úr hefðbundnu lífsgæðakapphlaupi hér á Íslandi til að geta “eytt” meiri pening í ferðalögin mín, því þau eru það sem gefa mér langmesta lífsfyllingu.

Hef ekki enn getað skilið eina fyrrverandi kærustu mína, sem kvartaði yfir því að sjónvarpið í stofunni minni væri svo hrikalega lítið miðað við sjónvarpið sem hún og hennar fyrrverandi höfðu átt. Þau áttu 300.000 króna sjónvarp í stofunni, sem þau höfðu fjárfest saman í. Hins vegar höfðu þau bara einu sinni á einhverjum 5-6 árum, sem þau voru saman, farið til útlanda. Auðvitað er það þeirra val og allt gott um það að segja. En það þýðir samt ekki að ég geti skilið svona lagað.


Ég sá Liverpool verða Evrópumeistara í Istanbúl í besta úrslitaleik allra tíma. Fyrir það er ég ævinlega þakklátur og geri mér góða grein fyrir því hversu stórkostlega heppinn ég var að upplifa þetta. Ég get allavegana strokað “sjá Liverpool verða Evrópumeistara” útaf listanum yfir hluti, sem ég ætla að gera áður en ég dey. Ég væri þó alveg tilbúinn að endurtaka þetta einhvern tímann aftur. Þess vegna strax á næsta ári.

Ferðalögin hafa líka oft bjargað mér frá leiðindum hérna heima. Oft hefur mér fundist ég vera að gera lítið spennandi hluti, en utanlandsferðir, hvort sem þær voru tengdar vinnu eða öðru, komu mér í gang aftur. Kannski á þetta sérstaklega við London ferðina í ágúst þar sem ég eyddi fjórum dögum með sjálfum mér, hugsandi minn gang. Eftir þá ferð skrifaði ég ferðasögu, sem ég hef þó aldrei haft geð í mér að birta hér því ég var ekki alveg viss hvernig mér leið.

Og svo var Mið-Ameríkufríið mitt líka stór upplifun. Átti þar frábærar 5 vikur í æðislegum löndum. Kynntist frábæru fólki, skemmti mér stórkostlega og naut þess að upplifa nýja hluti í nýjum löndum.

Og svo kynntist ég þar stelpu. Sambandið endaði reyndar tveim mánuðum seinna vegna fjarlægðar og annarra hluta. En enn og aftur fann ég ástina hjá útlenskri stelpu. Það er einsog ég laði að mér skrýtnar íslenskar stelpur, sem eru fullar af vandamálum, bjánalegum afsökunum og öðru veseni. Kannski er þetta tilviljun en utan eins sambands, þá hafa öll mín sterkustu og skemmtilegustu sambönd verið með útlenskum stelpum. Í þeim samböndum hefur verið minnsta vesenið og ég hef ekki þurft að glíma við nein af þeim vandamálum, sem ég hef þurft að glíma við í mínum samböndum og sambandstilraunum með íslenskum stelpum.

Kannski er þetta bara ein stór og skrýtin tilviljun. Ég veit ekki. En ég er eiginlega búinn að fá nóg af vissu leyti.


Næsta ár verður ár breytinga í mínu lífi, á því er ekki nokkur einasti vafi. Ég er sæmilega ánægður við þessi áramót. Ég lít ágætlega út, er í besta formi ævi minnar og mér gengur ágætlega í vinnutengdum málum. En það er samt svo mikið sem mér finnst ekki í lagi.

Því ætla ég að breyta og er í raun strax byrjaður að huga að breytingunum og hef stigið fyrstu skrefin í átt að nokkrum. Það hefur gefið mér aukinn kraft að undanförnu.

En ég mun þó halda áfram að skrifa hér á þessari síðu. Þrátt fyrir að margir skilji ekki þörf mína fyrir að opinbera smá hluta af mínum tilfinningum á vefnum, þá fæ ég furðu mikið útúr því. Ég fæ vissa útrás með því að halda dagbók, en ég þarf líka mína útrás á þessari síðu. Og ég held þessu úti að langstærstu leyti af því að þetta veitir mér ánægju.

Ég vona að þið eigið eftir að eiga gott ár á næsta ári.

E, take it away:

I do some stupid things
but my heart’s in the right place
and this I know

Gleðilegt ár!

11 ummæli hingað til

Dec 30 2005

Treat her right

skrifaði í flokkinn Tónlist

Þetta er fyndnasta myndband sögunnar – (smellið á “watch” og þá kemur myndbandið í sér glugga). Algjörlega stórkostlegt.

2 ummæli hingað til

Dec 28 2005

Genni!

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Það fattar þetta sennilega enginn nema vinir og kunningjar.

Eeeeen, þetta er það fyndnasta sem ég hef séð á netinu á þessu ári!!

Látum það vera að Björn Ingi þurfi að leita alla leið til Washington D.C. til að finna stuðningsmenn. En Genni að styðja Framsókn?! Genni er einmitt heitasti íslenski stuðningsmaður George W Bush! Núna hef ég séð allt á internetunum. Hvað getur maður sagt?

Ein ummæli hingað til

Dec 27 2005

Bestu plöturnar 2005

skrifaði í flokkinn Tónlist,Topp10

Jæja, í kjölfar listans yfir bestu lög ársins, þá eru þetta að mínu mati bestu plöturnar á árinu:

  1. sufjan.jpg Sufjan Stevens – Illinois: Já já, ég veit að það er voðalega hipp og kúl og indí að segjast fíla þessa plötu. En það var hreinlega ekki gefin út betri plata á þessu ári. Sufjan syngur um fylkið mitt Illinois. Allt er frábært við þessa plötu frá lagasmíðum til texta og útsetninga.

    Það þarf að gefa henni smá sjens í byrjun, en hún verður bara betri og betri við hverja hlustun. Vissulega hafði hún ekki jafn mikil áhrif á mig og plata ársins í fyrra, en Illinoise hefur verið nánast stöðugt í spilaranum bæði hérna heima og í iPod-inum síðustu mánuði. – Besta lag: Chicago
  2. Green Day – American Idiot: Smá svindl hér í gangi því American Idiot var gefin út árið 2004. En ég fattaði hana ekki fyrr en í byrjun þessa árs. Ég var löngu búinn að gefa frat í Green Day, en þessi plata er einfaldlega frábær endurkoma. Rokkplata “ársins”. – Besta lag: Holiday
  3. Edan – Beauty & the Beat: Þriðja árið í röð er uppáhalds hip-hop platan mín gerð af hvítum gaur. Edan er fokking snillingur og það ætti enginn, sem hefur nokkurn tímann fílað hip-hop að sleppa því að hlusta á þessa plötu. Já, Kanye platan er snilld, en þessi er bara einfaldlega svo miklu skemmtilegri. – Besta lag: I see colors
  4. Eels – Blinking Lights & Other Revelations: E þunglyndur, alveg einsog hann gerist bestur. – Besta lag: Things the grandchildren should know.
  5. Kanye West – Late Registration: Var besta hip-hop plata ársins alveg þangað til að ég uppgötvaði Edan seinni part ársins. Kanye gerir sitt besta til að reyna að bjarga rappinu.
  6. Bloc Party – Silent Alarm: Snilld!
  7. Sigur Rós – Takk: Ég einfaldlega elska Sigur Rós og finnst allt frá þeim vera frábært. Þessi plata er betri en (), sem mér fannst þó vera frábær plata, þrátt fyrir að það sé ekki í tísku að halda því fram.
  8. Antony and the Johnsons – I am a bird now: Virkilega góð plata, sem að verður betri með tímanum.
  9. Queens of the Stone Age – Lullabies to Paralyze: Ég hafði aldrei verið hrifinn af QOTSA fyrr en ég gaf sveitinni sjens fyrir tónleikana í sumar. Og eftir umtalsverða hlustun fattaði ég allt hype-ið.
  10. Madonna – Confessions on a dance floor: Ég bara varð að setja þetta hérna inn. Bara af því að mér finnst það svo ótrúlega fáránlegt að ég hafi elskað plötu með Madonnu. En þetta er einfaldlega frábær dansplata.

Næst því að komast inn: Common – Be, Franz Ferdinand, The Game, Ben Folds, Bruce Springsteen.

Vonbrigði ársins: Coldplay – X&Y, Beck – Guero

10 ummæli hingað til

Dec 27 2005

Jólakort

skrifaði í flokkinn Almennt

Fyrir ykkur, sem fenguð ekki kort frá mér, þá er þetta jólakort mitt til ykkar. “Njótið”

2 ummæli hingað til

Dec 26 2005

Heimsótt lönd á árinu

skrifaði í flokkinn Dagbók,Ferðalög

world2005-des.gif

Þetta ár hefur verið ágætt að sumu leyti en slæmt að öðru leyti fyrir mig persónulega. Eitt það ánægjulegasta er að ég hef getað ferðast talsvert á árinu. Til að halda utanum þetta í anda Flygenrings eru hérna þau lönd, sem ég heimsótti á árinu:

Pólland x2 (Varsjá), Þýskaland x2 (Köln), Tékkland (Prag), Holland x2 (Amsterdam, Breda), Svíðþjóð (Stokkhólmur og Gautaborg), Tyrkland (Istanbúl), England x2 (London, Liverpool, York Kettering), Mexíkó, El Salvador, Hondúras, Gvatemala, Belize, Bandaríkin.

Highlight: Istanbúlferðin og Hondúras.

Af þessum löndum var ég að heimsækja Pólland, Tékkland, Svíþjóð, Tyrkland, El Salvador, Hondúras, Gvatemala og Belize í fyrsta skiptið á ævinni. Því lítur landalistinn minn svona út í dag:

Norður-Ameríka: Kanada, Mexíkó, Bandaríkin
Mið-Ameríka & Karabíska Hafið: Belize, Kúba, El Salvador, Gvatemala, Hondúras, Bahamas
Suður-Ameríka: Argentína, Bólivía, Brasilía, Chile, Kólumbía, Ekvador, Paragvæ, Perú, Urugvæ, Venezuela
Evrópa: Austurríki, Belgía, Tékkland, Danmörk, Frakkland, Þýskaland, Grikkland, Ungverjaland, Ísland, Lúxembúrg, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Rússland, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Bretland
Afríka: Ekkert
Mið-Austurlönd: Tyrkland
Asía: Ekkert

Samtals 39 lönd.

6 ummæli hingað til

Dec 24 2005

Jól

skrifaði í flokkinn Dagbók

Jæja, þá er ég búinn að eyða öllum morgninum með Emil við að keyra út gjafir til starfsmanna Serrano. Næst er það svo að leita að leiðum niðrí Fossvogskirkjugarði. Það þýðir víst að það eru komin jól.

Ég segi því bara Gleðileg Jól, öll. Verið góð.

4 ummæli hingað til

Dec 23 2005

Skata

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég fór í hádeginu á mitt fyrsta skötuhlaðborð. Pabbi var búinn að reyna að draga mig í hlaðborð í nokkur ár og ég ákvað loksins að skella mér með honum þetta árið. Hef alltaf haft lúmskan grun um að skötuát snúist meira um að sýna karlmennsku, heldur en að bragðið sé svo gott. Það er að það væri voðalega macho að segjast borða vel kæsta skötu. Ég vildi því sannreyna þá kenningu.

Ég fór á Tvo Fiska, þar sem hlaðborð var. Ég fékk mér milli-kæsta skötu og hellti einhverri fitu yfir. Settist svo og smakkaði smá bita.

Í raun er þetta ólýsanlega vondur matur. Ég hef borðað ýmsan óþverra í gegnum árin á ferðalögum mínum um heiminn og hef gengið svo langt að borða maura og tarantúlur. En það kemst hreinlega ekkert nálægt skötunni í vondu bragði. Ég kúgaðist við það eitt að setja matinn uppí mig, því skatan hefur ekki bara bein áhrif á bragðlaukana, heldur er einsog bragðið sprautist um allan munninn og maður fyllist af einhverju skrýtnu og viðbjóðslegu lofti í munninum.

Ímyndið ykkur versta fisk, sem þið hafið smakkað. Ímyndið ykkur svo að einhver helli terpentínu yfir fiskinn og kveiki í honum. Sá hinn sami mígur svo ofaná fiskinn til að slökkva eldinn. Og til að toppa það, þá er hellt myglaðri mjólk yfir. Þá held ég að við getum farið að nálgast bragðið á skötunni.

Mér finnst frábært að einhverjir einstaklingar hafi hugrekkið til þess að borða þennan mat. En ég hef hins vegar komist að því að þetta er ekki fyrir mig.

10 ummæli hingað til

Dec 23 2005

Flottur jakki

skrifaði í flokkinn Almennt

Af hverju eru ekki svona jakkar seldir á Íslandi?

Comments Off

Dec 23 2005

Myndir frá Gvatemala

skrifaði í flokkinn Myndablogg

Ég setti inn í gærkvöldi myndir úr Gvatemala ferðinni. Satt best að segja fannst mér pínku skrýtið að setja þessar myndir inn, þar sem fullt af þeim er með Önju, sem er fyrrverandi kærasta mín. En ég ákvað að setja inn þessar myndir, svo ég geti svalað forvitni vina minna, sem vildu sjá framan í hana.

Ég hef aldrei sett inn mikið af myndum af öðrum en sjálfum mér á þessa síðu og þykir það eiginlega betra þannig. Þetta er vinsæl síða og því finnst mér það ekki við hæfi að birta mikið af myndum af öðru fólki án þess að láta það vita.

En allavegana, myndirnar frá Gvatemala eru frá Livingston, Rio Dulce og Tikal. Hægt er að skoða allar myndirnar mínar hér og ferðasögurnar frá Gvatemala eru hér:

Mið-Ameríkuferð 6: Garifuna
Mið-Ameríkuferð 7: Ég og Brad Pitt
Mið-Ameríkuferð 8: Tikal

Comments Off

Dec 22 2005

Snjókoma í Japan

skrifaði í flokkinn Almennt

Pilsa-aðdáandinn ég hef komist að því að ég fíla japanskt kvenfólk

2 ummæli hingað til

Dec 20 2005

Við lok uppboðsins

skrifaði í flokkinn Uppboð

Jæja, uppboðinu er lokið. Fyrir það fyrsta, ef þú bauðst í eitthvað en hefur ekki enn fengið póst frá mér, sendu mér þá línu og þá geturðu nálgast hlutinn. Í kvöld hef ég verið að afhenda slatta af dóti úr uppboðinu, en á eftir að senda útá land og enn er fullt af dóti, sem hefur ekki enn verið sótt.

En þetta er búin að vera miklu meiri vinna en ég gerði mér grein fyrir í upphafi, þannig að ég hef ekki enn getað svarað öllum póstum, sem ég hef fengið um þetta allt saman.


Ég vil fyrst og fremst þakka fyrir mig. Þetta er búið að vera mjög gefandi og ég gerði mér enga grein fyrir því hversu mikla og góða athygli þetta myndi vekja. Ég hef hitt fulltaf fólki og fengið ótrúlega indælar tölvupósts-sendingar.

Umfjöllunin um þetta hefur líka verið ansi viðamikil. Auðvitað hefur þetta vakið athygli í bloggheimum, en líka í hefðbundnum fjölmiðlum. Ég komst í DV og lenti þar á forsíðu, auk þess sem að það var nær heilsíðugrein um uppboðið. Svo var viðtal við mömmu daginn eftir. :-)

Sama dag og greinin birtist í DV, þá kom viðtal við mig á NFS. Fyrir þá, sem hafa áhuga þá er hægt að horfa á viðtalið hér. Þú þarft bara að spóla svona 48 mínútur inní myndbandið til að sjá viðtalið við mig, sem ég held að hafi heppnast nokkuð vel.

Síðan kom viðtal við mig í Mogganum síðasta laugardag.


Umfjöllunin í bloggheimum hefur náttúrululega verið mikil. Flestar heimsóknir komu af stóru linkasíðunum, Geimur og B2. Svo linkuðu nokkrar vinsælustu bloggsíður landsins á þetta, svo sem hjá Manúelu, Katrínu, Dr. Gunna og Stefáni Páls og fullt af fleirum. Það væri of langt mál að telja alla upp eða kommenta hjá öllum, en ég vil bara þakka öllum sem linkuðu á uppboðið. :-)

Það er líka greinilegt að þetta hefur snert marga og fjölmargir hafa fengið hugmyndir út frá þessu framtaki mínu. Og það er frábært að mínu mati. Þetta er svipað og með ferðalög. Það þarf bara að drífa sig af stað og gera eitthvað. Ekki bara að láta það naga sig að hafa ekki gert neitt. Það þarf engin sérstök frumlegheit, bara að finna sér gott málefni og styðja það reglulega.

En ég þarf að reyna að klára að koma út öllum varningnum og eflaust verða einhverjar tafir fram yfir jól, þar sem ég þarf víst líka að kaupa jólagjafir handa fjölskyldunni. En ég mun skrifa meira um þetta þegar ég hef séð lokaupphæðina, sem kemur inn (væntanlega nálægt 300.000 krónum) og þegar ég hef ákveðið hvernig peningnum verður varið.

En þangað til: Takk!

Comments Off

Dec 20 2005

Þáttur á RÚV

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Veit einhver hvar er hægt að nálgast danska þáttinn “Milljarðakaup Íslendinga“, sem var sýndur á RÚV í gær? Verður þetta endursýnt, eða er hægt að nálgast þetta á netinu einhvers staðar (n.b. ég tala ekki dönsku).

Ég ætlaði að horfa á þetta, en var svo fastur uppá veitingastað langt fram eftir kvöldi og missti af þættinum.

6 ummæli hingað til

Dec 19 2005

Bestu lögin 2005

skrifaði í flokkinn Tónlist,Topp10

Þá er komið að árlegum viðburði hér á síðunni – bestu lögin og bestu plöturnar á árinu að mínu mati.

Í þetta skiptið ætla ég að skipta þessu í tvennt. Fyrst lögin og síðan plöturnar. En allavegana, hérna koma 15 bestu lögin á árinu að mínu mati.

  1. b514.jpg Kelly Clarkson – Since You’ve been Gone – Já, hverjum hefði dottið þetta í hug. Kelly fokking Clarkson. American Idol og allur sá viðbjóður.

    En þetta lag er einfaldlega fáránlega grípandi og skemmtilegt. Ég gaf því ekki sjens fyrr en ég sá að nokkrir “virðulegir” pennar voru farnir að hrósa því. Og það er ekki að ástæðulausu að þetta lag er svona vinsælt hjá fólki, sem myndi aldrei detta í hug að horfa á Ædol. Ég gaf því sjens og eftir 2-3 hlustanir var það komið inní hausinn á mér og þar sat það fast í margar vikur.

    Einfaldlega besta lag ársins. Það kom þá allavegana eitthvað gott úr þessari Idol vitleysu allri.
  2. Sigur Rós – Hoppípolla – Samkvæmt iTunes þá er þetta það lag, sem ég hef oftast hlustað á á árinu. Enda er þetta besta lagið á frábærri plötu Sigurrósar.
  3. Bloc Party – Like Eating Glass
  4. The Cardigans – I need some fine wine and you, you need to be nicer to me – Frábært Cardigans rokk einsog það gerist best. Nina er algjörlega á toppnum í þessu lagi.
  5. Coldplay – Fix You – Persónulega þá olli X&Y mér talsverðum vonbrigðum því ég átti von á meiru frá Coldplay. En Fix You er samt sem áður frábært lag.
  6. The Game – Hate it or Love it – The Game er snillingur og platan hans er frábær. Ég hélt að ég myndi velja eitthvað Kanye West lag á topp 15, en þrátt fyrir að mér finnist Late Registration vera besta hip-hop plata ársins, þá er ekkert lag á henni jafngrípandi og Hate it or Love it með The Game.
  7. Queens of the Stone Age – Little Sister – Besta lagið á frábærri plötu frá QOTSA.
  8. Weezer – Perfect Situation – Langbesta lagið á lélegri Weezer plötu.
  9. Antony and the Johnsons – Hope there’s Someone – Ég er ekki alveg kominn í aðdáendaklúbb AATJ einsog allir indí skríbentar á landinu. Platan er *góð* en ekki það stórkostlega meistarastykki sem margir vilja meina. En þetta er besta lag plötunnar.
  10. Madonna – Hung Up – Án efa danslag ársins. Fáránlega grípandi hjá Madonnu.
  11. Snoop Dogg & Justin – Signs
  12. Eels – Railroad Man
  13. Nine Inch Nails – Only
  14. System of a Down – B.y.o.b.
  15. Ampop – My delusions – Aldrei hefði mér dottið í hug að einhver í minni fjölskyldu gæti búið til góða tónlist, en Birgir frændi afsannar þá kenningu mína. Frábært lag.

Nálægt því að komast á listann: Soul meets body – Death Cab, Gold Digger – Kanye West, Best of You – Foo Fighters, Faithful – Common, Landed – Ben Folds, Tribulations – LCD Soundsystem, Forever Lost – The Magic Numbers

Plöturnar koma svo seinna í þessari viku.

7 ummæli hingað til

Dec 17 2005

Laugardagksvöld fyrir jól

skrifaði í flokkinn Dagbók

michigan-lights.jpg Hvað gerir ungur piparsveinn á laugardagskvöldi?

Jú, í mínu tilfelli þá hef ég eytt síðustu 5 klukkutímunum inní eldhúsi á Serrano, skerandi kjúkling og búandi til sósur. Það var hressandi

Einhvern veginn varð þetta síðasta laugardagksvöld fyrir jól ekki alveg einsog ég hafði gert mér vonir um. Það var svo sem blanda af nokkrum atburðum. Dagurinn í dag var sá stærsti í sögu Serrano. Við höfum aldrei selt jafnmikið og bættum fyrra met, sem sett var 22.desember í fyrra, um rúmlega 10%.

Um klukkan 6 fékk ég skilaboð um að stelpan í eldshúsinu hefði skorið sig illa og þá vissi ég að ég myndi ekki gera merkilega hluti í kvöld og dreif mig því uppá veitingastað og kláraði vaktina hennar. Ég veit ekki hvað það er, en ég hef alltaf lúmskt gaman af því að vera uppá stað þegar svona brjálað er að gera. Ég fyllist einhverri orku við það allt saman.


Annars hef ég fengið fullt af fólki í heimsókn í dag til að sækja dót, sem það hafði boðið í á uppboðinu. Held að ég hafi fengið um 15 manns í heimsókn, sem er nokkuð góður árangur.

Í dag birtist svo viðtal við mig í Mogganum. Þá eru búin að birtast við mig viðtöl bæði í DV og í Mogganum útaf þessu uppboði, auk viðtalsins sem ég fór í á NFS síðasta miðvikudag. Það er nokkuð magnað.


Ég þarf að fara að koma mér inní eitthvað jólastressskap til að ég klári hlutina. Núna þarf ég að senda hluta af gjöfunum mínum til útlanda, þar sem að báðar systur mínar dvelja erlendis og því get ég ekki haldið uppi gamla siðnum mínum að versla allt á Þorláksmessu. Nei, núna þarf ég að hugsa viku fram í tímann, sem ég er nánast ófær um að gera þegar kemur að jóla undirbúning.

Þarf að fara að koma mér í hátíðarskap. Samt veit ég að það gerist í raun aldrei nema fyrr en á Aðfangadag uppí kirkjugarði. Þá fyrst finnst mér jólin vera komin. Ég held að ég hafi ekki almennilega fundið fyrir sérstakri jólastemningu fyrir jól síðustu ár. Síðasta skipti, sem ég man eftir mér í jólaskapi löngu fyrir jól, var þegar ég bjó í Chicago og fór á Michigan Avenue í jólagjafaleiðangur.

Kannski er þetta vegna þess að það hefur einhvern veginn æxlast þannig að ég hef alltaf verið á lausu yfir jólin þessu þrjú ár, sem ég hef núna búið á Íslandi. Einhvern veginn tengi ég jólasteminguna því að labba einhvers staðar úti með stelpu í leit að jólagjöfum.

Því get ég varla komist í jólaskap einsog jólagjafaleiðangrar mínir eru í dag. Því þeir felast í að hlaupa einn á milli búða, nánast búinn að ákveða allar gjafir fyrirfram. Innkaupin eru einsog skylda, í stað þess að vera skemmtun.

Þó hef ég komist að einu undanfarin ár, sem ég man ekki alveg hvenær breyttist hjá mér. Í dag finnst mér nefnilega miklu skemmtilegra að sjá viðbrögð annarra við mínum gjöfum, heldur en að opna mínar eigin gjafir. Þess vegna finnst mér það dálítið fúlt að ég skuli þurfa að senda gjafir til útlanda í stað þess að sjá viðbrögð frændsistkyna minna á aðfangadagskvöld.

2 ummæli hingað til

Dec 16 2005

Uppboð: Nokkrar bækur

skrifaði í flokkinn Uppboð

Og þá er komið að nokkrum bókum. Flest nokkuð gamlar bækur, sem taka upp pláss í íbúðinni minni. Þetta eru íslensk knattspyrna og svo Stephen King bækur í íslenskri þýðingu.

Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Lágmark: 400 krónur

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á mánudag. Lesa áfram »

6 ummæli hingað til

Dec 16 2005

Uppboð: Geisladiskar – Flytjendur R-Z

skrifaði í flokkinn Uppboð

Hérna er þriðji hlutinn í geisladiskauppboðinu. Núna flytjendur, sem byrja á R-Z. Hérna er hægt að já diskana með flytjendum A-G og hérna með H-Q.

Athugið að diskarnir eru í mjööööög misjöfnu standi. Þeir hafa margir hverjir verið notaðir gríðarlega mikið – hulstrin eru mikið rispuð og diskarnir geta verið verulega rispaðir margir hverjir. Ég get ekki verið að fara yfir þá alla, þar sem það yrði alltof mikil vinna. Ef þú kaupir disk og ert ósátt/ur við gæðin hefurðu kost á að skila honum eða þá bara látið boðið standa, þar sem þetta fer allt til góðgerðarmála.

Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Mér finnst fínt lágmark um 400 kall fyrir geisladiskinn. Þetta fer nú einu sinni allt til góðgerðarmála. Ég er til í að skoða lægra lágmark ef að keyptir eru 5 eða fleiri diskar.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á sunnudag. Lesa áfram »

24 ummæli hingað til

Dec 15 2005

Piparsveina-uppgjör

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Ég horfði á lokaþáttinn á Bachelor í kvöld og svo sem lítið hægt að segja um þáttinn, enda lítið spennó sem gerðist. Hann valdi Jenný og þau eru voða ánægð. Gott mál.

Þátturinn á eftir þar sem tekin voru viðtöl við þáttakendur var öllu skárri.


Jenný var spurð útí forsíðu DV í gær en þar sést hún kyssa stelpu á djamminu (hún er þarna til hægri við mig og nágranna minn, Guðna Ágústs). Jenný sagði að þetta væri ósköp eðlilegt að kyssa stelpu á djamminu og henni þótti ekkert óeðlilegt að gera það á meðan hún væri í sambandi með strák.

Halló, halló, halló! – er ég orðinn svona gamall? Hvenær varð það normal að stelpur kysstust á djamminu? Varð þetta til þegar að menn fóru að taka reglulega myndir á skemmtistöðunum? Eru stelpur að gera þetta af því að þeim finnst þetta vera svona mikið æði, eða halda þær að þetta sé svona mikið “turn-on” fyrir okkur karlmenn?

Já já, ég veit að þetta hefur verið í tísku í einhver ár, en finnst öllum þetta eðlilegt? Hver er tilgangurinn? Varla eru það tilfinningar, víst Jenný finnst ekkert óeðlilegt við að gera þetta meðan hún er í sambandi.

Æji, ég vil ekki hljóma einsog einhver tepra og því verð ég sennilega að fagna því að allar stelpur séu að kyssast hægri og vinstri. Húrra! Áfram stelpur!


Uppáhaldslínan mín í þættinum hennar Sirrýjar.

Það eru hérna inni hommar og lesbíur – það er alveg klárt mál.

Jammmmm!

4 ummæli hingað til

Dec 15 2005

Uppboð: Geisladiskar – Flytjendur H-Q

skrifaði í flokkinn Uppboð

Hérna er annar hlutinn í geisladiskauppboðinu. Núna flytjendur, sem byrja á H-Q. Hérna er hægt að já diskana með flytjendum A-G.

Ok, þá er komið að umfangsmesta hlustanum í þessu uppboðu. Nefnilega geisladiskunum mínum. Ansi stór hluti þeirra er hérna, alls um 350 tallsins – flokkaðir eftir nafni flytjanda. Athugið að diskarnir eru í mjööööög misjöfnu standi. Þeir hafa margir hverjir verið notaðir gríðarlega mikið – hulstrin eru mikið rispuð og diskarnir geta verið verulega rispaðir margir hverjir. Ég get ekki verið að fara yfir þá alla, þar sem það yrði alltof mikil vinna. Ef þú kaupir disk og ert ósátt/ur við gæðin hefurðu kost á að skila honum eða þá bara látið boðið standa, þar sem þetta fer allt til góðgerðarmála.

Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Mér finnst fínt lágmark um 400 kall fyrir geisladiskinn. Þetta fer nú einu sinni allt til góðgerðarmála. Ég er til í að skoða lægra lágmark ef að keyptir eru 5 eða fleiri diskar.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á sunnudag. Lesa áfram »

43 ummæli hingað til

Dec 15 2005

Uppboð: Geisladiskar A-G

skrifaði í flokkinn Uppboð

Ok, þá er komið að umfangsmesta hlustanum í þessu uppboðu. Nefnilega geisladiskunum mínum. Ansi stór hluti þeirra er hérna, alls um 350 tallsins – flokkaðir eftir nafni flytjanda. Athugið að diskarnir eru í mjööööög misjöfnu standi. Þeir hafa margir hverjir verið notaðir gríðarlega mikið – hulstrin eru mikið rispuð og diskarnir geta verið verulega rispaðir margir hverjir. Ég get ekki verið að fara yfir þá alla, þar sem það yrði alltof mikil vinna. Ef þú kaupir disk og ert ósátt/ur við gæðin hefurðu kost á að skila honum eða þá bara látið boðið standa, þar sem þetta fer allt til góðgerðarmála.

Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Mér finnst fínt lágmark um 400 kall fyrir geisladiskinn. Þetta fer nú einu sinni allt til góðgerðarmála. Ég er til í að skoða lægra lágmark ef að keyptir eru 5 eða fleiri diskar.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á laugardag. Lesa áfram »

45 ummæli hingað til

Eldri færslur »