Dec 10 2005
Uppboð: Tæki og nýjir hlutir
(Sjá nánar um uppboðið mitt hér)
Jæja, þá er komið að fyrsta lið uppboðsins míns til styrktar fátækum í Mið-Ameríku. Í þessum hluta ætla ég að bjóða tæki og nýja hluti. Þarna eru m.a. Playstation 2 tölva, Real Madrid treyja, rauðvín, þurrkari og fleira.
Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin hér að neðan. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Mundu að setja þitt rétta nafn og töluvpóstfang með. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.
Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á miðvikudaginn, 14.desember 2005. Stærri liðir:
Playstation 2 tölva
Lægsta boð: 5.000
Þetta er Playstation 2 tölva, nýrri gerðin (þynnri). Tölvan var keypt í desember í fyrra. Með henni fylgir minniskort og einn stýripinni. Ný kostar vélin í BT 12.500. Minniskortið er nauðsynlegt og kostar 3.500 krónur. Þannig að heildarverðmætið er 16.000 krónur. Með vélinni fylgja þrír frábærir leikir: Jak II, Grand Theft Auto: San Andreas og God of War. Athugið að af þessum leikjum er aðeins Jak II hæfur börnum. Hinir eru báðir bannaðir innan 18 ára. Nota bene, ég læt fylgja með tvo stýrpinna en er bara viss um að annar virki 100%.
Ég er tilbúinn að selja tölvuna sér eða með leikjunum þremur. Vélin er í nánast fullkomnu standi.
Canon Powershot G2
Lægsta boð: 5.000
Þessi myndavél er þriggja ára gömul, en stendur þó enn fyrir sínu. Hún er 4 megapixla og býður uppá fleiri stillingar en flestar imbavélar. Sem dæmi um myndir, sem ég hef tekið með vélinni má nefna þessar myndir. Vélin hefur reynst mér gríðarlega vel. Hún inniheldur hleðslutæki og snúru til að tengja í tölvu. Skiljanlega er hún rispuð eftir mikla notkun, en það hefur þó engin áhrif á frammistöðu vélarinnar.
Mouton Cadet Réserve 1995
Lægsta boð: 3.000
Rauðvín, (sjá mynd) sem hefur legið hérna inni síðustu 5 árin að ég held. Þetta er 1,5 lítra flaska af sérstakri hátíðarútgáfu af Mouton Cadet víninu frá Baron Philippe de Rotschild. Hátíðarútgáfan var seld árið 2000. Ég fékk þetta sem fyrirtækisgjöf.
Real Madrid treyja
Lægsta boð: -50kr.
Þetta er ekta Real Madrid treyja, sem ég fékk gefins. Ég hata hins vegar Real Madrid og get því varla látið sjá mig í henni. Hún er algjörlega ónotuð og er enn með miðunum á. Á bakinu er númer 5 og nafn Zidane. Stærð er Medium. Ég held að svona treyjur kosti ekki undir 5000 krónum útí búð.
Siemens þurrkari
Lægsta boð: 5.000kr.
Þessi þurrkari hefur legið niðrí geymslu síðan ég flutti inní íbúðina mína vegna þess að ég hef einfaldlega ekki pláss fyrir þurrkara inní íbúðinni minni. Þurrkarinn er sennilega um 10 ára gamall, en ég veit ekki til annars en að hann virki fullkomlega.
Apple 17 tommu CRT skjár
Lægsta boð: 1.000 kr.
Þetta er um 5 ára gamall Apple skjár. Það þarf eflaust að dusta af honum, en hann virkaði 100% síðast þegar ég notaði hann.
32 Ummæli við færsluna “Uppboð: Tæki og nýjir hlutir”
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 11:40
Býð -50kr í Real Madrid treyjuna :biggrin2:
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 11:56
Eg hata einmitt líka Real svo ef einhver ætlar að borga 50 kr. til að ganga í henni þá býð ég 300 kr til þess eins að kveikja í henni.
Ég er ekki að grínast!
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 12:00
5000kall í tölvu + leiki (ef einhver annar vill leikina er mér sama – ég vil bara geta spilað tekken reglulega aftur).
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 12:58
6000kall í Playstation 2 tölvu
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 13:02
Playstation 2: 10.000 Real Madrid treyja: 1500
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 13:04
Real Madrid treyja – 2000 kr.
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 13:57
5000 kall i þurrkarann…
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 16:04
3.000 í vínflöskuna.
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 16:34
Það er komið “nafnlaust” boð í PS2 vélina og leikina uppá 20.000 krónur.
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 20:04
5þús kall í myndavélina
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 20:32
2000 kr. í tölvuskjáinn
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 21:26
6000 kall í myndavélina.
# - þann 10 Dec 2005 klukkan 22:41
Það er búið að berast “nafnlaust” tilboð í myndavélina uppá 10.000 krónur.
# - þann 11 Dec 2005 klukkan 0:18
Gott framtak Einar Örn!
Vil samt tauta sma: An thess ad radast a sjalfan mig tha finnst mer pinu fyndid thegar folk vill taka thatt i svona en samt graeda eins mikid og thad getur. 50 kall fyrir treyjuna er audvitad grinverd, serstaklega fyrir einhvern sem laetur ser umhugad um malsstadinn.
20 thus. kall fyrir PS2 og leikina er hinsvegar eitthvad sem gledur mig, serstaklega thar sem peningarnir fara ALLIR til styrktar malefninu.
Ef einhver er tilbuinn ad kaupa svona treyju a 5000 kall uti bud, afhverju ekki ad gera thad sama her og senda peningana alla til hjalpar?
Gvud blessi thig Hr. EOE
# - þann 11 Dec 2005 klukkan 0:28
Hmmm… hér hefur enn ekki borist hærra boð í rauðvínsflöskuna.
Hækka boðið í 3.500 kr.
# - þann 11 Dec 2005 klukkan 2:09
2500 í RM treyjuna.
# - þann 11 Dec 2005 klukkan 11:40
Halli, þetta átti að vera mínus 50 krónur fyrir treyjuna. Og þetta var (hálfslöpp) tilraun til þess að vera fyndinn, þar sem mér er það illa við Real Madrid að ég vil losna við treyjuna hvað sem það kostar.
En mér sýnist hæsta boð í treyjuna vera komið í 2500 kall, þannig að það reddaðist.
Og SHIFT-3 fær sérstakt hrós fyrir að hækka eigið tilboð.
# - þann 11 Dec 2005 klukkan 12:04
Real Madrid treyja – 3000 kr.
# - þann 11 Dec 2005 klukkan 12:54
4000 í rauðvínið.
# - þann 11 Dec 2005 klukkan 13:38
3500 í Real treyjuna, þetta er bara að verða gaman..hehehe…..
# - þann 11 Dec 2005 klukkan 17:37
Nota bene, ég bætti inn mynd af rauðvínsflöskunni.
Sjá hér
# - þann 11 Dec 2005 klukkan 18:20
5.000 í vínflöskuna
# - þann 11 Dec 2005 klukkan 20:00
Úff, það er sóknarhugur í SHIFT-3. Svipað og Fram á 9.áratugnum.
# - þann 12 Dec 2005 klukkan 0:33
4000kall í Real Madrid
# - þann 12 Dec 2005 klukkan 7:11
Einar: fattaði ekki grínið, en var ekki að meina þig.
Grínið er fyndið btw.
# - þann 13 Dec 2005 klukkan 9:14
Það er komið “nafnlaust” boð í rauðvínið uppá 6000.
# - þann 13 Dec 2005 klukkan 11:41
Annað boð í rauðvínið: 7000
# - þann 14 Dec 2005 klukkan 8:36
2500kr. fyrir apple skjár
# - þann 14 Dec 2005 klukkan 15:47
8500 í þurrkarann
..verð að fá þurrkara fyrir jól :rolleyes: frábært framtak :biggrin:
# - þann 14 Dec 2005 klukkan 17:05
Bara smá samantekt, þar sem uppboðinu lýkur eftir á miðnætti í kvöld eða eftir 7 klukkutíma. Þetta eru hæstu boðin (nafnlausu boðin hafa borist mér á tölvupósti, þannig að ég einn veit nöfnin):
Playstation 2 tölva – 20.000 – Nafnlaust
Canon Powershot G2 – 10.000 – Nafnlaust
Rauðvín – 7000 – nafnlaust
Real Madrid treyja – 4.000 – Gísli
Þurrkari – 8.500 – Sigga
Apple skjár – 2.500 – Jan
Samtals 52.000 krónur
# - þann 14 Dec 2005 klukkan 20:58
Nýtt “nafnlaust” boð í rauðvínið: 15.000
# - þann 15 Dec 2005 klukkan 9:49
Uppboði lokið. Hæstu boð:
Playstation 2 tölva – 20.000 – Nafnlaust
Canon Powershot G2 – 10.000 – Nafnlaust
Rauðvín – 15.000 – nafnlaust
Real Madrid treyja – 4.000 – Gísli
Þurrkari – 8.500 – Sigga
Apple skjár – 2.500 – Jan
Samtals 60.000 krónur