May 23 2006
Útsýnið útum gluggann minn
Andrew Sullivan er með skemmtilegan þátt á síðunni sinni þar sem hann biður lesendur um að senda sér útsýnið útúm gluggann þeirra. Sjá t.d. California, Lissabon, Seattle- hérna útskýrir hann hugmyndina
Ef ég gæti tekið mynd núna, þá væri ég án efa með þunglyndislegasta útsýnið. Núna sé ég risastórt og svart vöruhús Samskipa, gáma, bílastæði og SNJÓKOMU. Ekki furða að það hafi tekið mig langan tíma að koma mér framúr í morgun.
2 Ummæli við færsluna “Útsýnið útum gluggann minn”
# - þann 23 May 2006 klukkan 12:17
ohj ég sé líka snjókomu og svo gluggana hjá kbbanka og einn landsbankafána
# - þann 24 May 2006 klukkan 12:09
mér finnst þetta bara snilldar hugmynd