Dec 26 2005
Heimsótt lönd á árinu

Þetta ár hefur verið ágætt að sumu leyti en slæmt að öðru leyti fyrir mig persónulega. Eitt það ánægjulegasta er að ég hef getað ferðast talsvert á árinu. Til að halda utanum þetta í anda Flygenrings eru hérna þau lönd, sem ég heimsótti á árinu:
Pólland x2 (Varsjá), Þýskaland x2 (Köln), Tékkland (Prag), Holland x2 (Amsterdam, Breda), Svíðþjóð (Stokkhólmur og Gautaborg), Tyrkland (Istanbúl), England x2 (London, Liverpool, York Kettering), Mexíkó, El Salvador, Hondúras, Gvatemala, Belize, Bandaríkin.
Highlight: Istanbúlferðin og Hondúras.
Af þessum löndum var ég að heimsækja Pólland, Tékkland, Svíþjóð, Tyrkland, El Salvador, Hondúras, Gvatemala og Belize í fyrsta skiptið á ævinni. Því lítur landalistinn minn svona út í dag:
Norður-Ameríka: Kanada, Mexíkó, Bandaríkin
Mið-Ameríka & Karabíska Hafið: Belize, Kúba, El Salvador, Gvatemala, Hondúras, Bahamas
Suður-Ameríka: Argentína, Bólivía, Brasilía, Chile, Kólumbía, Ekvador, Paragvæ, Perú, Urugvæ, Venezuela
Evrópa: Austurríki, Belgía, Tékkland, Danmörk, Frakkland, Þýskaland, Grikkland, Ungverjaland, Ísland, Lúxembúrg, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Rússland, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Bretland
Afríka: Ekkert
Mið-Austurlönd: Tyrkland
Asía: Ekkert
Samtals 39 lönd.
6 Ummæli við færsluna “Heimsótt lönd á árinu”
# - þann 26 Dec 2005 klukkan 20:03
Lúxus!
Ertu ekkert farinn að plana ferðir til Afríku og Asíu?
# - þann 26 Dec 2005 klukkan 20:06
þú ert ruglaður
# - þann 26 Dec 2005 klukkan 22:18
Katrín, ekki draga úr drengnum. Besta árið hans í langan tíma :biggrin:
# - þann 27 Dec 2005 klukkan 10:01
Ha, er ég ruglaður?
Og jú, Asíuferð næst.
# - þann 27 Dec 2005 klukkan 21:21
Mér finnst algjör skandall að þú hafir “sleppt” þessum örfáu löndum í Mið- og Suður-Ameríku
Annars bendi ég bara á að Istanbúl er í Evrópu
# - þann 27 Dec 2005 klukkan 21:35
Já já, ég er alltaf á leiðinni að klára Ameríku.
Og ég lenti í Asíu, en sá leikinn í Evrópu – þannig að ég hef heimsótt báða hluta Istanbúl.