Feb 13 2006
Eyðilegging á bíl
Þetta myndband er nokkuð magnað:
Beisiklí, þá ákváðu stjórnendur bílaþáttar í Bretlandi að sjá hvað þeir þyrftu að gera til að eyðileggja Toyota pickup bíl. Niðurstöðurnar eru ótrúlegar.
6 Ummæli við færsluna “Eyðilegging á bíl”
# - þann 14 Feb 2006 klukkan 0:38
Vídjóið virkar ekki. En er þetta ekki þegar Top Gear settu Pickupinn ofan á byggingu sem var sprengd niður og hann fór í gang.
Top Gear eru æðislegir þættir og einhver var að segja mér að þeir væru væntanlegir eða þegar komnir á Skjá einn. Sem er auðvitað bara hið best mál.
Þeir voru einmitt með “Vetrarólympíuleika” special þátt um helgina. Þar sendu þeir gamlan Mini niður skíðastökkpallinn í Lillehammer – og hann lenti á hjólunum eftir 60-70 metra stökk!
Í síðustu seríu fengu þeir líka áhættuleikara til að slá opinberlega heimsmetið í fjölda veltna í fólksbíl. Svona svo eitthvað sé nefnt.
# - þann 14 Feb 2006 klukkan 0:45
… og fóru í fótbolta á Toyota Aygo. Sem var fyndið.
kv, tobs
# - þann 14 Feb 2006 klukkan 1:11
Í Noregi spiluðu þeir “íshokkí” með Suzuki Swift, með norska rallýökumenn undir stýri á hinum bílunum (Hammond og May voru “fyrirliðar”). Það var töluvert meira brútal, ein velta sem stútaði einni Súkkunni etc. Svo eru kommentin frá Jeremy Clarkson auðvitað eðal
# - þann 14 Feb 2006 klukkan 1:21
En fyrst þeir eru loksins búnir að uppgötva Top Gear, kannski þeir taki Jonathan Ross næst á dagskrá :biggrin:
Eitthvað annað en hinn ofsoðni Jay Leno.
ps. Toppurinn á Íslandsferð Top Gear var auðvitað þegar Richard Hammond fór með Gísla Gunnari Jónssyni einsog hálfan kílómetra yfir eina víkina við Kleifarvatn á torfærujeppanum hans. Síðan fóru þeir í kapp, yfir víkina, við vélsleða.
# - þann 14 Feb 2006 klukkan 12:13
Jámm, þetta er vídeóið úr Top Gear. Hef aldrei séð þessa þætti og hef ekki minnsta áhuga á bílum, en þetta var áhugavert.
# - þann 14 Feb 2006 klukkan 12:33
Hef engan sérstakan áhuga á bílum, en horfi reglulega á Top Gear. Meiri háttar þættir. Clarkson er nátt’lega snarbilaður… Þetta er frábært myndband, góð auglýsing fyrir tojótur :biggrin: