Skráarsafn fyrir December 12th, 2005

Dec 12 2005

Jólakort

skrifaði í flokkinn Almennt

Ein stutt spurning: Finnst ykkur við hæfi að einstaklingur, sem er ógiftur og á engin börn, sendi myndir af sjálfum sér með jólakortum (hugsanlega frá ferðalögum til Ameríku, sem þessi einstaklingur gæti hafa farið í)? Gerir það kortin persónulegri, eða er það bara asnalegt? Hvort vilduð þið frekar fá? Má kannski bara senda barnamyndir með jólakortum?

Þessi einstaklingur er að fara að hefja jólakortaskrif í fyrsta skipti og honum leiðist ógurlega að fá jólakort, þar sem bara stendur á “takk fyrir árið – kveðja X&X”.

16 ummæli hingað til

Dec 12 2005

Unnur Birna stefnir æsku landsins í voða!

skrifaði í flokkinn Almennt

Uppboðið heldur áfram, en ég hef samt sem áður þörf á því að tjá mig um önnur mál á meðan á því stendur. :-) Lesa áfram »

40 ummæli hingað til

Dec 12 2005

Uppboð: Gamlar Myndavélar

skrifaði í flokkinn Uppboð

Ok, næsta mál á dagskrá í uppboðinu til styrktar börnum í Mið-Ameríku áfram.

Í þessum hluta ætla bjóða upp gamlar myndavélar. Misgamlar og misvelfarnar, sem að einhverjir gætu haft gagn af. Ég vil einnig minna að hæsta boð í digital vélina mína er 10.000

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á fimmtudag Lesa áfram »

8 ummæli hingað til

Dec 12 2005

Uppboð: Gömul tölvuspil

skrifaði í flokkinn Uppboð

Jæja, þá heldur uppboðið til styrktar börnum í Mið-Ameríku áfram.

Núna ætla ég að byrja að bjóða upp gamla hluti, sem sennilega hafa ekki mikið gildi fyrir flesta, en einhverjir safnarar gætu haft gaman af. Í þessum hluta ætla bjóða upp gömul tölvuspil. Þetta eru allt Nintendo tölvuspil, sem ég spilaði þegar ég var lítill. Hef ekki prófað þau, en býst ekki við öðru en að þau virki. Tækin eru skiljanlega rispuð (sjá myndir)

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Uppboðið mun ljúka á miðnætti á fimmtudag. Lesa áfram »

20 ummæli hingað til