Jun
30
2006
Í kjölfar atburða dagsins og árangurs síðustu umferðar hef ég ákveðið að breyta um áherslur á HM.
Á einstakan hátt hefur mér tekist að breyta því með hvaða liðum ég held.
Núna held ég því með Ítalíu, Portúgal og Frökkum. Ég vona sérstaklega að C.Ronaldo, Figo, Totti og Henry leiki frábærlega. Þeir eru allir æði!
Jun
28
2006
Vefrit Ungra Jafnaðarmanna, Pólitík.is fór í gegnum andlitslyftingu nokkru fyrir kosningu. Svosem ágæt breyting að sumu leyti, en ekki nógu góð að öðru leyti.
Það sem verst var við þessa breytingu er að greinatexti á síðunni varð algjörlega óhæfur til aflestrar á tölvuskjá. Finnst einhverjum t.d. þægilegt að lesa þessa grein?
Ég tók mig til og breytti aðeins til í CSS skjalinu og býð nú algerlega ókeypis uppá nýtt útlit á pólitík.is:
FYRIR
EFTIR breytingar EÖE
Er þetta ekki betra svona? Eða er þetta kannski bara í hausnum á mér?
(Á meðan að ég var að grúska í þessu rifjaðist það upp fyrir mér hversu æðislegur diskur David Byrne með David Byrne er. Já, Byrne er snillingur!)
Jun
27
2006
Þetta eru leikirnir, sem eru búnir í 16 liða úrslitum HM.
Þýskaland – Svíþjóð: Einar Örn hélt með Svíþjóð
Mexíkó – Argentína: Einar Örn hélt með Mexíkó
England – Ekvador: Einar Örn hélt með Englandi
Portúgal – Holland: Einar Örn hélt með Hollandi
Ástralía – Ítalía: Einar Örn hélt með Ástralíu
Sviss – Úkraína: Einar Örn hélt með Sviss
Brasilía – Ghana: Einar Örn hélt með Ghana
Spánn – Frakkland. Einar Örn hélt með Spáni
Ég er búinn að fylgjast með 8 leikjum í 16 liða úrstlum. Í þessum leikjum hafa mín lið unnið EINU SINNI! 1 leikur af 8. 12,5% vinningshlutfall! Það er hreint magnað.
Reyndar hélt ég líka með Argentínu, en ég hafði samt meiri taugar til Mexíkó og óskaði þess að þeir myndu vinna. Núna eru bara tvö lið eftir, sem ég fylgist með. Ég styð aðvitað Argentínu og svo á ég eflaust eftir að halda með Englandi ef að Peter Crouch verður inná.
Jun
27
2006
Þetta myndband úr Daily Show er algerlega frábært. Þar fer John Stewart yfir mál “hryðjuverkamannanna” frá Miami, sem var blásið upp í fjölmiðlum vestra, sem og hér á landi. Segir allt, sem segja þarf.
Jun
26
2006
Ég hef ekki mikið að segja á þessari síðu. Flest, sem vekur upp reiði mína og gleði er rætt á þessari síðu, þar sem ég hef ákveðið að halda öllum HM skrifum mínum.
En það má alveg koma því fram að mér finnst það verulega illa af knattspyrnuguðunum gert að fella bæði Mexíkó OG Holland (tvö uppáhaldsliðin mín) úr keppni á einni og sömu helginni. Það þóttu mér grimm örlög.
Jú, svo má líka koma því að að núna held ég með Argentínu í keppninni (það var lið númer 3 hjá mér). Einnig held ég með Spáni og Englandi, en þá með því skilyrði að í þeim liðum séu Liverpool menn að spila. Annars mega þau lið grotna niður og falla úr keppni ekki seinna en strax.
Já, og svo hata ég Portúgal. Og Luis Figo.
Jun
25
2006
Warren Buffett er svo sannarlega maður dagsins. Hann á um 44 milljarða dollara og ætlar að gefa nánast allt frá sér til góðgerðarmála.
Hann ætlar “aðeins” að halda eftir 6,6 milljörðum dollara – eða 15% af eignum sínum. Ég myndi alveg treysta mér til að lifa á þeirri upphæð.
Jun
19
2006
Ég lýsi því hér með yfir að “heimsborgara” herferðin hjá Iceland Express er gargandi snilld. Ég brosi ennþá að auglýsingum, sem ég hef séð a.m.k. 20 sinnum í HM glápinu mínu.
Af gefnu tilefni vil ég benda á grein, sem ég skrifaði fyrir einu ári: Leiðinlegasta sumarveður í heimi. Þessi grein á vel við þessa dagana. Ég held að það séu engin takmörk fyrir því hversu ömurlega hryllilegt veðrið er á þessu landi. Ég hata íslenskt veðurfar. HATA ÞAÐ!
Jun
13
2006
Jæja, tónleikarnir í gærkvöld voru verulega góðir. Ég fór með Jens vini mínum og skemmtum við okkur vel. Prógrammið var ekki ósvipað því, sem ég sá í Texas fyrir nokkrum árum, þó með nokkrum skemmtilegum breytingum.
Fyrir það fyrsta var stórt tjald fyrir aftan hljómsveitina, sem var nýtt nokkuð vel með myndefni. Til dæmis kom Perfect Sense vel út með myndband í bakgrunni. Prógrammið var nokkuð svipað og í Texas fyrir utan að Waters tók auðvitað alla Dark Side of the Moon. Svo tók hann líka nýlegt (á mælikvarða Waters) lag, Leaving Beirut þar sem hann notaði líka skjáinn vel til að segja sögu.
Hápunktarnir voru líka svipaðir og síðast. Perfect Sense var frábært og svo var lokakaflinn í Dark Side verulega flottur. Við vorum nokkuð nálægt sviðinu og ég man ekki eftir að hafa upplifað betra hljóð í Egilshöll. Upplifunin mín var þó nokkuð öðruvísi en í Houston fyrir 6 árum. Að vissu leyti vegna þess að ég hef ekki hlustað svo mikið á Pink Floyd efni undanfarin ár. Þegar ég fór á tónleikana í Texas, þá var ég á tímabili þar sem ég hlustaði gríðarlega mikið á Pink Floyd og Waters og öll lögin virtust fersk. Núna hafði hins vegar liðið langur tími síðan ég hafði síðast hlustað á efnið. Var m.a.s. búinn að gleyma textanum að Set the controls… En þetta virkaði sem frábær upprifjun og ég er ekki frá því að það hafi kviknað í mér Pink Floyd áhugi aftur.
Fluginu til Osló hefur verið seinkað og því sit ég núna inná Saga Lounge í Keflavík. Það gerir biðina eftir flugina svo sannarlega bærilegri.
Jun
12
2006
Jæja, þá eru bara 11 tímar í Roger Waters tónleikana. Ég er orðinn verulega spenntur.
Ég hef einu sinni áður séð Waters á tónleikum. Það var í Houston árið 2000. Þeir tónleikar voru frábærir og eru ásamt Radiohead í Chicago sennilega bestu tónleikar, sem ég hef farið á.
Ég hef talsvert lengi verið aðdáandi Pink Floyd og er líka mjög hrifinn af sólóverkum Waters. Það er alltaf draumur minn að sjá þá saman. Það vantar mikið uppá þegar að Gilmour er ekki með til að syngja lög einsog Wish you were here, því hann er talsvert betri söngvari en Waters.
Á tónleikunum í Texas tók hann bara 4 lög af Dark Side of the Moon (Time, Money og síðustu tvö lögin). Núna ætlar hann að taka alla plötuna, sem verður örugglega frábært. Get ekki beðið eftir því að fá gæsahúð við að hlusta á Eclipse. Á morgun flýg ég svo til Osló á fund.
Jun
09
2006
Þetta er ótrúlegt.
Ef þú veist ekki hvað þú átt að gera við peningana þína, þá er þetta sniðugt.
Jun
09
2006
Ný regla: Ekki horfa á myndir, sem fá 35 í einkunn á Metacritic.
Jun
07
2006
Þetta er gríðarlega hressandi!:
Þetta er tekið úr viðtali við forsvarsmann Alcoa í Brasilíu
But the agreed price — 30 dollars per megawatt-hour — was far from ideal. In Iceland, the company pays half that.
Semsagt, Alcoa borgar helmingi hærra verð fyrir orku í Brasilíu en á Íslandi. Skál fyrir því.
(og þeir borga líka 8 sinnum minna en við Íslendingar borgum fyrir okkar eigin rafmagn)
via (greinininni var eytt útaf neti Alcoa, en Google á afrit.
Jun
05
2006
Ja hérna, Halldór hættur sem forsætisráðherra!
Helgin er búin að vera verulega góð – eða allavegana kvöldin. Fór útað borða með kærustunni og svo á smá pöbbarölt á föstudaginn og á laugardag fór ég í giftingu til vina minna. Drakk slatta af léttvíni og bjór, en gerði engan skandal, hélt engar ræður og hegðaði mér almennt séð nokkuð vel. Sem er framför frá fyrri brúðkaupum. Kannski hefur kærastan mín þessi áhrif á mig. Eða kannski er ég bara að þroskast.
Horfði á Bachelorette, sem er stórkostleg skemmtun. Annað eins samansafn af örvæntingarfullum karlmönnum er vanfundið. Einhvern veginn er það búið að stimpla inní hausinn á karlmönnum að konur þrái ekkert meira en karlmann, sem vill binda sig niður og eignast 5 börn. Allavegana þurftu flestir strákarnir að koma því að á fyrstu 5 mínútunum að þeir væru tilbúnir í fjölskyldu.
Einn af strákunum er 29 ára og hreinn sveinn af því að hann er að bíða framtil brúðkaups. Ég get skilið margt, en þessi ákvörðun er ekki eitt af því, sem ég get skilið.
5 dagar í HM og vika í Roger Waters. Það er gott mál.