Skráarsafn fyrir February, 2006

Feb 28 2006

Tónlistarblogg: Girl from North Country

skrifaði í flokkinn Tónlist

B0000024UM.01._AA240_SCLZZZZZZZ_.jpgAf einhverjum ástæðum, sumum skiljanlegum, öðrum ekki, hefur áhug minn á þessari vefsíðu dofnað að undanförnu. Það er ekki svo að líf mitt hafi verið viðburðarlítið, laangt því frá. En einhvern veginn hef ég minni þörf fyrir að deila reynslu minni hér.

Það kann þó að breytast og oftast þegar áhuginn á þessari síðu hefur dottið niður, þá hefur hann vaknað fljótlega aftur.

En ég ætla að taka hérna upp nýjan fídus á þessa síðu, það er smá tónlistarblogg. Ég ætla að fjalla um lög, sem ég elska – af hverju ég elska þau og skýra frá því ef ég tengi þau við ákveðna atburði í mínu lífi. Ég veit ekki hversu oft ég mun gera þetta, en þetta mun gerast öðru hvoru.

Allavegana, hérna er fyrsta lagið:

Girl from the North Country – Johnny Cash og Bob Dylan – Mp3 skjal, 5,3mb

Ég hef fílað Johnny Cash í nokkur ár. Byrjaði að fíla hann áður en það varð jafn hipp og kúl og það er í dag. Ekki það að ég sé að gera lítið úr athyglinni á Cash í dag, því hann á hana svo sannarlega skilið, enda snillingur. Cash er sennilega fyrsti kántrí listamaðurinn, sem ég byrjaði að fíla. Tengdi hann eiginlega ekki við kántrí í upphafi, þar sem ég byrjaði fyrst að hlusta á American plöturnar fyrir mörgum árum.

En Cash hefur svo sannarlega hjálpað mér að yfirstíga vanþóknun mína og fordóma á kántrí tónlist. Já, fulltaf kántrí tónlist er hreinasta drasl. En það þýðir ekki að það megi flokka alla tónlistina undir einn hatt. Það er einfaldlega til hellingur af frábærri kántrí tónlist, sem ég er bara rétt að byrja að læra að meta.

Dylan uppgötvaði ég hins vegar ekki fyrr en miklu seinna. En í þessu lagi eru þeir samankomnir tveir snillingarnir, Cash og Dylan. Dylan með röddina í skrýtnum kántrí-ham og Cash með sína ótrúlega mögnuðu rödd og syngja saman þennan frábæra dúett í lagi eftir Dylan. Þetta lag er langt frá því að vera mitt uppáhaldslag með Dylan, en það að þeir syngi saman gerir það sérstakt.

Lagið er tekið af Nashville Skyline, sem Dylan tók upp í Nashville og er sennilega hreinræktaðasta kántrí platan, sem hann hefur tekið upp.

7 ummæli hingað til

Feb 27 2006

Endalok uppboðsins

skrifaði í flokkinn Uppboð

oa_logo.gifJæja, uppboðinu er lokið. Það tók yfir tvo mánuði að klára öll mál tengd þessu átaki mínu.

Ég seldi nánast allt geisladiska- og dvd safnið mitt ásamt alls konar dóti, sem ég hafði litla þörf fyrir í mínu lífi.

Íbúðin og geymslan mín eru aðeins tómlegri en fyrir, en þó finn ég ekki mikið fyrir því´að þetta dót sé farið. Sem segir ansi mikið um það hversu mikið af drasli manni tekst að safna saman í gegnum árin.

Ég fékk einnig frjáls framlög frá fólki í kringum mig og fólki, sem les þessa síðu og einnig gaf ég sjálfur aðeins meira en 15% af desember laununum mínum.

Niðurstaðan? Jú, ég safnaði samtals:

500.000 krónum

Það er svo miklu, miklu meira en ég átti von á í upphafi. Viðbrögðin voru miklu meiri en ég vonaðist eftir og ég hef haft ótrúlega gaman af því að standa í þessu. Ég hef talað við fullt af skemmtilegu fólki útaf þessu og þetta hefur víða vakið athygli.

Ég vil þakka öllum, sem tóku þátt í þessu. Sérstakt hrós fær Ólöf frænka mín, sem gaf peninga sem hún safnaði með því að safna saman dósum í hverfinu sínu. Ég þakka öllum, sem keyptu hluti á uppboðinu og sem lögðu sína peninga í þetta átak með mér. Ég er viss um að peningnum okkar er vel varið hjá Oxfam.

Peningurinn allur (um 7.500 dollarar) mun allur fara til hjálparstarfs Oxfam í Mið-Ameríku, þar sem hálf milljón króna er mikill peningur. Ég millifærði peningana til Oxfam síðasta föstudag og ég treysti Oxfam mjög vel til þess að koma þessum peningum í góðar hendur. Ég mun setja inn hérna staðfestingar frá Oxfam fyrir peningagjöfinni þegar þær koma.

10 ummæli hingað til

Feb 24 2006

Jafnrétti?

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Ekki það að ég hafi minnsta vit á málinu (eða það komi mér hið minnsta við), en af hverju í ÓSKÖPUNUM gera menn strax ráð fyrir því að kyn þáttakenda hljóti að skipta einhverju máli í nýsköpunarverðlaunum forsetans.

Halda menn því virkilega fram að það séu líkur á því að dómnefndin hafi hafnað konum vegna kyns þeirra? Þetta er hreinlega ofar mínum skilningi, en kannski horfi ég bara of barnalega á hlutina. Ég á bara bágt með að trúa því að menn láti kyn þáttakenda hafa áhrif á sig, sérstaklega þegar um verðlaun forsetans er að ræða.

Er ekki nær lagi að gagnrýnendurnir séu að reyna að slá sér upp til riddara, sem einhvers konar jafnréttishetjum?

5 ummæli hingað til

Feb 22 2006

Barca!

skrifaði í flokkinn Íþróttir

Hólí sjitt hvað Barcelona er gott lið! Það er yyyyndislegt að sjá Chelsea liðið tekið í nefið og það er ekki leiðinlegt þegar það er annað af upphaáldsliðunum mínum, sem á í hlut.

Lionel Messi er 18 ára! Hann er fæddur 1987. Eru menn ekkert að grínast? Þvílíkur ótrúlegur snillingur.

Barca átti 23 skot á mark Chelsea í leiknum í kvöld. 23 skot á móti CHELSEA! Á útivelli. Já, þeir voru einum fleiri en það skýrir ekki allt. Ég segi það óhræddur að Barcelona er besta knattspyrnulið í heimi í dag. Held að aðeins Juventus gæti stöðvað þetta Barcelona lið í Meistaradeildinni.

Ég er búinn að vera hálf þunglyndur útaf Liverpoo tapinu í gær, en Barca tókst að koma mér aftur í gott skap. Húrra fyrir því. Og húrra fyrir því að ég verð á Nou Camp eftir tvær vikur til að horfa á seinni leikinn! HÚRRA! Já, og húrra fyrir fótbolta!

10 ummæli hingað til

Feb 22 2006

Breaking News

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Nú skiptum við “live” til Lundúna!

“Gott kvöld. Hér í London er allt með kyrrum kjörum. Þó eru helstu tíðindin sú að Halldór Ásgrímsson er á Stamford Bridge. Ég endurtek, Halldór Ásgrímsson er á Stamford Bridge!!! Og hann ætlar að horfa á fótbolta í kvöld! Ég endurtek, fótbolta

Fyrirgefið, við þurfum að rjúfa útsendingu frá Lundúnum

“Í dómssal í Reykjavík er ákæruvaldið að rífast við sakborninga útaf innflutningi á fjórum bílum. Ég endurtek, innflutning á fjórum bílum.”

Fleira er ekki í fréttum í kvöld.

2 ummæli hingað til

Feb 20 2006

Múrinn og Hugo

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Chavez11.jpgÞau á Múrnum virðast hafa afskaplega veikan blett fyrir Hugo Chávez. Af hverju er erfitt að skilja.

Í dag er á Múrnum grein, þar sem agnúast er útí (að mínu mati hálf kjánalegar) yfirlýsingar Condoleeza Rice um Hugo Chávez: Rice finnur rauðu hættuna í suðri. Í þeirri grein er að finna marga skringilega punkta (feitletranir mínar):

Rice sagði að ríkisstjórn Chávez væri ógn við lýðræðið í þessum heimshluta og að valdhafar í Caracas hvettu stjórnvöld annarra ríkja til að feta sig út af braut lýðræðislegra stjórnarhátta. Það virðist því hafa farið framhjá fólki í Hvíta húsinu að Hugo Chávez var kjörinn forseti Venesúela í lýðræðislegum kosningum á sínum tíma, vann með yfirburðum þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem landsmönnum gafst kostur á að lýsa á hann vantrausti og að flokkarnir sem styðja ríkisstjórn Chávez unnu stórsigur í þingkosningum í byrjun desember á síðasta ári. Framlag Bandaríkjastjórnar til varnar lýðræðinu þá var að hvetja stjórnarandstöðuflokkana til að sniðganga kosningarnar, sem þeir gerðu með þessum ljómandi góða árangri

Chávez ER ógn við lýðræðið. Þrátt fyrir að hann sé á móti Bandaríkjunum, þá þýðir það ekki að hann sé góður gæi. Já, hann vann lýðræðislegar kosningar, en það afsakar hins vegar ekki hvað hann hefur gert síðan hann komst til valda.

Bara til að nefna nokkra hluti, þá hefur Chávez t.d. lagt niður eftri deild þingsins í Venezuela, þannig að núna þarf hann bara að fara í gegnum eina deild með ný lög. Vegna þess að hann hafði aðeins lítinn meirihluta á þingi í upphafi, þá breytti hann lögunum þannig að nú þarf ekki lengur 2/3 atkvæða til að breyta lögum, heldur aðeins einfaldan meirihluta. Hann hefur nú algjöra stjórn á hernum, en þingið hafði áður hlutverk í stjórn hersins. Chávez stjórnar einnig stofnuninni, sem sér um kosningar í Venezuela.

Chávez hefur gefið sjálfum sér leyfi til að reka dómara og hefur lengt kjörtímabilið sitt um eitt ár. Hann hefur stækkað hæstarétt úr 20 í 32 dómurum og með því fyllt réttinn af dómurum hliðhollum sjálfum sér. Hugo Chávez ER ógn við lýðræðið í þessum heimshluta. Hversu mikið þarf hann eiginlega að gera að mati Múrsverja til að teljast ógn við lýðræði?

Rice sagði ennfremur að hin nánu tengsl Venesúela og Kúbu væru „sérstaklega hættuleg“ og að „alþjóðasamfélagið“ yrði að vera betur á verði fyrir hönd almennings í Venesúela. Ekki er ljóst hverjum er hætta búin af þessum tengslum

Hvað með fólkinu sjálfu í landinu? Fólki, sem gat mótmælt í Venezuela. Það þykir hreint ekki svo sjálfsagt í dag að mótmæla í Venezuela í dag og pólitískum föngum hefur fjölgað undir stjórn Hugo Cavez. Hægt er að handtaka fólk ef það sýnir embættismönnum “vanvirðingu”. Auðvitað er ástandið í Venezuela, hvað varðar réttindi borgaranna til að mótmæla, ekki jafn slæmt og á Kúbu, en Chávez hefur ítrekað líst aðdáun sinni á Castro og hans stjórnarháttum. Hann hefur ekki (allavegana ekki svo ég viti) mótmælt meðferð Fidels á pólitískum andstæðingum sínum.

Vissulega er það fleira sem stjórnin í Caracas hefur gert til að skaprauna George W. Bush og félögum. Til dæmis lagði hún líknarfélögum til ódýra olíu til húshitunar fyrir fátækt fólk í Bandaríkjunum fyrr í vetur og hefur keypt heilbrigðisþjónustu af Kúbverjum í stórum stíl.

Hvað nákvæmlega hefur SH fyrir sér í þessu? Getur hann nefnt einhver dæmi þess að GWB hafi pirrað sig útí að Venezuela hafi selt ódýra olíu til líknarfélaga? Eða er þetta bara byggt á almennum sleggjudómum, sem þeir á Múrnum virðast stundum hafa útí allt og alla, sem koma frá Bandaríkjunum?

Ekki þarf að efast um að ríkisstjórn Hugo Chávez verðskuldi ýmiss konar gagnrýni eins og allar aðrar ríkisstjórnir.

Hvaða bull er þetta eiginlega? Á sama hátt væri hægt að skrifa að ríkisstjórnin í Norður Kóreu ætti skilið gagnrýni einsog allar aðrar ríkisstjórnir. Málið er auðvitað að ríkisstjórnin í Venezulea á skilið margfalt meiri gagnrýni en flestar aðrar ríkisstjórnir. Það er ekki hægt að gera lítið úr réttmætri gagnrýni á Chávez með því að halda því fram að allar ríkisstjórnir eigi skilið gagnrýni.

Þeir á Múrnum virðast hafa skringilega veikan blett fyrir Hugo Chávez. Já, Hugo hefur haldið úti verkefnum, sem hafa skilað einhverju til fátæks fólks í landinu. En hann hefur getað leyft sér þau verkefni vegna gríðarlega hás olíuverðs. Og já, hann er töffari, sem dissar Bandaríkin. (og já, hann fílar basbeall – að mínu mati mikill kostur)

En ef ekki væri fyrir hátt olíuverð, þá væri þessi bólívarska bylting hans farin á hausinn og það sem eftir stæði væri að lýðræðið í Venezuela stendur umtalsvert veikari fótum en áður.

3 ummæli hingað til

Feb 19 2006

Atvinna í boði

skrifaði í flokkinn Vinna

serrano-atvinna-minni.jpg

Ef þið hafið áhuga eða vitið um einhvern, sem hefur áhuga, þá getiði líka hringt beint í mig í síma 896 9577.

2 ummæli hingað til

Feb 16 2006

Hvalkjöt á diskinn minn (hóst)

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég get hreinlega ekki lengur verið með línurit sem efstu færslu á þessari bloggsíðu. Verð bara að skrifa…um eitthvað.

Allavegana…

Á miðvikudaginn var ég með útlendinga í mat á Humarhúsinu. Það er ekki frásögu færandi nema fyrir eina staðreynd. Á matseðli Humarhússins er nefnilega boðið uppá hvalkjöt í forrétt (ásamt hrossakjöti – “namminamm” ). Ég hvatti útlendingana til að prófa án teljandi árangurs. Þegar þau svo spurðu mig nánar útí hvalkjötið, þá komst ég að því að ég hafði sjálfur aldrei prófað hval.

Ég hef hins vegar verið undir stanslausum áróðri íslenskra yfirvalda og hvalveiðiáhugamanna nær allt mitt líf. Sá áróður gengur útá tvennt: 1) Hvalkjöt bragðast yndislega, hreinlega einsog besta nautasteik (þetta með nautasteikina hef ég heyrt svona 100 sinnum) – og 2) Hvalkjöt er brjálæðsilega vinsælt og selst alltaf upp í verslunum um leið og það er til.

Ég vissi að seinni punkturinn væri tómt þvaður, en var ekki viss um þann fyrri.

Ég ákvað að prófa matinn. Hvalkjötið kom á borðið að japönskum stíl, hrátt, borið fram með soja sósu og wasabi. Það er skemmst frá því að segja að kjötið var viðbjóður. Ekki alveg jafnviðbjóðslegt og skata (sem fólk hafði líka logið að mér að væri yndisleg á bragðið), en samt verulega vont.

(Ég tek það fram að þetta vonda bragð var svo sannarlega ekki matreiðslumönnum á Humarhúsinu að kenna, enda maturinn þar (með þessari einu undantekningu) algjörlega frábær. Einnig var þjónustan frábær, því um leið og þjónninn sá að ég borðaði ekki kjötið, þá bauð hún mér uppá fulla endurgreiðslu.)

Hvalkjöt er ekki nálægt því að bragðast einsog “besta nautakjöt” einsog spunameistararnir hafa haldið fram. Já, það lítur svipað út, en bragðið er ekki nálægt því. Ég er hreinlega hættur að taka fólk trúanlega þegar það talar um að þjóðlegur íslenskur matur sé góður. Ég hef því ákveðið að prófa ekki restina af þessu þjóðlega gumsi, sem menn halda fram að sé einsog sælgæti á bragðið. Þetta á því við um hákarl, hrútspunga og allt þetta jukk, sem ég hef ekki prófað síðan að ég bragðlaukarnir mínir þróuðust frá því að þykja sandur góður á bragðið.

p.s. Bendi líka á þessa grein í Grapevine, sem fjallar að hluta til um jákvæðar hvalaveiðgreinar á vísi.is

8 ummæli hingað til

Feb 15 2006

Gengi hlutabréfa

skrifaði í flokkinn Viðskipti

Þetta, dömur mínar og herrar er gengi FL Group síðustu 12 mánuði:

ticker.xice.FL1YEAR510300_S.png

Er þetta eðlilegt?

9 ummæli hingað til

Feb 15 2006

Roger Waters til Íslands!

skrifaði í flokkinn Tónleikar

Roger_Waters_09.09.1943.gifJess jess JESSSSSS!!!!!

Roger Waters spilar í Egilshöll 12. júní!!!

Fyrir þá, sem ekki vita þá var Roger Waters bassaleikari og aðallagahöfundur Pink Floyd á helsta blómaskeiði hljómsveitarinnar. Ég sá Waters á tónleikum í Houston, Texas fyrir nokkrum árum og það eru sennilega aðrir af tveim bestu tónleikunum, sem ég hef séð á ævinni (ásamt Radiohead í Grant Park í Chicago).

Ég er reyndar forfallinn Pink Floyd aðdáandi, þrátt fyrir að ég hafi hlustað afskaplega lítið á þá síðustu 2-3 ár. Á nokkurra ára tímabili voru þeir mín uppáhaldshljómsveit og ég hef eytt óteljandi klukkustundum hlustandi á gamla diska með þeim. Ég veit ekki hvort að tónleikarnir í Egilshöllinni verða jafn stórkostlegir og þeir í Houston, en ég get allavegana látið mig dreyma.

Þetta verður æði!

2 ummæli hingað til

Feb 14 2006

Cheney skotinn

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Einsog flestir ættu að vita, þá skaut Dick Cheney 78 ára gamlan veiðifélaga sinn um helgina. Þetta samtal er úr Daily Show, besta þætti í heimi:

Jon Stewart: “I’m joined now by our own vice-presidential firearms mishap analyst, Rob Corddry. Rob, obviously a very unfortunate situation. How is the vice president handling it?

Rob Corddry: “Jon, tonight the vice president is standing by his decision to shoot Harry Wittington. According to the best intelligence available, there were quail hidden in the brush. Everyone believed at the time there were quail in the brush.

“And while the quail turned out to be a 78-year-old man, even knowing that today, Mr. Cheney insists he still would have shot Mr. Whittington in the face. He believes the world is a better place for his spreading buckshot throughout the entire region of Mr. Whittington’s face.”

Jon Stewart: “But why, Rob? If he had known Mr. Whittington was not a bird, why would he still have shot him?”

Rob Corddry: “Jon, in a post-9-11 world, the American people expect their leaders to be decisive. To not have shot his friend in the face would have sent a message to the quail that America is weak.”

Jon Stewart: “That’s horrible.”

Rob Corddry: “Look, the mere fact that we’re even talking about how the vice president drives up with his rich friends in cars to shoot farm-raised wingless quail-tards is letting the quail know ‘how’ we’re hunting them. I’m sure right now those birds are laughing at us in that little ‘covey’ of theirs.

Jon Stewart: “I’m not sure birds can laugh, Rob.”

Rob Corddry: “Well, whatever it is they do … coo .. they’re cooing at us right now, Jon, because here we are talking openly about our plans to hunt them. Jig is up. Quails one, America zero.

Jon Stewart: “Okay, well, on a purely human level, is the vice president at least sorry?”

Rob Corddry: “Jon, what difference does it make? The bullets are already in this man’s face. Let’s move forward across party lines as a people … to get him some sort of mask.”

Sjá fleiri Cheney tengda brandara hér. Athyglisvert að bera saman brandarana úr Letterman og Jay Leno. Brandararnir úr þeim þáttum eru alveg pínlega ófyndnir, en efnið úr Daily Show 10 sinnum betra. Ég get ekki skilið af hverju Leno og Letterman eru enn sýndir, á meðan að ekki er hægt að sjá Daily Show. Óskiljanleg ákvörðun hjá íslenskum sjónvarpsstöðvum.

6 ummæli hingað til

Feb 13 2006

Eyðilegging á bíl

skrifaði í flokkinn Netið

Þetta myndband er nokkuð magnað:



Beisiklí, þá ákváðu stjórnendur bílaþáttar í Bretlandi að sjá hvað þeir þyrftu að gera til að eyðileggja Toyota pickup bíl. Niðurstöðurnar eru ótrúlegar.

6 ummæli hingað til

Feb 10 2006

Prófkjör Samfylkingarinnar

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Jæja, prófkjör í Reykjavík hjá afturhaldskommatittum á morgun. Við hér á eoe.is kjósum svona og hvetjum ykkur auðvitað til að gera það líka:

  1. Dagur B
  2. Stefán Jón
  3. Sigrún Elsa
  4. Andrés
  5. Oddný
  6. Helga Rakel
  7. Steinunn Valdís
  8. Dofri/Stefán Ben/Stefán Jóhann – get ekki gert uppá milli þessara.

Jammm, góður listi! 15 sinnum betri en Íhaldið, svo mikið er víst.

18 ummæli hingað til

Feb 09 2006

Tvífarar

skrifaði í flokkinn Netið

Tvífarar dagsins á Liverpool blogginu. Samkvæmt Kristjáni þá líkist ég semsagt Robert Huth hjá Chelsea en Kristján líkist Brad Pitt.

3 ummæli hingað til

Feb 09 2006

Fleiri skopmyndir

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Hérna er frábært samansafn af skopmyndum þar sem fjallað er um viðbrögðin við skopmyndunum af Múhameð spámanni. Sumar myndanna eru hreint frábærar.

Comments Off

Feb 06 2006

Teiknimyndasögur

skrifaði í flokkinn Stjórnmál

Það er magnað að hugsa til þess að þrátt fyrir milljón fréttir og fréttamyndir af mótmælum múslima um allan heim, þá hefur engin fréttastofa (að því minnsta ekki svo ég hef séð) tekið fyrir af hverju múslimar eru brjálaðir akkúrat núna.

Á Dailykos, sem er bandarískur vinstri-vefur (vinstri, þá á bandaríska vísu – semsagt demókratar), er ágætis samantekt á því hvernig þessi vitleysa öll byrjaði. Þrátt fyrir að mér hafi fundist asnalegt að leggja til að myndum af Múhameð sé dreift bara til að sýna að við getum gert það, líkt og Egill Helga gerði, þá þýðir það ekki að mér eitthvað vit vera í viðbrögðum múslima. Allavegana að greininni. Upptökin á þessu eru í hinu skemmtilega landi Sádí Arabíu: Lesa áfram »

7 ummæli hingað til

Feb 06 2006

Hit

skrifaði í flokkinn Netið

Getur einhver fróður útskýrt af hverju ég hef fengið 30 heimsóknir frá þessari síðu. Er þetta spam, eða var verið að tala um síðuna mína á World of Warcraft spjallborði? Ég sé ekkert á sjálfri síðunni. Ansi furðulegt.

5 ummæli hingað til

Feb 06 2006

Superbowl auglýsingar

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Á Google Videos er hægt að nálgast allar auglýsingarnar, sem sýndar voru í Superbowl í gær. Mæli með þessu.

Bestu auglýsingarnar eru án efa Bud Light auglýsingarnar:

On the roof
Secret Fridge
Save Yourself
Hidden Bud Light

Á erfitt með að gera upp á milli þeirra, en Secret Fridge er að mínu mati fyndnust.

Comments Off

Feb 05 2006

Djammið er dáið!

skrifaði í flokkinn Dagbók

Ég held að ég hafi komist nálægt því að gefast endanlega uppá íslensku skemmtanalífi í gær þegar ég fór með vini mínum á djammið í miðborg Reykjavíkur. Ég skemmti mér frábærlega, en það var ekki gæðum skemmtistaðanna að þakka, heldur frekar góðum félagsskap. Ég var að enda við að hætta í ör-stuttu sambandi og því fannst mér tilvalið að fara á djammið með vini mínum.

Við reyndum ansi marga skemmtistaði í gærkvöldi í leit að almennilegri blöndu af góðri tónlist, sætum stelpum og góðu andrúmslofti. Sú blanda virðist ekki vera til. Annaðhvort virðist tónlistin vera hryllingur, troðningur alltof mikill eða þá að 90% fólks inná stöðunum var 16-18 ára gamalt.

Þessa staði reyndum við:

Óliver

Byrjuðum á Ólíver. Það er ágætis staður. Flestir inná staðnum voru yfir tvítugt og var reyndar slatti af fólki vel yfir þrítugt. Það virðist vera sem svo að DJ-inn á Ólíver treysti á það að allir þarna inni séu eldri en 35. Allavegana virðist tónlistin vera miðuð við þann aldhurshóp. Á þeim rúmlega klukkutíma, sem við vorum inná Ólíver heyrði ég m.a.: Lag með Boy George, Wake me up before you go-go með Wham, Take on Me með A-Ha og einhver 2-3 Stuðmannalög. Þetta var orðinn svo mikill hryllingur að við gáfumst að lokum upp. Það var þó greinilegt að FULLT af fólki inná staðnum var að fíla tónlistina. Þessu fólki er ekki hægt að bjarga.

Plúsar og mínusar við Ólíver:

  • Mjög sætar stelpur
  • Fólk yfir tvítugt

  • Hryllilegasta tónlistin í bænum.

  • Troðningur á dansgólfi. Ekki það að ég hafi haft nokkra löngun til að dansa við Wham.

Vegamót

Löbbuðum yfir á Vegamót í vissu um að tónlistin yrði betri. Það reyndist rétt. Vegamót er fínn staður, einsog alltaf…. Eeeeen hins vegar, þá var reyklyktin og myrkrið að fara með mig. Ég sé lítið í svona myrkri og reyk og því get ég varla greint hvernig fólkið á næsta borði lítur út. Það er ekki gott. Nenni ekki að vera með gleraugu á djamminu. Einnig komu nokkur fáránlega asnaleg lög. Aldurs-samsetningin var ein sú besta á stöðunum, allavegana einsog ég vil hafa hana.

+ Skárri tónlist en á Ólíver
+ Fólk yfir tvítugt

- Myrkur og reykur - Troðningur (reyndar ekki í gær)

Prikið

Við ákváðum eftir Vegamót að reyna að fara á staði, sem við förum nær aldrei á. Fórum því á Prikið. Prikið er staður, sem ég hef aldrei skilið. Gærkvöldið breytti því ekki. Troðningurinn á Prikinu var nánast óbærilegur og svo var aldursamsetningin svipuð og á 3. bekkjarkvöldi í Verzló. Ég held að ég og vinur minn höfum verið svona 10 árum eldri en næst elstu einstaklingarnir þarna inni.

Prikið bauð hins vegar uppá langbestu tónlistina. Old skúl hip hop. Krakkarnir þarna inni voru sennilega enn í leikskóla þegar Doggystyle kom út. Það er magnað.

+ Frábær tónlist

- Viðbjóðslegur troðningur
- Að undanskildum okkur og barþjónunum var enginn þarna inni eldri en 18.
- Troðningur
- “Karlaklósettið” – það kann að vera að einhverjum finnist gaman af því að láta fólk horfa á sig pissa. Ég er ekki einn af þeim.
- Troðningur

Sirkus

Já, Sirkus. Við ákváðum að prófa að fara á Sirkus. Sú tilraun misheppnaðist hrapallega. Beisiklí, þá biðum við í óskipulögðustu biðröð á Íslandi í sirka 30-40 mínútur. Biðröð er í raun rangnefni, því þetta var biðhrúga. Ekkert skipulag. Þeir frekustu komust áfram. Dyravörðurinn var stelpa, sem er athyglisverð tilbreyting. Mér heyrðist tónlistin vera ágæt, en ég heyrði hana bara rétt þegar hurðin opnaðist á sirka fimm mínútna fresti.

Við gáfumst upp eftir 40 mínútur í rigningunni. Get ekki ímyndað mér að staðurinn sé virði lengri biðar.

+ Held að þarna sé góð tónlist
+ Myndavélar eru bannaðar á staðnum. Það er frábær regla.

- Biðhrúgan
- Komumst actually ekki inn. Það var ókostur.

Hverfisbarinn

Á þessum punkti höfðum við fáar hugmyndir. Það var búið að loka Ólíver og við ætluðum að fara á 11, en þar voru hins vegar 50 manns í biðröð. Af hverju veit ég ekki. Við fórum því yfir á Hverfisbarinn, enda var enginn í biðröð þar. Þar inni eyddum við heilum 10 mínútur. Heyrðum allavegana eitt leiðinlegt lag.

+ Lang-sætustu stelpurnar af öllum stöðunum.

- Ekkert aldurstakmark. Ef það er aldurstakmark, þá er það sennilega 14 ára. - Troðningur á dansgólfinu. Hvernig á maður að dansa þegar maður þarf sífellt að vera að ýta fólki frá sér?
- Myndavélar. Ég held að ég hafi lent á einhverjum þrem myndum á staðnum. Það var ekki beint verið að taka mynd af mér, þó að ég haldi að eitt skiptið hafi myndavélinni verið beint að mér. Ég veit ekki hvort það þýðir að myndin lendi í fjölskyldualbúmi í Breiðholtinu eða á netinu. En ég þoli ekki þessar myndavélar á djamminu. Ég lít ekki vel út klukkan 4 á djamminu eftir 10 screw-drævera og hef engan áhuga á að fá myndir af mér birtar.

Kaffi Kúltúr

Æ heitir þetta ekki Kaffi Kúltúr, þarna kaffistaðurinn í Alþjóðahúsinu? Við heyrðum einhverja suðræna tónlist þegar við löbbuðum framhjá og ákváðum að fara inn. Tónlistin versnaði gríðarlega þegar inn var komið og einnig virtist ekki vera mikið af fólki þarna inni.

+ Eh, veit ekki

- Sá engar sætar stelpur
- Tónlistin ekki góð.


Þannig lauk þessu kvöldi. Niðurstaðan að enginn af þessum skemmtistöðum stóðst væntingar okkar. Ef ég ætti að velja þá væri Vegamót sennilega besti staðurinn. Ég stefni á að halda áfram að prófa nýja staði á næstunni. En ég er farinn að hallast að því að íslenskt skemmtanalíf bjóði ekki uppá staði, sem ég fíla. Ég skil ekki af hverju það er.

Af hverju er ekki hægt að biðja um svona stað:

  • Sæmilega stór staður, með flottum innréttingum.
  • Fleiri en einn bar
  • Aldurstakmark, sem fylgt er eftir. Það er allt í lagi að einhverjir staðir hleypi framhaldsskólafólki inn. En þurfa virkilega allir staðir á landinu að gera það? Stelpa, sem ég var að deita kvartaði yfir því að á Hverfisbarnum væri mikið af krökkum. Og hún er 21 árs! Hugsið ykkur: 21 árs stelpa kvartar yfir því að á skemmtistöðum sé of mikið af krökkum.
  • Góð tónlist. Blanda af þeirri tónlist, sem er vinsæl í dag og almennilegu hip-hopi eða danstónlist. Ekkert 80′s crap eða Stuðmenn eða Grýlurnar eða Laddi eða önnur vitleysa.
  • Sætar stelpur (uppfært: Að innan sem utan! Já, og skemmtilegt fólk! Og fólk, sem ég þekki!)
  • Stórt dansgólf! Dansgólf þar sem maður hefur pláss og þarf ekki að rekast utan í fólk á 10 sekúndna fresti.
  • Engar myndavélar! Engar asnalegar fyllerísmyndir birtar á vefsíðum.
  • KLÓSETT SEM VIRKA! Og jafnvel fleiri en eitt klósett.

Ég hef farið inná svona staði í nánast öllum stórborgum, sem ég hef djammað í. Af hverju ekki í Reykjavík?

24 ummæli hingað til

Feb 04 2006

Til hamingju

skrifaði í flokkinn Sjónvarp

Ef að Silvía Nótt fer ekki í Evróvisjón, þá tapa ég endanlega trúnni á þetta land.

Og VÁ! Er Spaugstofan ennþá á dagskrá? Ég horfi greinilega ekki nógu oft á sjónvarp á laugardagskvöldum.

Comments Off

Eldri færslur »