Dec 16 2005
Uppboð: Nokkrar bækur
Og þá er komið að nokkrum bókum. Flest nokkuð gamlar bækur, sem taka upp pláss í íbúðinni minni. Þetta eru íslensk knattspyrna og svo Stephen King bækur í íslenskri þýðingu.
Hér getur þú lesið um uppboðið, skoðað hin uppboðin og hér getur þú lesið af hverju ég stend í því.
Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.
Lágmark: 400 krónur
Uppboðinu mun ljúka á miðnætti á mánudag.
Íslensk Knattspyrna – öll ár frá 1981-1993 – allt safnið í einum pakka
Stephen King – Úr álögum (Rose Madder)
Stephen King – Umsátur (Cujo)
Stephen King – Visnaðu (Thinner)
Stephen King – Eldvakinn (Firestarter)
Stephen King – Bókasafnslöggan (The Library Policeman)
Stephen King – Flóttamaðurinn (Running Man) – vantar kápu
Stephen King – Háskaleikur (Gerald’s Game)
Stephen King – Furðuflug (The Langoliers)
Stephen King – Örlög (Dolores Claiborne)
Stephen King – Duld (The Shining) – vantar kápu
6 Ummæli við færsluna “Uppboð: Nokkrar bækur”
# - þann 16 Dec 2005 klukkan 20:13
Er Apple skjárinn seldur? ef svo er allt í lagi þá en ég vonast eftir svari…
# - þann 16 Dec 2005 klukkan 20:50
Já, uppboðinu með skjánum er lokið. Þú getur séð það hérna
# - þann 17 Dec 2005 klukkan 3:48
eru allar íslensk knattspyrna bækurnar virkilega á 400 kall allur pakkinn?
væri alveg til í nokkar…
# - þann 17 Dec 2005 klukkan 3:53
Ég býð 7000 í íslensk knattspyrna safnið….
# - þann 19 Dec 2005 klukkan 11:46
Ég býð 7500 í íslensk knattspyrna pakkann..
# - þann 20 Dec 2005 klukkan 9:15
Uppboði lokið.
Hæsta boð:
Bjartmar – Íslensk knattspyrna: 7.500